Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 35
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 35
HJÚKRU
N
AR
FR
Æ
ÐINEMINN SITUR FYRIR SVÖRUM
Hjúkrunarfræðineminn
Lilja Bjarklind Garðarsdóttir
?
Finnst vanta áfanga um jaðarsetta
hópa og hjúkrun þeirra
Aldur: 24 ára.
Á hvaða ári ertu í náminu?
Þriðja ári.
Hvers vegna hjúkrunarfræði?
Hjúkrunarfræði heillaði mig vegna þess að það er svo ótrúlega
fjölbreytt og áhugavert fag sem gefur marga möguleika í lífinu. Að
hjálpa fólki í gegnum hvers konar erfiðleika er mjög gefandi og góð
næring fyrir sálina.
Skemmtilegasta fagið?
Lífeðlisfræði hefur vinninginn þar.
Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu?
Já, það kom mér mikið á óvart hversu margbreytilegt
hjúkrunarstarfið er.
Eitthvað sem þér finnst að megi bæta við námið? Já, mér þætti
gott að fá inn áfanga sem fjallar um jaðarsetta hópa og hjúkrun
þeirra.
Ætlar þú í framhaldsnám?
Já, draumurinn hefur alltaf verið að fara í ljósmóðurina en það er
aldrei að vita hvert lífið leiðir mann.
Hressasti kennarinn?
Allir hressir og flottir
Flottasta fyrirmyndin?
Það er algjörlega hún Ólína Ingibjörg, mamma mín, sem er flottasta
og besta hjúkkan „out there“!
Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í starfi?
Kurteisi, hlýleiki og dugnaður.
Hvar langar þig helst að vinna að námi loknu?
Mig langar að fara á einhvers konar lyflækningadeild.
Uppáhaldslæknadrama?
Grey’s Anatomy, að sjálfsögðu.
Besta ráðið við prófkvíða?
Taka pásur, fara í göngur eða taka stuttan hitting með vinkonum til
að dreifa huganum.
Kaffi, te, kók eða orkudrykkir?
Pepsi max!
Hvernig nærir þú andann?
Ég fer í göngur, hlusta á hlaðvörp og stunda almenna slökun.
Uppáhaldshreyfing?
Tabata.
Þrjú stærstu afrek í lífinu hingað til?
Börnin mín, að ná að mennta mig og svo náði ég einu sinni að fara í
splitt.
Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar?
Já ég hef miklar áhyggjur af hlýnun jarðar.
Hvað gerir þú til að sporna við gróðurhúsaáhrifum og hlýnun
jarðar?
Ég reyni að gera sem mest en enn þá er margt sem ég má bæta. Til
dæmis flokka ég, nota bílinn sem allra minnst, kaupi frekar notað en
nýtt og skipti út einnota vörum í fjölnota.
Hvað gleður þig mest?
Samverustundir með fjölskyldu og vinum.
Hvað hryggir þig mest?
Að sjá einhvern eiga erfitt og þá sérstaklega börn.
Uppáhaldsveitingastaður?
XO.
Hvers saknar þú mest í heimsfaraldri?
Þegar hann var sem verstur þá saknaði ég þess helst
að geta ekki hitt fólkið mitt.
Fallegasta borg í heimi?
Mykonos í Grikklandi.
Besti bar fyrir hamingjutíma?
Danski barinn.
Falin perla í náttúru Íslands?
Paradísarlaut er æði.
Besta baðið?
Sky Lagoon er geggjað!
Hvernig myndir þú lýsa þér í einni
setningu?
„Take no bullshit kind
a girl“ með sterka
réttlætiskennd
og gæti ekki
sungið rétta
laglínu til
að bjarga
lífi mínu.
Skemmti-
legasti
tími
ársins?
100% jólin.