Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 37
Ég tók mig til og setti mér ný markmið í starfi; að finna gleðina í húsinu og viðhalda henni. Vá, hvað það er gaman að finna gleðina í hversdagslegum aðstæðum. Ég fór að skammast í notendum hér að vera nú ekki að hlaupa á göngunum og hrósa þeim fyrir fallegt ,,viðhald” (göngugrindina). Ég sótti um vínveitingaleyfi og dró nokkra karla hér með mér í bjórsmökkun, (sem endaði með gleði fram á rauða nótt því þeir vildu ekki fara heim). Dró þá líka með mér í bíó og fékk svo 70 tommu sjónvarp fyrir heimsmeistaramótið í tuðrusparki og poppvél. Ég samdi líka við Græna Hattinn um atriði í bókakaffihúsið okkar og er búin að flækjast um allan Eyjafjörð, með íbúa og notendur, að kynna okkur umhverfið með leiðsögumanni, sem við réðum í fullt starf hér eitt sumarið. Allt þetta og öll ótal mörgu samtölin við þá sem hér búa, starfa og leita sér þjónustu, um allt sem skiptir máli í þessu lífi. Kjarninn í þeim samtölum er ástin. Það man enginn eftir fyrsta hjólinu eða fyrsta bílnum en það muna allir eftir fyrsta kossinum og ljóma við tilhugsunina. Já, eða reyna að fela það þegar roðinn færist yfir kinnina. Það muna allir eftir fyrstu ástinni, fyrsta skotinu og hvolpalátunum. Fyrsta dansinum á ballinu og fiðrildinu í maganum þegar ástin var til staðar. Þar sem gleðin er, þar er jú líka sorg, það muna margir eftir sorginni en gleðin er samt það sem stendur upp úr. Vissulega hefur lífið ekki verið dans á rósum hjá mörgum og sorgina hafa margir upplifað, sumir meira en aðrir. Heldra fólk hefur kennt mér að lífið er alls konar, við erum alls konar og við berum alls Þankastrik ,,Þar sem gleðin er, þar er jú líka sorg, það muna margir eftir sorginni en gleðin er samt það sem stendur upp úr.” konar með okkur; gott og slæmt, allt til enda. Gleðin hér hefur líka kennt mér að við erum nánast öll eins. Við elskum flest að gleðjast, hlæja, fíflast, vinskap og félagsskap og það er alveg óháð aldri. Gleðin færir okkur vellíðan, hún fær okkur til að finnast við lifandi, finnast við skipta máli og umfram allt færir hún okkur magaverk af hlátri sem er yndisleg tilfinning. Það er alveg sama á hvaða aldri maður er, gleðin kveikir í manni lífslöngun, hressir, kætir og ætli hún, svei mér þá, lengi þá ekki lífið? Þess má geta að eldri maðurinn í upphafi sögunnar var minn besti vinur hér á Akureyri þar til hann lést. Við áttum margar góðar stundir hér þar sem við vorum með fíflalæti, sögðum sögur og horfðum út um gluggann, (á stelpurnar), fram að andláti hans. Ég fæ seint fullþakkað honum vinskapinn, þessi elska sem sneri mér alveg þarna á fyrstu mínútunum í nýju starfi. Takk Siggi Leós! Og nei, það er ekki ennþá búið að reka mig! Mig langar að yngri kynslóð hjúkrunarfræðinga fái tækifæri í næsta pistli og skora því á Sigrúnu Evu Sigurjónsdóttur, hjúkrunarfræðing hjá Heilsuvernd að skrifa næsta pistil.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.