Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 39
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 39
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh
Ásta Thoroddsen og Edda Dröfn
Guðrún Yrsa Ómardóttir og
Hulda S. Gunnarsdóttir
Aðalfundur samþykkti eftirfarandi ályktanir:
Mönnun hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh),
haldinn 26. maí 2021, lýsir yfir miklum áhyggjum af
niðurstöðu skýrslu á vegum heilbrigðisráðuneytisins
um greiningu á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila.
Það er óásættanlegt að mönnun hjúkrunarfræðinga
sé langt undir lágmarksviðmiðum embættis
landlæknis um hlutfall hjúkrunarfræðinga af
heildarfjölda starfsfólks er starfar við umönnun
aldraðra. Slík staða ógnar verulega gæðum og
öryggi öldrunarþjónustunnar. Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga skorar á heilbrigðisráðherra að
tryggja lágmarksmönnun hjúkrunarfræðinga til að
hægt verði að veita árangursríka og góða þjónustu við
íbúa hjúkrunarheimila. Til þess þarf að bregðast við
rekstrarhalla hjúkrunarheimilanna með nægjanlegu
fjármagni þannig að hægt verði að veita örugga og
góða þjónustu til framtíðar.
Stytting vinnuvikunnar
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh),
haldinn 26. maí 2021, fagnar styttingu vinnuvikunnar,
sem tók gildi 1. janúar 2021, hjá dagvinnufólki
og 1. maí hjá vaktavinnufólki. Þar sem stór hluti
hjúkrunarfræðinga er í vaktavinnu er stigið stórt
skref í þá átt að 100% vaktavinna jafngildi 80%
viðveru hjúkrunarfræðinga með þunga vaktabyrði.
Breytingarnar eiga að leiða til aukinna lífsgæða til
að vega upp á móti neikvæðum áhrifum vaktavinnu
á heilsu og öryggi og auðvelda starfsfólki þannig að
samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Þetta er stórt
framfaraskref í kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga. Því er
mikilvægt að hjúkrunarfræðingar nýti þetta tækifæri
sem best og leggist á eitt við að tryggja sem best
ávinninginn af styttingu vinnuvikunnar.
Fundarmenn lýstu annars ánægju sinni með fundinn
enda sögulegur í því samhengi að t.d. var samþykkt
lagabreyting sem gerir félaginu kleift að halda hér
eftir aðalfundinn með rafrænni kosningaþátttöku.
Eins var samþykkt ný stefna í hjúkrunar- og
heilbrigðismálum sem félagið mun nota að leiðarljósi
til ársins 2030.
Næsti aðalfundur félagsins er áætlaður 12. maí 2022.
Aðalfundur 2021
Hvatningarstyrkir Fíh og
styrkir úr B-hluta vísindasjóðs
Veittir voru fimm hvatningarstyrkir til frumkvöðla
í hjúkrun á Íslandi, hver að upphæð 500.000 kr.
Eftirfarandi hjúkrunarfræðingarnir fengu styrk:
Ásdís Elfarsdóttir Jelle, deildarstjóri sýkingavarnadeildar Landspítala.
Guðbjörg Pálsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár.
Jónína Hólmfríður Hafliðadóttir, frumkvöðull á sviði taugahjúkrunar.
Snæbjörn Ómar Guðjónsson, sérfræðingur í geðhjúkrun.
Sóley Bender prófessor, frumkvöðull í uppbyggingu fræðasviðs um
kynheilbrigðismál.
Sautján hjúkrunarfræðingar fengu styrk úr B-hluta
vísindasjóðs og heildarupphæð styrkja var
11.054.850 krónur.
Eftirtaldir hjúkrunarfræðingar fengu styrk:
Berglind Steindórsdóttir
Birna Rut Aðalsteinsdóttir
Brynja Ingadóttir
Elva Rún Rúnarsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Helga Bragadóttir
Kristín Þórarinsdóttir
Lilja Dögg Bjarnadóttir
Maria Finster Úlfarsson
María Kristánsdóttir
Ólafía Daníelsdóttir
Ragnheiður Guðmundsdóttir
Sigríður Zöega.
Sigríður Þóroddsdóttir
Sólrún Dögg Árnadóttir
Sólrún W. Kamban
Theja Lankathilaka
Harpa Júlía Sævarsdóttir Herdís Lilja, Margrét, Guðbjörg og Steinunn, starfsmenn Fíh
Halla Eiríksdóttir, varaformaður Fíh, eldhress að vanda