Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Qupperneq 54
ÚTDRÁTTUR
Lykilorð:
Mönnun hjúkrunarfræðinga, álag, öryggi, kulnun,
stefna stjórnvalda
Að viðhalda mönnun, tryggja að fólkið á gólfinu njóti öryggis
í starfi og hafi tækifæri til að veita faglega og viðunandi
heilbrigðisþjónustu er á meðal mikilvægustu viðfangsefna
stjórnenda í heilbrigðiskerfinu. Tilgangur þessarar greinar
er að skoða mannaflaspár til framtíðar, hvaða þættir valda
álagi á hjúkrunarfræðinga og hver framtíð þeirra er.
Leitað var að heimildum og rannsóknum í leitarvélum
Pubmed, EbscoHost, Google scholar, Scopus, Web of
science, ProQuest og Leitir.is. Leitarorð voru m.a. nurse,
patient care, quality of care, insufficient og patient ratings.
Niðurstöður sýndu að mönnun er ábótavant um allan
heim. Á Íslandi, sérstaklega eftir efnahagshrunið og nú enn
fremur í tengslum við covid-19-faraldurinn, hefur nýliðun
hjúkrunarfræðinga verið of lítil. Laun hjúkrunarfræðinga
voru talin of lág miðað við álag í starfi. Mikil undirmönnun
er á vaktalínum, starfsfólk er sent á milli eininga og hlutfall
erlends vinnuafls og starfsfólks í gegnum starfsmannaleigur
hefur hækkað. Hlutfallslega fleiri hjúkrunarfræðingar og
stjórnendur finna fyrir kulnun í starfi. Með hækkandi lífaldri
fólks munu körfur á gott heilbrigðiskerfi aukast þar sem þörf
verður fyrir sífellt flóknari meðferð. Eins og staðan er í dag
er vöntun á heilbrigðisstarfsfólki og mun eftirspurnin aukast
á komandi árum. Því má segja að heilbrigði og vellíðan fólks
sé í hættu ef ekki tekst að ráða bót á mönnunarvandanum.
Stjórnvöld verða að taka málið föstum tökum og
innleiða stefnu sem stuðlar að því að gera starfsumhverfi
hjúkrunarfræðinga eftirsóknarvert, auka menntunarstig og
tryggja öryggi og bæta kjör. Stytting vinnuvikunnar gæti
dregið úr álagi en gæti líka aukið álag ef ekki er bætt úr
grunnmönnun því annars verður meira álag á þá sem eru á
staðnum.
Engum er hjúkrað
ef enginn hjúkrar:
Stóra vandamál stjórnandans, að
tryggja faglega mönnun til framtíðar
ANNA MARÍA ÓMARSDÓTTIR
aðstoðardeildarstjóri LSH
HELGI ÞÓR LEIFSSON
sérfræðingur í skurðlækningum á SAk
HILDA HÓLM ÁRNADÓTTIR
hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri
á upplýsingatæknideild SAk
Höfundar