Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 55
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 55 Fræðigrein Tilgangur þessarar fræðslugreinar er að skoða og rýna í mannaflaspár til framtíðar, hvað verið sé að gera til að áætla þá þörf, hvaða þættir helst valda því að hjúkrunarfræðingar hverfa til annarra starfa og loks verður litið til stefnu og ráðstafana stjórnvalda til að bæta mönnun til framtíðar. Heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga er fast í vítahring manneklu, mismikilli eftir landshlutum og stofnunum, en sums staðar þannig að gengur nærri gæðum og öryggi skjólstæðinga og starfsfólks. Vandi stjórnenda er mikill þegar kemur að því að manna vaktir m.t.t öryggis og gæða (Heilbrigðisráðuneytið, 2020a). Til að geta haldið úti góðu og skilvirku heilbrigðiskerfi þarf ýmislegt að vera til staðar. Menntað, hæft og áhugasamt starfsfólk er meðal þeirra nauðsynlegu skilyrða sem þarf að uppfylla í því tilliti. Það verður að vera unnt að takast á við þann vanda sem til staðar er og upp getur komið hverju sinni (Aiken o.fl., 2017). Í greiningu á vinnumarkaði hjúkrunarfræðinga frá árinu 2017, sem unnin var fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, var gert ráð fyrir að rúmlega 400 hjúkrunarfræðinga myndi vanta til starfa á Íslandi árið 2021 (Guðbjörg Pálsdóttir o.fl., 2017). Ísland er ekki eina landið sem glímir við skort á heilbrigðisstarfsmönnum. Þessi mannekla er stórt alþjóðlegt vandamál því að vaxandi eftirspurn er eftir vinnuframlagi hjúkrunarfræðinga um allan heim (Drennan og Ross, 2019). Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin gerir ráð fyrir aukinni þörf heilbrigðisstarfsmanna á komandi áratugum, m.a. vegna fjölgunar eldra fólks og aukningar á lífstílstengdum sjúkdómum (World Health Organisation, 2013). Niðurstöður rannsókna, bæði erlendra sem innlendra, sýna að æ fleiri heilbrigðisstarfsmenn leiða hugann að því að segja upp núverandi starfi innan nokkurra mánaða og leita á önnur mið (Jana Kristín Knútsdóttir o.fl., 2019). Úttekt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar frá 2013 gerði ráð fyrir að um 40 prósent hjúkrunarfræðinga í þróuðum löndum myndi hætta að starfa innan heilbrigðiskerfisins á næsta áratug vegna vinnuálags, krefjandi umhverfis og lágra launa (World Health Organisation, 2013). Það er ljóst að engum verður hjúkrað ef enginn hjúkrar. Hvað er viðunandi heilbrigðisþjónusta? Stóru spurningunni um hvaða skilyrði hjúkrunarþjónustan þarf að uppfylla, þannig að hún teljist vera viðunandi bæði fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem veitir hana og skjólstæðinga, er ekki auðvelt að svara. Það þarf ekki margar rannsóknir til að sýna fram á að mannekla kemur niður á gæðum í þjónustu og árangri meðferðar. Að nægilega margt fólk sé í boði til að annast sjúklinga er augljóslega skilyrði fyrir því að það sé á annað borð mögulegt. Engum er hjúkrað ef enginn hjúkrar. Erfitt er að segja til um hversu marga hjúkrunarfræðinga þarf á hverja 1000 íbúa til að tryggja viðunandi umönnun og meðferð. Ekki er hægt að nefna eina ákveðna tölu því hún verður aldrei meira en viðmiðunartala og verður alltaf breytileg eftir hjúkrunarþyngd og sérsviðum (Saville o.fl., 2019). INNGANGUR ENGUM ER HJÚKRAÐ EF ENGINN HJÚKRAR Gefin var út heilbrigðisstefna árið 2019 fyrir íslenska heil- brigðisþjónustu og gildir hún til ársins 2030. Þar kemur fram að heilbrigðisráðuneytið viðurkennir vandann og að á honum þurfi að taka (Heilbrigðisráðuneytið, 2019). Á síðustu árum hafa verið settir saman faghópar sem eiga að vinna að því að koma með tillögur um hvernig hægt er að brúa mönnunargatið í heilbrigðiskerfi okkar (Heilbrigðisráðuneytið, 2020a; Heilbrigðisráðuneytið, 2020b). Til að skoða þetta nánar veltum við fyrir okkur eftirfarandi rannsóknarspurningum: Útskrifum við nægilega margt faglært heilbrigðisstarfsfólk? Geta stjórnendur tryggt gæði og öryggi starfsfólks og skjólstæðinga? Hvaða þættir valda auknu álagi á hjúkrunarfræðinga? Hver er framtíð hjúkrunarfræðinga? Aðferð við gagnaöflun Við gagnaöflun fyrir vinnslu þessarar greinar var stuðst við nokkrar leitarvélar. Leitað var eftir heimildum og rannsóknum í eftirfarandi leitarvélum: Pubmed, EbscoHost, Google scholar, Scopus, Web of science, ProQuest og Leitir.is. Leitarorð, sem voru notuð til þess að þrengja leitina, voru m.a. „nurses“, „nursing staff“, „patient care“, „effect on patient“, „patient safety“, „lack of“, „shortage“, „workforce shortages“, „deficiency“ og „insufficient“. Einnig var leitað eftir „quality of care“, „patient mortality“, „patient ratings“. Þessum leitarorðum var blandað saman við leitina og stundum stuðst við ákveðin hugtak, t.d. patient safety. Innlendar heimildir voru meðal annars óbirt rannsókn meðal starfsmanna SAk frá í febrúar 2021 um álag í starfi og upplýsingar úr óbirtri skýrslu hagdeildar Landspítalans (Kristlaug H. Jónasdóttir og Elísabet Guðmundsdóttir 2021). Niðurskurður og sparnaður eftir efnahagshrunið árið 2008 hafði mikil áhrif á heilbrigðiskerfið hér á Íslandi. Starfsálag jókst til muna samfara niðurskurðarkröfu, og heilbrigðis- kerfinu var skorinn þröngur stakkur. Þetta hafði neikvæð áhrif á starfsánægju starfsfólks innan heilbrigðiskerfisins. Langvarandi áhrif af álaginu hafa sagt til sín undanfarin ár með auknum fjarvistum starfsmanna og það eykur síðan útgjöld stofnana út af aukavöktum annarra og því fylgir aukið álag á allan hópinn (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2016). Kauplausar fjarvistir hjúkrunarfræðinga árið 2005, þ.e. eftir að veikindaréttur er fullnýttur, voru að jafnaði eitt stöðugildi hvern mánuð á Landspítala. Árið 2019 var um að ræða níu stöðugildi og er það gríðarleg aukning. Þegar skoðaðar eru veikindafjarvistir árið 2017-2018 annars vegar og 2018- 2019 hins vegar hækkar hlutfallið úr 10% í 20%. Meðalfjöldi

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.