Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 67

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 67
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 67 og mikilvægum þáttum í fræðslu kransæðasjúklinga (Ghisi o.fl., 2014b; Mosleh o.fl., 2017). Einnig var spurt hvort þátttakendur hefðu fengið fræðslu frá heilbrigðisstarfsfólki í sjúkrahúslegunni (já/nei) og hversu vel fræðsluþörfum var sinnt fyrir útskrift, svarmöguleikar voru fjórir (mjög vel – að mestu – að litlu leyti – alls ekki). Bakgrunnsupplýsingum um aldur, kyn, hjúskaparstöðu, búsetu, innlagnarástæðu, legutíma og fyrri innlagnir vegna kransæðasjúkdóms var safnað úr sjúkraskrá en einnig var hæð og þyngd mæld til að reikna líkamsþyngdarstuðul. Með spurningalista var aflað upplýsinga um menntun, hvort tekjur dygðu til nauðsynlegra útgjalda, reykingar, hreyfingu, einkenni kvíða og þunglyndis og trú á eigin getu. Hreyfing var metin með „Adapted version of the leisure time physical activity questionnaire“ (PA questionnarie) en það er spurningalisti sem lýtur að hreyfingu undanfarna þrjá mánuði. Listinn var upphaflega saminn af Saltin og Grimby (1968) og hann hefur síðan verið notaður til að meta hreyfingu hjá yfir 600.000 manns og hefur gott forspárréttmæti (Grimby o.fl., 2015). PA-hreyfilistinn hefur fjóra svarmöguleika: Aðallega kyrrseta – létt líkamleg áreynsla ≥ 2½ klst/viku – hreyfing með talsverðri áreynslu ≥2½ klst/viku – stíf reglubundin þjálfun oft í viku, samtals í minnst fimm klukkustundir, þar sem líkamleg áreynsla er mikil (Saltin og Grimby, 1968). Einkenni kvíða og þunglyndis voru metin með „Hospital Anxiety and Depression Scale“ (HADS), möguleg stig eru 0-21 fyrir hvorn kvarða og þeir sem fá 8 stig og meira teljast vera með einkenni kvíða eða þunglyndis. Mælitækið hefur lengi verið notað á Íslandi og próffræðilegir eiginleikar íslensku útgáfunnar reynst fullnægjandi (Jakob Smári o.fl., 2008). Trú á eigin getu var metin með „Self-confidence scale“ sem inniheldur 6 staðreyndir og svarmöguleika frá 1 = ekki viss til 4 = alveg viss. Reiknaður er staðlaður stigafjöldi, 0-100, þar sem fleiri stig þýða meiri trú á eigin getu (Dickson o.fl., 2017). Innri áreiðanleiki (alfa-stuðull) kvarðans í þessari rannsókn mældist 0,84 og er sambærilegur við bandaríska rannsókn á próffræðilegum eiginleikum kvarðans (α = 0,84) (Dickson o.fl., 2017). Greining gagna Lýsandi tölfræði var notuð til að lýsa bakgrunni þátttakenda. Meðaltal og staðalfrávik var reiknað fyrir samfelldar breytur og tíðni og hlutföll fyrir flokkabreytur. Búseta í dreifbýli og þéttbýli var skilgreind eftir póstnúmerum (þéttbýli: póstnúmer 101-170, 200-225, 270-276, 600-603; dreifbýli: önnur póstnúmer). Breytan hjúskaparstaða var flokkuð í tvíkosta breytu fyrir gagnagreiningu: Annars vegar þátttakendur í sambúð, kvæntir/giftir og hins vegar einhleypir, fráskildir og ekklar/ekkjur. Breytan um hvort tekjur heimilisins duga fyrir útgjöldum var einnig flokkuð í tvíkosta breytu, já og nei. Þeir sem svöruðu að tekjur dygðu, þeir gætu lagt fyrir eða að tekju rétt dygðu, voru flokkaðir sem já, tekjur duga. Þeir sem svöruðu að tekjur dygðu sjaldan eða aldrei voru flokkaðir sem nei, tekjur duga ekki. Virkir reykingamenn voru skilgreindir sem þeir sem reyktu síðastliðinn mánuð fyrir innlögn. Þátttakendum var skipt í þrjá flokka eftir líkamsþyngdarstuðli: < 25 kg/m2 (kjörþyngd); ≥ 25- 29,9 kg/m2; (ofþyngd) og ≥ 30kg/ m2 (offita). Í gagnagreiningu á þekkingu (Þekking-KRANS) voru útilokaðir spurningalistar þar sem vantaði 10% eða meira af svörum. Meðaltal þekkingar var borið saman við bakgrunnsbreytur með fylgniprófum og stikuðum prófum (t-prófi og einhliða dreifigreiningu). Línuleg fjölbreytuaðhvarfsgreining (enter- aðferð) var gerð til að greina hvaða bakgrunnsþættir spáðu fyrir um þekkingu. Valdar voru þær bakgrunnsbreytur sem höfðu marktæka fylgni við þekkingu eða fyrri rannsóknir hafa sýnt tengsl við þekkingu. Gögnin voru greind með SPSS, útgáfu 26. Miðað var við marktektarmörk p < 0,05. Siðfræði Rannsóknin var unnin í samræmi við ákvæði Helsinki- yfirlýsingarinnar (World Medical Association, 2013). Vísindasiðanefnd veitti leyfi fyrir rannsókninni (Tilv.:17-159) sem og framkvæmdastjórar lækninga á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þátttakendur fengu munnlegar og skriflegar upplýsingar um rannsóknina, tækifæri til að spyrja spurninga og skrifuðu undir upplýst samþykki áður en gagnasöfnun hófst. Ritrýnd grein | Scientific paper Alls tóku 445 sjúklingar þátt í rannsókninni, meðalaldur þeirra var 64,1 ár (sf 9,1) og 80% voru karlmenn. Fyrri innlögn vegna kransæðasjúkdóms var skráð hjá 45% og 47% höfðu lagst brátt inn. Meðallegutími var 3,2 dagar (0-31 dagur, sf 4,8) og 51% þátttakenda dvöldu sólarhring eða styttra á sjúkrahúsi. Upplýsingar um bakgrunn þátttakenda má sjá í töflu 1. Þekking tengd kransæðasjúkdómi mældist að meðaltali 13,6 stig (sf 3,3). Þekkingin mældist mest á sviði næringar og minnst á sviði sálfélagslegrar áhættu (p < 0,001). Tafla 2 sýnir niðurstöður um sjúkdómstengda þekkingu, þar með talið meðaltal stiga við hverri spurningu Þekking-KRANS spurningalistans. Þær spurningar sem flestir þátttakendur (94%) svöruðu rétt lutu að breytanlegum áhættuþáttum kransæðasjúkdóma, leiðum til þess að stjórna blóðþrýstingi og lýsingu á brjóstverk (92%). Þær spurningar sem fæstir svöruðu rétt lutu að áhrifum mataræðis á kólesteról í blóði (25%), áhrifum kæfisvefns á endurtekið hjartaáfall (32%) og verkunarmáta kólesteróllækkandi lyfja (4%) (tafla 2). Alls sögðust 89% þátttakenda hafa fengið fræðslu frá heilbrigðisstarfsfólki í sjúkrahúslegunni um hjartasjúkdóm sinn og meðferð hans. Meirihluti þátttakenda (81%) sagði að fræðsluþarfir þeirra hefðu verið uppfylltar fyrir útskrift, þar af 34% mjög vel. Jafnframt sögðust flestir hafa mikla eða mjög mikla þörf fyrir fræðslu um sjúkdóminn, meðferð hans og viðbrögð við einkennum (71-76%). Hugsanleg kynlífsvandamál (32%) og reykingar (16%) voru þeir þættir sem fæstir sögðust hafa mikla eða mjög mikla þörf fyrir fræðslu um. Af þeim 18% sem reyktu sögðust 30% hafa mikla eða mjög mikla þörf fyrir fræðslu um reykingar. Fræðsluþarfir fyrir hvert efnisatriði má sjá á mynd 1. NIÐURSTÖÐUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.