Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 79
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 79
Tafla 3. Yfirlit yfir niðurstöður rannsóknar
... þess vegna var búið að byggjast svona rosalega mikið
upp inni í líkamanum af því að allar þessar tilfinningar,
sem höfðu komið upp, þær fengu aldrei neinn farveg. Þær
voru bara bældar niðri, geymdar inni í líkamanum, inni í
undirmeðvitundinni, og svo bara safnaðist þetta saman
og bjó til þetta sjúka ástand.
Þegar áföllin vörðu um langan tíma skapaðist langvarandi
streita og álag. Steinar lýsti reynslu sinni af því að eiga
langveikt barn: „Þú veist, maður er einhvern veginn bara alltaf
á vaktinni. Hvort sem maður er hjá barninu eða ekki og þetta
bara svona ... smám saman þá étur þetta mann upp ... þetta er
svona langvarandi stress og álag.“ Sif greindi frá reynslu sinni
af langvarandi streitu vegna áfalla í æsku á eftirfarandi hátt:
„Ég átti aldrei neinn öruggan stað þegar að ég var að alast
upp. Út af því þá fékk ég þetta forrit inn í hausinn á mér að ég
væri aldrei örugg.“
Þegar áföllin dundu skyndilega yfir varð mikið og snöggt
tilfinningauppnám með sterkum tilfinningum sem gátu
verið á sama tíma yfirþyrmandi og lamandi. Ótti, hræðsla og
vanmáttur voru ríkjandi tilfinningar þegar áföllin áttu sér stað
og þær breyttust síðan í andlega vanlíðan og endurupplifanir
af atburðunum. Þátttakendur glímdu einnig við erfiðleika
með svefn þar sem þeir fengu martraðir og endurupplifðu
um leið tilfinningarnar frá áfallinu. Óttinn viðhélst og það
hafði þau áhrif að þátttakendur forðuðust aðstæður sem
tengdust áfallinu. Tinna lýsti upplifun sinni af umferðarslysi á
eftirfarandi hátt: „Ég gat ekki labbað yfir gangbrautir, ég bara
gat ekki neitt tengt umferð. Ég var bara hrædd við að keyra
líka.“
„Það er búið að greina mig með allan fjandann.“
Heilsufarslegar afleiðingar áfalla.
Þátttakendur greindu frá ýmsum heilsufarslegum
vandamálum í kjölfar áfallanna. Tímabil viðvarandi vanlíðanar
og oft og tíðum kvíða eða stöðugrar streitu fylgdu í kjölfar
áfallanna enda höfðu allir þátttakendurnir verið greindir með
áfallastreitu af lækni, sálfræðingi eða geðhjúkrunarfræðingi.
Það lýsti sér í margbreytilegum andlegum og líkamlegum
einkennum sem ollu þeim verulegri skerðingu á lífsgæðum.
Meðal andlegra einkenna voru kvíði, þunglyndi, brotin
sjálfsmynd, sjálfsvígshugsanir, áfallastreita og erfiðleikar
í samskiptum. Einnig birtust erfiðar tilfinningar, svo sem
sorg, ótti, reiði, gremja, pirringur, vonbrigði, tómleiki,
einmanaleiki og hræðsla. Allir nema einn þátttakandi lýstu
einnig líkamlegum eða sállíkamlegum einkennum, eins og
verkjum, þreytu, að gnísta tönnum, vefjagigt, svefnleysi,
minnkuðu skammtímaminni, parkinson-einkennum, s.s.
skjálfta í höndum, liðverkjum, svima og sjóntruflunum. Hluti
þátttakenda gerði sér ekki grein fyrir því að orsakir líkamlegra
einkenna mætti rekja til áfalla sem þeir höfðu ekki unnið úr, en
fundu það síðan í dáleiðslunni að orsökin lægi þar.
Ída varð fyrir einelti í grunnskóla og sagðist hafa upplifað
vanrækslu í uppeldinu þar sem tilfinningalegum þörfum
hennar hafi ekki verið fullnægt. Hún sagðist ekki hafa munað
eftir sér öðruvísi en með kvíða sem hún lýsti svo: „Hræðslu
við að passa ekki inn, held ég, að vera ekki nóg, eða finnast
ég ekki vera nóg.“ Hún sagðist hafa verið uppfull af erfiðum
tilfinningum sem stjórnuðu henni alfarið. Hrafn var einnig að
kljást við kvíða og erfiðar tilfinningar eins og mikla reiði sem
hafði mikil áhrif á líf hans. Samskipti hans við aðra voru oft
lituð af reiði þar sem hann átti til dæmis erfitt með að vera
rólegur í samskiptum og æsa sig ekki. Bára hafði verið með
ýmis heilsufarsvandamál í gegnum tíðina og var meðal annars
með kvíða og þunglyndi: „Ég bara einhvern veginn, fór ... alveg
í algjört svað, sko ... þarna var ég ekki búin að fara í bað í 3
vikur, ekki búin að gera neitt, fór bara úr rúminu, á klósettið og
inn í stofu.“
Sif byrjaði að fá verki, fyrst í baki, sem á stuttum tíma dreifðust
um allan líkamann og urðu til þess að hún átti erfitt með að
vinna heilan vinnudag. Hún lýsti verkjunum sem óbærilegum
og væri hreinlega „að drepast úr verkjum“. Þreytan sem fylgdi
varð til þess að hún gat ekki unnið heilan vinnudag nema að
fara heim úr vinnu í hádeginu að leggja sig.
Bergur þjáðist af heilsukvíða og svaf ekkert þegar hann var
sem verstur. Hann var sannfærður um að hann væri kominn
með liðagigt og parkinson-sjúkdóm:
Maður fer að segja fólki frá því að maður sé að deyja. Þú
ert bara í ömurlegu lífi. Þetta er bara næstum því eins
vondu lífi og hægt er að hugsa sér, að vera í vondum
heilsukvíða. Hverja einustu mínútu dagsins ertu að hugsa
að liðirnir séu að hrynja og á leið í hjólastól.
Þátttakendur höfðu farið í gegnum endurupplifanir og
martraðir tengda áföllunum, eins og Tinna lýsti: „Ég var
bara sofandi og öskra [...] já, ég bara upplifði hverja einustu
hreyfingu, hvert einasta augnablik, þessa hræðslu þegar að
sjokkið kom, sársaukann.“ Upplifun Mögnu var svipuð: „Fékk
bara svona trámatíska drauma og, þú veist, vaknaði bara með
hjartslátt, vaknaði bara kófsveitt með andfælum.
„Ég er búinn að fara í alveg skrilljón
sálfræðimeðferðir, geðmeðferðir ...“
Reynsla af öðrum meðferðarleiðum.
Þeir þátttakendur sem upplifðu áföll í æsku höfðu ekki leitað
sér aðstoðar fyrr en á fullorðinsárum. Allir þátttakendur nema
einn höfðu leitað sér hjálpar hjá ýmsum fagaðilum í tengslum
við heilsufarsvandamál áður en þeir reyndu dáleiðslumeðferð.
Ástæður þess að þátttakendur fóru í dáleiðslumeðferð voru
mismunandi. Sumir höfðu heyrt um dáleiðslu eða fengið
ábendingar um hana frá kunningjum en öðrum boðið
að fara í hana af dáleiðslumeðferðaraðilanum í kjölfar
geðmeðferðarviðtals.
Þátttakendur höfðu farið til lækna, sálfræðinga, sjúkraþjálfara,
kírópraktora og osteopata. Helmingur þeirra sagði að þessi
úrræði hefðu ekkert gert fyrir sig og ekki verið unnið með
orsök vandans: „Létu mig bara fá pillur og gátu ekkert gert fyrir
mig,“ sagði Sif. Hinn helmingurinn taldi alla aðstoð og meðferð
hafa hjálpað að einhverju leyti og töldu að sumar tegundir
meðferðar hefðu unnið vel með dáleiðslunni, svo sem hugræn
atferlismeðferð (HAM) og Eye Movement Desensitzation and
Reprocessing (EMDR).
„Að kryfja hlutina.“
Reynsla af dáleiðslumeðferð.
Allir lýstu dáleiðslumeðferð sem einstakri meðferð þar sem
um djúpa tilfinningavinnu væri að ræða. Ída sagði: „Ég held
að málið sé að þetta fer einhvern veginn meira í grunninn,
eða beint í kjarnann.“ Þátttakendur lýstu því að þegar vinnan
Ritrýnd grein | Scientific paper