Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 81

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 81
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 81 mikil áhrif á ónæmiskerfi líkamans þannig að fólk verður viðkvæmara fyrir ýmsum heilsufarsvandamálum (Danese og Lewis, 2017; Yan, 2016). Sálræn áföll í æsku geta valdið tilfinningalegri vanlíðan, sjúkdómum og ýmsum líkamlegum einkennum (Sigríður Hrönn Bjarnadóttir o.fl., 2014; Sweeney o.fl., 2018), eins og fimm þátttakendur upplifðu í kjölfar erfiðra uppeldisaðstæðna þar sem ofbeldi af ýmsu tagi átti sér stað og það leiddi síðar til heilsubrests. Niðurstöður þessarar rannsóknar um samskiptaerfiðleika, skapgerðarbresti og vímuefnanotkun, sem nokkrir þátttakendur höfðu átt við að stríða, staðfestir einnig niðurstöður fyrri rannsókna Stinson og félaga (2016) og Wamser-Nanney og Vandenberg (2013) þess efnis að þeir sem verða fyrir áföllum á barnsaldri leita frekar í vímuefni og eiga frekar við skapgerðarbresti að stríða á fullorðinsárum. Áður en þátttakendur reyndu dáleiðslumeðferð höfðu þeir leitað aðstoðar víða með heilsufarsvandamál sín, svo sem hjá læknum, sálfræðingum og sjúkraþjálfurum, en með ófullnægjandi árangri. Hjá þessum meðferðaraðilum hafði áherslan helst verið á að vinna með einkennin, s.s. verki og kvíða, án þess að tengsl þeirra við áföll væru skoðuð. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að rekja má mörg af þeim andlegu og líkamlegu einkennum, sem þátttakendur lýstu, til sálrænna áfalla fyrr á ævinni (Danese og Lewis, 2017; Kessler o.fl., 2017; Sigríður Hrönn Bjarnadóttir o.fl., 2014). Líkami og sál eru órjúfanleg heild þar sem samspil er á milli hugar, tauga- og ónæmiskerfis (Danese og Lewis, 2017; Yan, 2016). Við greiningu og meðferð einkenna á borð við þau sem þátttakendur í þessari rannsókn glímdu við er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk hafi í huga að þau geta átt rætur sínar að rekja til sálrænna áfalla sem einstaklingurinn gerir sér ekki alltaf sjálfur grein fyrir eða hefur ekki unnið úr. Þátttakendur sögðust hafa komist í betri tengsl við eigin tilfinningar í dáleiðslumeðferðinni og þannig áttað sig á orsök heilsufarsvandamálanna. Þá fannst þeim dáleiðslumeðferðin vera mjög skilvirk þar sem unnið hafði verið á rót vandans en það hefði ekki verið gert hjá öðrum meðferðaraðilum. Það má því ætla að það væri ávinningur af því fyrir notendur heilbrigðiskerfisins að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk afli sér menntunar til að geta beitt dáleiðslumeðferð við ýmum heilsufarsvandamálum. Hver manneskja er einstök og mikilvægt að hafa fjölbreytt meðferðarúrræði til að ná sem víðtækustum og bestum árangri. Þátttakendur lýstu dáleiðslumeðferð sem einstakri meðferð þar sem unnið væri djúpt innra með þeim, með tilfinningar, líðan og minningar og þetta skilaði sér í bættum lífsgæðum. Einnig greindu þeir frá jákvæðum áhrifum á andlega líðan, líkamlega verki og ýmis önnur einkenni enda var sterkt samband á milli sálrænna og líkamlegra einkenna. Þessi árangur er í takt við niðurstöður fyrri rannsókna sem sýnt hafa jákvæðan árangur dáleiðslumeðferðar við að minnka verki og fleiri sállíkamleg einkenni (Ahmadi o.fl., 2018; Cowen, 2016; Taylor og Genkov, 2019; Thompson o.fl., 2019) sem og kvíða og þunglyndi (Bowker, og Dorstyn, 2016; Cowen, 2016; Ólöf Unnur Sigurðardóttir, 2008; Taylor og Genkov, 2019; Thompson o.fl., 2019). Þarna getur margt spilað inn í eins og að þátttakendur greindu frá því að öryggiskennd og traust til dáleiðarans hefði hjálpað til við að ná góðum árangri. Sýnt hefur verið fram á að fagleg umhyggja hjúkrunarfræðinga Ritrýnd grein | Scientific paper og annars heilbrigðisstarfsfólks og gott meðferðarsamband séu mikilvægir þættir við úrvinnslu áfalla og til að ná persónulegum þroska og vexti í kjölfarið (Hulda Sædís Bryngeirsdóttir o.fl., 2016). Margir þátttakendanna höfðu ekki áður haft vitneskju um að dáleiðsla væri mögulegt meðferðarúrræði. Viðhorf þeirra til dáleiðslu fyrir meðferðina var því ýmist að hafa enga trú á slíku eða finnast hún áhugaverð. Eftir dáleiðsluna voru allir þátttakendur ánægðir með meðferðina og mæltu með henni. Þátttakendum fannst vanta fræðslu til almennings um dáleiðslumeðferð og að hún þyrfti að vera jafn aðgengilegur meðferðarmöguleiki og aðrir innan heilbrigðiskerfisins. Slíkar ábendingar hafa komið fram í annarri íslenskri rannsókn þar sem sýnt var fram á gagnsemi dáleiðslumeðferðar til að bæta líðan og heilsu fólks (Ólöf Unnur Sigurðardóttir, 2008). Styrkur, takmarkanir og framtíðarsýn Styrkur þessarar rannsóknar felst einkum í því að niðurstöðurnar benda til gagnsemi dáleiðslumeðferðar við að vinna úr margvíslegum afleiðingum sálrænna áfalla. Niðurstöður benda einnig til að við greiningu og meðferð heilsufarsvandamála sé mikilvægt að horfa ekki einungis á einkennin heldur þarf einnig að hafa í huga að þau geta átt rætur að rekja til sálrænna áfalla fyrr á ævinni. Slíka þekkingu má nýta við skipulagningu á áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu til að draga úr áhrifum nýrra áfalla á heilsu og líðan síðar sem og við meðferð á heilsufarslegum afleiðingum áfalla fyrr á ævinni. Niðurstöðurnar endurspegla þó einungis reynslu níu þátttakenda og því er ekki hægt að alhæfa út frá þeim. Mikilvægt er því að gera fleiri og stærri rannsóknir á efninu. Dáleiðsla hefur ekki verið mikið notuð í heilbrigðiskerfinu á Íslandi en er nú orðin viðurkennd hjúkrunarmeðferð (ICN, 2019). Það er ekki síst þess vegna sem þörf er á kynningu og ítarlegri rannsóknum á þessu sviði en einnig til að byggja öflugri þekkingargrunn um reynslu af árangri dáleiðslumeðferðar. Fróðlegt væri að rannsaka dáleiðslumeðferð við sálrænum áföllum út frá fleiri meðferðaraðilum, en þátttakendur þessarar rannsóknar höfðu allir fengið meðferð hjá einum og sama dáleiðslumeðferðaraðilanum. Þessi rannsókn sýnir ekki einungis hversu mikilvægt það er að vinna úr sálrænum áföllum heldur einnig mikilvægi þess, að fólk geti fundið meðferðarleið sem hentar því. Dáleiðslumeðferð getur því verið ákjósanlegur kostur í áfallamiðaðri þjónustu.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.