Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 90

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 90
90 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021 Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að viðhorf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á SAk til fjölskylduhjúkrunar sé almennt jákvætt. Niðurstöður eru í samræmi við aðrar sambærilegar rannsóknir sem gerðar hafa verið á Íslandi hvað varðar viðhorf hjúkrunarfræðinga til fjölskylduhjúkrunar (Blöndal o.fl., 2014; Svavarsdottir o.fl., 2015; Sveinbjarnardottir o.fl., 2011). Þegar hjúkrunarfræðingum finnst fjölskyldur vera krefjandi eða ef fjölskyldan sýnir miklar tilfinningar upplifa hjúkrunarfræðingar fjölskylduna frekar sem byrði. Wright og Bell (2009) fjalla um mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar skilji og vinni með viðhorf sín gagnvart fjölskyldum til þess að auðvelda samstarf við þær í meðferð. Komið hefur fram í rannsóknum að opið samtal, þar sem hjúkrunarfræðingur leggur áherslu á áhyggjur og spurningar fjölskyldu, getur dregið úr þjáningu hjá fjölskyldum (Benzein o.fl., 2008; Sveinbjarnardottir og Svavarsdottir, 2019). Þátttakendur með 15 ára eða lengri starfsreynslu höfðu jákvæðara viðhorf en þátttakendur með undir 5 ára starfsreynslu í þættinum fjölskyldan sem byrði. Það er sambærilegt og hefur áður komið fram í niðurstöðum (Benzein o.fl., 2008; Gusdal o.fl., 2017; Luttik o.fl., 2017; Sveinbjarnardottir o.fl., 2011). Reynsluleysi hjúkrunarfræðinga getur haft áhrif á það hvort þeir telji sig hafa tíma til þess að sinna fjölskyldum. Það má velta fyrir sér hvort reynslumeiri hjúkrunarfræðingar hafi meira vald til að stýra tíma sínum og geti því forgangsraðað með öðrum hætti (Benzein o.fl., 2008; Gusdal o.fl., 2017; Luttik o.fl., 2017; Svavarsdottir o.fl., 2015; Sveinbjarnardottir o.fl., 2011). Santos og samstarfsmenn (2017) fjölluðu um mikilvægi þess að reynsluminni hjúkrunarfræðingar fengju stuðning og þjálfun frá reynslumeiri hjúkrunarfræðingum. Ný rannsókn, þar sem áhersla var á fjölskylduhjúkrun í grunnnámi hjúkrunarfræðinga, sýndi strax í kjölfar útskriftar að þeir treystu sér til að veita fjölskylduhjúkrun. Nýútskrifuðu hjúkrunarfræðingarnir töldu sig jafnvel ráða betur við að veita fjölskylduhjúkrun en kollegar þeirra með meiri starfsreynslu (Swan og Eggenberger, 2021). Í niðurstöðum kom jafnframt fram að þátttakendur með viðbótarnám höfðu jákvæðara viðhorf til fjölskylduhjúkrunar á tíma 2 og er það sambærilegt við niðurstöður annarra rannsókna (Sveinbjarnardottir o.fl., 2011). Vert er að benda á að 97% þátttakenda á tíma 2 telja það vera almenna stefnu að hlúa að fjölskyldum á sinni deild og má túlka það sem góðan jarðveg til að koma stefnu SAk varðandi fjölskylduhjúkrun í framkvæmd. Niðurstöður rannsóknarinnar greina frá því að viðhorf þátttakenda breyttust ekki í innleiðingarferlinu en það eru sambærilegar niðurstöður og í rannsókn Blöndal og samstarfsmanna (2014) sem gerð var á skurðlækningasviði Landspítala. Það er hins vegar á skjön við rannsókn sem gerð var á öllum deildum Landspítala, nema á bráðamóttöku (Svavarsdottir o.fl., 2015). Hugsanleg skýring á óbreyttu viðhorfi getur verið að viðhorf í upphafi hafi verið jákvætt og því lítið svigrúm til breytinga. Í rannsókninni svöruðu þátttakendur spurningalistanum í annað sinn eftir 14 mánuði frá fyrstu fyrirlögn en það gæti verið of stuttur tími til þess að fá fram jákvæðara viðhorf. Í rannsókn Erlu Kolbrúnar og félaga voru til að mynda allt að 24 mánuðir á milli þess að þátttakendur svöruðu (Svavarsdottir o.fl., 2015). UMRÆÐUR og aðstoð við umönnun sjúklings ásamt því að undirbúa fjölskyldur undir útskriftir. Í þessum þætti komu fram vísbendingar um að tímaskortur væri hindrun í að veita fjölskylduhjúkrun. Mynd 1. Veitt fjölskylduhjúkrun í síðustu viku skv. lýsingum þátttakenda flokkuð í virknisvið Calgary líkansins. Virknisvið Calgary fjölskylduhjúkrunar Vitsmunalegir þættir Tilfinningalegir þættir Atferlislegir þættir Tími 1 Tími 2 Upplýsingar Fjölskyldufundur Fræðsla Unnið að útskrift Fjölskyldurfundur Upplýsingar Unnið að útskrift Samskipti í síma n=34n=52 n=12 Stuðningur Óformleg samskipti n=16 Virk hlustun Stuðningur Óformleg samskipti n=4Þátttaka fjölskyldu í umönnunn=8Þátttaka fjölskyldu í umönnun Viðhorf til fjölskylduhjúkrunar á SAk
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.