Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 28
28 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1 . tbl. 99. árg. 2023 Hver er ímynd hjúkrunarfræðinga hér á landi að þínu mati? Ég held að ímynd hjúkrunarfræðinga fari mikið eftir því á hvaða tímapunkti þú spyrð fólk út í hana. Þeir sem hafa verið í nálægð við störf hjúkrunarfræðinga, hvort heldur sem sjúklingur eða aðstandandur, telja störf hjúkrunarfræðinga mikilvæg og ímyndin er jákvæð. Þegar umræðan fer að snúast um kjaramál og annað er ímyndin hins vegar oft önnur og neikvæðari. Þegar fólk talar um einstaka hjúkrunarfræðinga er það oftast mjög jákvætt en ég tek eftir að það er oft meiri neikvæðni þegar talað er um stéttina eða hjúkrunarfræðinga sem heild. Hvernig sérðu hjúkrunarfræði sem fag þróast á næstu árum og áratugum? Ég held að það verði meiri sérhæfing í hjúkrun í framtíðinni. Ég fékk einkennilega spurningu á Bylgjunni um daginn þar sem spurt var hvort hjúkrunarfræðingar væru farnir að skipta sér meira af störfum lækna, ég held að það sé ekki rétt og lít þannig á að það sé frekar um að ræða meira samtal og samstarf á milli þessara stétta en áður var. Ég tel að það sé jákvætt að þessar tvær stéttir vinni meira saman, við vitum hvert mikilvægi lækna, hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta er og þetta er engin keppni. Þessar stéttar mega ekki horfa hver til annarrar út frá því hvort ein stéttin sé mikilvægari en önnur. Nú eru karlmenn hærra hlutfall af hjúkrunarfræðingum í mörgum öðrum löndum en hér á landi, hvers vegna heldur þú að við séum enn þá föst í fornöld þegar kemur að því að vera karlmaður í hjúkrunarfræði? Ég held að svarið við þessari spurningu sé einfalt. Ég held að margir ungir strákar sem eru að hugsa hvað þeir ætli að verða þegar þeir verða stórir leiði einfaldlega ekki hugann að því að hjúkrun gæti verið fyrir þá, að það sé möguleiki í stöðunni að velja hjúkrun. Hvernig breytum við þessu og fáum fleiri karlmenn til að læra hjúkrunarfræði? Við verðum að venja okkur á að tala ekki um hjúkrun sem kvennastarf og það byrjar hjá okkur sjálfum sem tilheyrum stéttinni. Það þarf að breyta hugsunarhættinum. Hefur þú skoðun á mönnunarvandanum og hvernig væri mögulega hægt að leysa hann? Það þarf leysa hann og ég ætla ekki að þykjast vera með neina töfralausn en við getum byrjað á að skrifa undir kjarasamning sem hjúkrunarfræðingar eru sáttir við og fer ekki í gerðardóm. Viðtal „Það þarf leysa hann og ég ætla ekki að þykjast vera með neina töfralausn en við getum byrjað á að skrifa undir kjarasamning sem hjúkrunarfræðingar eru sáttir við og fer ekki í gerðardóm.“ Hver er draumurinn? Eltast ekki endalaust við hamingjuna heldur finna hana og það er ég að gera. Að lokum hvaða áhugamál áttu sem efla andann og næra sálina? Útivist og hreyfing eins klassískt og það hljómar. Ég er í crossfit og fæ ágætis útrás þar en við ræðum þetta oft á geðdeildinni þar sem ég starfa að ef grunnþættirnir, svefn, hreyfing og mataræði eru í lagi þá fylgir oftast andlega heilsan með þegar maður er með gott fólk í kringum sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.