Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 67

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 67
1. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 67 Þörf fyrir hjúkrunarþjónustu Þörf fyrir hjúkrunarfræðinga ræðst af fjölmörgum þáttum sem hafa bein eða óbein áhrif á störf þeirra og starfsumhverfi. Meðal þessara þátta er mannfjöldi og samsetning hans, almennt heilsufar og félagsleg staða landsmanna, þróun meðferða, stefna stjórnvalda, gildandi lög og reglugerðir, ákvörðunum stjórnmála- og sveitarstjórnarmanna um forgangsröðun og ráðstöfun fjármagns og framboði á annarri heilbrigðis- og félagsþjónustu (Annesley, S.H. 2019). Almenningur gerir sífellt meiri kröfur um aukin gæði og framboð á heilbrigðisþjónustu, á sama tíma og virk þátttaka sjúklinga í ákvarðanatöku sem snýr að eigin meðferð verður algengari (Freitas, Silva, Minamisava, Bezerra, & Sousa, 2014). Gæði heilbrigðisþjónustu eru mæld út frá viðhorfum og upplifun sjúklinga og fjölskyldna þeirra af þjónustunni. Á tímum notendamiðaðrar þjónustu er hjúkrunarþjónusta lykilþáttur í mælingum á gæðum hennar (Merkouris og félagar, 2013 og Laschinger, Hall, Pedersen, & Almost, 2005). Þrátt fyrir að mikilvægi hjúkrunarfræðinga í heilbrigðiskerfinu sé viðurkennt, þá hefur skortur á fjármagni og takmarkað framboð á hjúkrunarfræðingum leitt til aukins vinnuálags, þess að sjúklingar fái ekki þá hjúkrun sem þeir þyrftu og erfiðleika við að manna lausar stöður (Milstein, R, & Schreyoegg, J. 2020, Scott A. P. og félagar 2019). Svo að finna megi farsæla lausn á þeim áskorunum, sem fylgja því að manna stöður hjúkrunarfræðinga í samræmi við dagleg verkefni þeirra, er mikilvægt að þekkja þá þætti sem móta starfsumhverfi þeirra hverju sinni og meta mismunandi áhrif þeirra (Saville, C.E. og félagar 2019). Breytingar á starfsumhverfi og verkefnum hjúkrunarfræðinga á Landspítala á árunum 2005-2019 Aukin hjúkrunarþyngd endurspeglar að sjúklingar eru flóknari og oft með marga undirliggjandi sjúkdóma, eins getur hún endurspeglað aukinn bráðleika en miðað við þróun á mannfjölda annars vegar og legudögum hins vegar má færa rök fyrir því að það séu aðeins veikustu sjúklingarnir sem fái meðferð í innlögn. Aukin hjúkrunarþörf kallar á aukinn mannafla í hjúkrun svo að hjúkrunarálag fari ekki yfir ásættanlega viðmiðunarmörk. Kalla breytingar á þyngd og formi hjúkrunarþjónustu sjálfkrafa á breytingar á eftirspurn eftir og þörf fyrir starfskrafta hjúkrunarfræðinga? Breytt samfélag Lýðfræðileg samsetning íslensks samfélags hefur breyst mjög mikið frá upphafi þessarar aldar, en um er að ræða breytingar sem eiga sér fá fordæmi, bæði í innlendum og erlendu samanburði. Hér er fyrst og fremst um að ræða mikla fjölgun aldraðra, veldisvöxt í fjölda erlendra ríkisborgara með varanlega búsetu hérlendis, komu erlendra ferðamanna til landsins og á allra síðustu árum sívaxandi fjölda einstaklinga í leit að alþjóðlegri vernd. Vegna lykilhlutverks Landspítala í íslenskri heilbrigðisþjónustu, liggur það í hlutarins eðli að breytingar sem þessar leiði til aukins umfangs og áskorana við útfærslu og skipulagningu hjúkrunar (American Association of Colleges of Nursing, 2022; Graetz, V. og félagar, 2017). Íslenska þjóðin var lengi vel tiltölulega ung í erlendum samanburði og heilbrigðiskerfið naut góðs af því (Neuman og félagar 2015, RegisteredNursing.org. 2022). Á síðasta áratug hefur aldurssamsetning þjóðarinnar breyst mikið, öldrun íslensku þjóðarinnar er í raun mun hraðari í dag en í nágrannalöndum okkar. Stórir árgangar fólks sem fæddust á árunum 1946-1964 svokallaðir „Baby Boomers“ skýra þessar miklu breytingar, en þessi fjölmenni hópur er að komast á þann aldur að þörf hans fyrir heilbrigðisþjónustu fer vaxandi. Á árunum 2010-2020 fjölgaði 60 ára og eldri um 37%, sem er 2-3 sinnum meiri hlutfallsleg fjölgun en annars staðar á Norðurlöndunum. Stærð eftirstríðsárganganna má rekja til þess að frjósemi íslenskra kvenna var lengi vel með því mesta sem gerðist í Evrópu. Sem dæmi þá var frjósemi íslenska kvenna tæp fjögur lifandi fædd börn á hverja konu á árunum 1950-1960 á meðan konur annars staðar á Norðurlöndunum eignuðust að meðaltali rétt rúmlega tvö börn. Útfærsla og veiting heilbrigðisþjónustu vegna hraðrar öldrunar tengdri fjölmennum árgöngum eftirstríðsáranna er mikil áskorun fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi, áskorun sem mun vera til staðar næsta áratuginn (Nordic Statistics, 2022 og Neuman, 2015). Svo virðist því sem Íslendingar standi nú frammi fyrir viðfangsefni sem nágrannalönd okkar voru að kljást við í lok síðustu aldar. Þó má færa fyrir því rök að verkefnið sé jafnvel enn stærra hér á landi þar sem meðal ævilengd er lengri í dag en hún var þegar nágrannaþjóðir okkar stóðu frammi fyrir þessu verkefni. Sem dæmi má nefna að ævilengd íslenskra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.