Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 86
Að rannsaka reynslu nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga af
fyrstu árunum í starfi með áherslu á áform þeirra um að
hætta í starfi og væntingar þeirra til hjúkrunarstjórnenda.
Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn var gögnum safnað
með opnum viðtölum við 12 hjúkrunarfræðinga sem
útskrifuðust með BS-gráðu í hjúkrunarfræði á árunum
2016-2020, átta konur og fjóra karlmenn. Tekin voru 1-2
viðtöl við hvern þátttakanda, alls 16 viðtöl.
Yfirþema rannsóknarinnar er svo átti maður bara að vera
tilbúinn, sem lýsir reynslu þátttakenda af því að finnast
gerðar óraunhæfar kröfur til þeirra miðað við starfsreynslu.
Þeir upplifðu að stuðningur væri ekki nógu markviss né
einstaklingsmiðaður, að stuðningsleysi dragi úr starfsánægju
og að samskipti hefðu tilhneigingu til að versna þegar álag
væri mikið. Þátttakendum fannst erfitt að aðskilja vinnu og
einkalíf og fundu þegar fyrir neikvæðum áhrifum streitu og
starfstengds álags svo sem verkjavandamálum, skertum
svefngæðum, síþreytu og jafnvel starfstengdum martröðum.
Þrír þátttakendur höfðu þegar kulnað í starfi. Flestir höfðu
hugleitt að hætta, sérstaklega þegar álag var mikið og
helmingur þátttakenda hafði áform um það. Ástæður sem
lágu að baki, auk mikils álags, voru lág laun, framkoma
samstarfsfólks, yfirmanna, yfirvalda og samfélagsins, erfiður
vinnutími og tilfinning um að vera ekki metinn að verðleikum.
Þátttakendur kölluðu eftir því að stjórnendur væru til
staðar með reglulegu samtali, góðu utanumhaldi og virkri
hlustun, gættu þess að álag og ábyrgð væru í samræmi við
reynslu, stuðluðu að starfsþróun og legðu rækt við styrkleika
þeirra. Margir töldu að kandídatsár þyrfti að vera í boði fyrir
hjúkrunarfræðinga meðan þeir öðluðust öryggi í starfi.
Framkoma gagnvart nýútskrifuðum hjúkrunar-
fræðingum þarf að endurspegla hversu dýrmætur
starfskraftur þeir eru. Mikilvægt er að styðja vel
við þá eins lengi og þeir þurfa. Stjórnendur gegna
mikilvægu hlutverki í aðlögun, líðan og öryggi í upphafi
starfsferils.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Lykilorð:
Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar, starfstengd streita,
stuðningur, hjúkrunarstjórnendur, fyrirbærafræði.
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Hjúkrunarfræðingarnir í rannsókninni
upplifðu misræmi á milli væntinga til starfsins
og hvernig það var í raun, töldu að stuðningur í
upphafi starfs væri ekki fullnægjandi og fundu
ekki til öryggis í starfi fyrr en eftir 1-3 ár. Flestir
höfðu hugleitt að hætta. Stjórnendur voru taldir
gegna mikilvægu hlutverki í að stuðla að öryggi
og vellíðan í starfi.
Hagnýting: Aukin þekking og dýpri skilningur
á reynslu nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga ætti
að nýtast hjúkrunarstjórnendum til að stuðla að
vellíðan þeirra í starfi á meðan aðlögun stendur,
með því að veita þann stuðning, utanumhald og
hvatningu sem þeir þarfnast.
Þekking: Niðurstöður dýpka þekkingu á reynslu
nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga á Íslandi og
gefa vísbendingar um hvernig stuðla megi að
úrbótum á starfsumhverfi þeirra.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Betri innsýn í reynsluheim nýútskrifaðra
hjúkrunarfræðinga getur skapað grundvöll
fyrir úrbótum á starfsumhverfi þeirra. Vonir
eru bundnar við að rannsóknin geti þannig
stuðlað að minna brottfalli nýútskrifaðra
hjúkrunarfræðinga úr stéttinni.
„Svo átti maður bara að vera
tilbúinn“: Reynsla hjúkrunar-
fræðinga af fyrstu árunum í starfi
Ritrýnd grein | Peer review