Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 83

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 83
1. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 83 Ritrýnd grein | Peer review Niðurstöður sýna að samviskubit og erfiðleikar við að samræma vinnu og fjölskyldu hafa áhrif á líðan og endurkomu stjórnenda eftir fæðingarorlof. Þættir sem geta reynst gagnlegir til að vinna gegn togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs eru meðal annars stuðningur í starfi, sveigjanlegur vinnutími, nýting á styttingu vinnuvikunnar og vilyrði til að vinna tímabundið heima til að brúa umönnunarbilið. Stuðningur næsta yfirmanns getur haft afgerandi áhrif á ætlun og getu stjórnanda til að halda áfram í sama starfi og þarf sérstaklega að huga að nýjum stjórnendum með stuðningi á borð við handleiðslu, stuðning jafningja og tækifæri til að eflast í starfi. Til að móta heildstæða mynd af þáttum sem stuðla að árangursríkri endurkomu hjúkrunarstjórnenda er þörf á áframhaldandi rannsóknum á reynslu þeirra af meðgöngu, fæðingarorlofi og endurkomu í Niðurstöður rannsóknarirnnar skapa nýja þekkingu um reynslu hjúkrunarstjórnenda, af endurkomu til vinnu eftir fæðingarorlof, en sambærileg rannsókn hefur ekki verið gerð hérlendis. Mögulegur veikileiki er að auglýst var eftir þátttakendum fyrir rannsóknina á samfélagsmiðlum en sú aðferð getur verið útilokandi fyrir þau sem eru ekki eða lítið virk á þeim vettvangi. ÁLYKTANIR STYRKUR OG TAKMARKANIR RANNSÓKNAR þáttum sem gerðu álagsstarfið þess virði og voru það allt lykilþættir innri starfshvatar, sem rannsóknir hafa sýnt að eru veigamikil atriði þegar kemur að því hvort hjúkrunarfræðingur helst í starfi eða ekki (Zeng o.fl., 2022). Reynsla hjúkrunarstjórnendanna gaf sterklega til kynna samviskubit gagnvart bæði vinnu og fjölskyldu og samræmist það niðurstöðum rannsóknar Júlíusdóttur o.fl. (2018). Líklegt er að hér sé að verki sú hugræna byrði sem konur bera fram yfir karla (Robertson o.fl., 2019) auk samlegðaráhrifa við stjórnendahlutverkið og kynjaðan veruleika (Bernhardt og Bünning, 2021). Meðal þátta sem gagnast til að vinna gegn samviskubiti vinnandi mæðra eru aðgengileg barnagæsla, frítími utan launaðrar vinnu og aukin þátttaka feðra við umönnun barna (Collins, 2021). Þessir þættir eru nú þegar í þróun hér á landi og má meðal annars nefna óframseljanlegan rétt feðra til fæðingarorlofs (Ásdís A. Arnalds o.fl., 2021), sem hefur stuðlað að aukinni þátttöku þeirra í umönnun barna (Andrea Hjálmsdóttir og Marta Einarsdóttir, 2019). Miðað við reynslu stjórnendanna má sjá að vissulega eru tækifæri til frekari úrbóta í kringum hið svokallaða umönnunarbil, sem er tíminn frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til barn byrjar í leikskóla. Er þetta þekkt ákall meðal íslenskra foreldra (Andrea Hjálmsdóttir og Marta Einarsdóttir, 2019). Stytting vinnuvikunnar í allt að 36 stundir á viku samkvæmt kjarasamningum er tilraun til að gera samþættingu vinnu og fjölskyldulífs auðveldari (Fjármála- og efnahagsráðuneytið, e.d.) og myndi hér einnig falla inn sem hjálplegur þáttur ef stjórnendur gætu raunverulega nýtt sér hann, sem er annað en kom fram í niðurstöðum. Er það verðugt verkefni mannauðsstjórnenda að gera stjórnendum kleift að nýta styttingu vinnuvikunnar. Áberandi var hvernig þroski stjórnandans í starfi hafði áhrif á hversu farsæl endurkoman var. Eiginleikar eins og sjálfsöryggi í starfi, getan til að setja mörk og reynsla af stjórnun virtust vega þungt, sem samræmist því að trú á eigin getu (Kalkan, 2020), virkni og áhrif í starfi (Nielsen og Marrone, 2018), og það að búa yfir bjargráðum til að takast á við streitu (Sandra Sif Gunnarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2020) eru þættir sem auka vellíðan í starfi. Ljóst er að tækifæri til að læra og eflast í starfi geta verið mikilvæg til að stuðla að góðri endurkomu. Sérstakar þakkir fá hjúkrunarstjórnendurnir sem voru tilbúnar til þess að deila reynslu sinni við gerð þessarar rannsóknar. Einnig fær Janus endurhæfing þakkir fyrir sveigjanleika og afnot á aðstöðu við framkvæmd rannsóknarinnar og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir veittan styrk. ÞAKKIR vinnu. Áhugavert væri að kanna hvort skipulaður stuðningur næsta yfirmanns fyrstu mánuðina eftir endurkomu hefði áhrif á reynslu hjúkrunarstjórnenda af endukomu eftir fæðingarorlof.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.