Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 30
30 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1 . tbl. 99. árg. 2023
Umfjöllun
Söguleg verkföll
í Bretlandi
Þegar þessi grein er skrifuð eru liðnir meira en 100 dagar
frá því verkföll hjúkrunarfræðinga í Bretlandi voru
boðuð og enginn endir virðist vera í sjónmáli. Kröfur
hjúkrunarfræðinga snúa fyrst og fremst að bættum
kjörum og að mönnun ógni ekki öryggi. Rúmlega 300
þúsund hjúkrunarfræðingar starfa í Bretlandi og í
hverjum aðgerðum leggja þúsundir niður störf. Fleiri
stéttir eru einnig í verkföllum í Bretlandi, þar á meðal
sjúkraflutningamenn.
Bresk stjórnvöld hafa boðið 1.400 punda launahækkun á
ári, eða tæpar 249 þúsund íslenskar krónur, deilt niður á tólf
mánuði sem gera tæpar 21 þúsund krónur á mánuði. Þetta
telja hjúkrunarfræðingar þar í landi alls ekki nóg og hafa
vísað til verðbólgu sem mælist fimm prósentustigum hærri
en launahækkunin ásamt því að álag fari sífellt vaxandi.
Eru kröfur þeirra um fimm prósenta hækkun launa umfram
verðbólgu sem mælist um tíu prósent.
Ekki sest að samningaborðinu
Fyrstu verkföllin hófust á 44 stöðum á Englandi, Norður-
Írlandi og í Wales um miðjan desember, 55 stöðum í
janúar og 73 stöðum í febrúar. Verkföllin eru ekki bundin
öryggismönnun, líkt og þekkist á Íslandi, heldur voru einstaka
deildir undanskyldar verkföllunum, þar á meðal vökudeildir,
himnuskiljun, krabbameinsdeildir og gjörgæsludeildir.
RCN hefur aðeins átt í óformlegum viðræðum við
stjórnvöld og hafa lýst þeim sem óviljugum til að setjast að
samningaborðinu.
Til stendur að bæta í verkföllin í marsmánuði og er stefnt að
því að enn fleiri staðir, allt að helmingur sjúkrahúsa NHS,
verði óstarfhæfir í þrjá daga í einu. Þá verða gjörgæslu- og
krabbameinsdeildir ekki lengur undanskyldar verkfallinu.
Hjúkrunarfræðingar sem taka þátt í verkföllum hafa getað sótt
um 50 pund fyrir hvern dag í verkfallssjóð RCN, verður sú tala
hækkuð í 80 pund í mars auk 120 punda fyrir þá sem taka fjóra
eða fleiri daga í röð í verkfalli.
Hækkun þýðir skert þjónusta
Ráðherrar bresku ríkisstjórnarinnar hafa sakað
hjúkrunarfræðinga um að stefna lífum sjúklinga í hættu með
aðgerðum sínum. Steve Barclay heilbrigðisráðherra hefur
ítrekað sagt að ekki sé hægt að hækka laun hjúkrunarfræðinga
meira. Ef launakostnaður hækkaði þýddi það að skera
þyrfti niður í þjónustu við sjúklinga, þar að auki myndi það
auka verðbólguna í landinu. Nadhim Zahawi, formaður
Íhaldsflokksins, sem myndar ríkisstjórnina, gagnrýndi
hjúkrunarfræðinga harðlega í byrjun desember og sagði að
verkföll myndu einungis stuðla að sundrun Vesturlanda sem
yrði vatn á myllu Vladímír Pútín Rússlandsforseta í stríðinu í
Úkraínu.
Pat Cullen, framkvæmdastjóri RCN, hefur biðlað til stjórnvalda
að semja og harmar að verkföllin þurfi að halda áfram. „Við
erum einungis að þessu til að fá stjórnvöld til að bjarga
heilbrigðisþjónustunni. Það þarf að viðurkenna að þúsundir
stöðugilda eru ómannaðar sem bitnar á sjúklingum,“ sagði
Cullen um miðjan febrúar. „Við höfum rétt stjórnvöldum
sáttarhönd og boðist til að slaka á kröfum til að geta hafið
formlegar viðræður, við erum enn opin fyrir því.“
Ánægð með stuðning frá Íslandi
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsti yfir stuðningi við
aðgerðir RCN sama dag og þær voru tilkynntar, félagið skrifaði
einnig undir sameiginlega stuðningsyfirlýsingu Samvinnu
hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN). Cullen þakkaði
fyrir stuðninginn í bréfi til Fíh, sagði hún ákvörðunina
um verkföll ekki vera auðvelda en það sýni viljann til að
laga mönnunarvandann, bæta nýliðun og auka öryggi.
„Við erum stolt að standa saman með öðrum félögum og
samtökum hjúkrunarfræðinga til að bæta starfsumhverfi, taka
umræðuna um mönnunarvanda og tryggja leiðtogahlutverk
hjúkrunarfræðinga um allan heim,“ segir í bréfi Cullen. „Við
erum sterkari saman og erum staðráðin í að vinna saman að
réttlæti fyrir fagið okkar og skjólstæðinga.“
Fíh mun áfram eiga í reglulegum samskiptum við fulltrúa
RCN sem vita af stuðningnum á Íslandi og annars staðar á
Norðurlöndunum.
Í byrjun nóvember síðastliðnum boðuðu Samtök breskra hjúkrunar-
fræðinga, Royal College of Nursing (RCN), verkfallsaðgerðir í
fyrsta sinn í 106 ára sögu samtakanna. Verkföllin eru innan bresku
heilbrigðisþjónustunnar NHS og samanstanda af verkföllum á einstaka
svæðum eða starfstöðvum í takmarkaðan tíma.
Texti: Ari Brynjólfsson | Myndir: RCN/Duncan Soar.