Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 31
1. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 31
Umfjöllun
Tugir þúsunda sagt skilið við fagið
Í skýrslunni Valuing Nursing in the UK sem RCN gaf út í
febrúar kemur fram að tugir þúsunda hjúkrunarfræðinga
hafi sagt skilið við fagið og þúsundir til viðbótar
séu að íhuga slíkt hið sama. Ástæðan fyrir þessum
fordæmalausa flótta úr faginu séu launakjörin, sem
dugi ekki fyrir framfærslu, og álagsins sem valdi því að
margir hjúkrunarfræðingar fari heim úr vinnu ósáttir við
þjónustuna sem veitt var yfir daginn. Segir í skýrslunni
að áhrifin gætu orðið skelfileg fyrir sjúklinga og bresku
þjóðina í heild.
Samkvæmt könnun RCN frá árinu 2021 kemur í ljós að
meira en helmingur hjúkrunarfræðinga sem tóku þátt
í könnuninni eru að íhuga að hætta störfum eða eru
þegar að undirbúa að hætta störfum. Þegar spurt var um
ástæðurnar sögðu 70% að þeirra starf væri ekki metið
sem skyldi, 61% sögðu álagið hreinlega of mikið, þar á
eftir komu laun, skortur á stuðningi frá stjórnendum og
starfsaðstæður.
Hægt er að gera úrbætur og er það meðal annars verkefni
stjórnvalda. Í fyrsta lagi að bæta kjör hjúkrunarfræðinga
sem í dag séu um 20% lakari en árið 2010 að raunvirði.
Í öðru lagi að gera raunverulega áætlun um fjölgun
hjúkrunarfræðinga og hvernig á að halda þeim í starfi.
Í þriðja lagi að láta gera sjálfstætt mat á því hversu
mörgum heilbrigðisstarfsmönnum þörf sé á og hvar þörfin
sé mest. Í fjórða lagi að það sé á ábyrgð ráðherra að tryggja
framboð hjúkrunarfræðinga.
Aðrar úrbætur snúa að einstaka stofnunum, það sé á þeirra
ábyrgð að tryggja símenntun, betri starfsaðstæður og
vinna að úrbótum til að halda hjúkrunarfræðingum í starfi.
„Tími til kominn að borga hjúkrunarfræðingum sanngjörn laun“
eru skilaboðin á skilti þessa hjúkrunarfræðings.
Frá verkfallsverði hjúkrunarfræðinga í desember. Pat Cullen,
framkvæmdastjóri RCN, er fyrir miðju í drapplituðu kápunni.