Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Side 41
1. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 41
Mér hitnaði um leið og ég var kominn í búninginn
og kominn inn á sýkta svæðið á deildinni. Ég þakkaði
Sóleyju í huganum fyrir ráðið um að vera ekki í bolnum
innan undir skyrtunni sem varð rennblaut af svita eftir
nokkrar mínútur. Það eina sem ég gerði var að halda á
kamerunni, sem hafði fylgt mér frá byrjun faraldursins,
og hún getur seint talist þung en í búningnum varð allt
erfiðara og svitinn streymdi út. Ég fann fljótlega fyrir
þorsta og fór að hugsa hvenær Sóley færi í pásu, ég þurfti
að komast út.
Vesen og hjúkrunarfræðingar
Ég og Sævar Guðmundsson leikstjóri hófum tökur á
heimildaþáttaröðinni Stormur í marsmánuði 2020 og
strax í upphafi sáum við hvað hjúkrunarfræðingar voru
mikilvægir og komu víða við sögu í Covid-faraldrinum.
Það voru hjúkrunarfræðingar í smitrakningar-
teymunum sem hlúðu að fólkinu í gegnum síma
sem hafði verið tilkynnt að væri smitað. Það voru
hjúkrunarfræðingar sem stóðu vaktina við sýnatökur og
það voru hjúkrunarfræðingar sem blönduðu bóluefnin
í sprauturnar sem síðan aðrir hjúkrunarfræðingar tóku
við og bólusettu landsmenn með. Ef það var vesen vegna
Covid þá voru hjúkrunarfræðingar í teyminu sem sett var
saman til að leysa vandamálið sama hversu stór, flókin
eða smá þau vandamál voru.
Stutt kaffipása
Fyrsta vakt Sóleyjar á sýkta svæðinu á gjörgæslunni
voru tveir klukkutímar. Sóley hafði allan þann tíma sinnt
Covid-sjúklingnum ásamt Dill Viejo, hjúkrunarfræðingi
á deildinni. Sjúklingnum fór versnandi og læknar og
hjúkrunarfræðingar fóru að velta þeim möguleika upp
að snúa honum á grúfu til að minnka álagið á lungun.
Ég var sjálfur við það að gefast upp vegna hita, svita,
þorsta og almennrar þreytu þegar Sóley sagði: „Jæja, nú
fáum við kaffipásu.“ Eftir sprittþvott í millirýminu steig
ég gegnblautur af svita inn á ósýktu deildina og bara
með maska yfir andlitinu dró ég andann djúpt og leið
eins og ég væri að stíga inn í heim með súrefni. Ég var
með för í andlitinu eftir grímuna og kláraði hratt heilan
Gatorade-brúsa sem Sóley gaf mér á kaffistofunni. Mér
var hálfflökurt og hafði ekki lyst á kaffi eða meðlæti. Ég
reyndi að ná upp kröftum því ég vissi að kaffipásan yrði
ekki löng.
Orð sem björguðu
Þegar ég var 10 ára fékk ég að heimsækja föður minn,
sem lá þá á gjörgæsludeildinni við Hringbraut, og var
mjög veikur. Ég man bara slitrur úr heimsókninni til
pabba. Man að hann var hálfrænulaus að benda mér
á tækin sem voru í kringum hann – hann var alltaf að
kenna mér. Man hvað ég grét sárt þegar ég þurfti að
fara frá honum. Og ég man eftir hjúkrunarfræðingnum
sem tók utan um mig þegar ég kom út af stofunni og
sagði að hún ætlaði að hugsa vel um pabba á meðan
ég væri ekki hjá honum. Þessi orð og hlýja róuðu mig,
ég vissi að pabbi væri í góðum höndum hjá þessari
yndislegu konu sem tók mig í sinn faðm á raunastundu.
Pabbi lést nokkrum vikum síðar og bara það að vita af
hjúkrunarfræðingnum sem sagðist ætla að hugsa vel um
pabba hjálpaði mér í sorginni.
„... og strax í upphafi sáum
við hvað hjúkrunarfræðingar
voru mikilvægir og
komu víða við sögu í
Covid-faraldrinum.“
Þríeykið á bakvið Storm. Jóhannes Kr. Kristjánsson framleiðandi,
Heimir Bjarnason klippari og Sævar Guðmundsson leikstjóri.
Grúfulega
Kaffipásan var stutt og fjölskylda sjúklingsins hafði óskað
eftir því að fá að sjá hann í gegnum iPad en þeim hafði
þá verið greint frá því að hann væri lífshættulega veikur.
Vegna tæknilegra erfiðleika tókst ekki að tengjast iPad-
num en það tókst svo síðar um kvöldið. Sjúklingnum
var snúið á grúfu í þeirri veiku von að það myndi hjálpa
honum í veikindunum.
Ég var heila vakt með Sóleyju á gjörgæslunni og þegar
ég gekk út af gjörgæsludeildinni mætti ég ungum lækni
sem var að koma á vaktina. Hann spurði hvað ég hefði
verið að gera og þegar ég sagði honum að ég hefði
verið að fylgja Sóleyju hjúkrunarfræðingi eftir fyrir
heimildaþáttaröð um Covid á Íslandi varð hann ánægður
og sagði: „Það eru hjúkrunarfræðingar sem bera uppi
starfið á þessum Covid-tímum.“
Pistill