Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Qupperneq 44
44 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 99. árg. 2023
Helga Margrét Jóhannesdóttir er yfirhjúkrunar-
fræðingur svæðis á HSN á Blönduósi. Hún
útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá HA vorið 2019 og í
kjölfarið má segja að líf hennar hafi tekið algjörum
stakkaskiptum; frá því að vera einhleyp og barnlaus
háskólamær á stúdentagörðunum yfir í að gegna
ábyrgðarfullu yfirmannsstarfi, eiga börn, bónda,
hund og takast á við alvöru lífsins. Helga Margrét
giftist æskuvini sínum Helga Garðari Helgasyni,
þau hafa síðan eignast tvö börn saman og búa í
einbýli á Blönduósi. Hún segist aldrei hafa komið á
Blönduós þegar hún flutti þangað með skömmum
fyrirvara fyrir ári síðan. Þetta er kona sem lætur
ekki tækifærin renna sér úr greipum, hún lætur vaða
og segist ekki sjá ekki eftir neinu. Ritstýran heyrði í
yfirhjúkrunarfræðingnum á Blönduósi sem var til í
spjall um lífið og tilveruna.
Aðspurð um uppvaxtarárin segist Helga Margrét hafa
alist upp í Eyjafjarðarsveit fyrstu æviárin þar sem
foreldrar hennar voru bændur. „Mér fannst frábært
að búa í sveit, frelsið var svo mikið. Ég hef alltaf verið
einstaklega félagslynd og bauð iðulega þeim sem
komu að bænum inn í kaffi; mjólkurbílstjóranum,
trúboðum og bara öllum,“ segir hún brosandi. Hún
segist líka vera hvatvís að eðlilsfari og stökkvi á flest
tækifæri sem henni bjóðist en það sé að hluta til
ástæðan fyrir því að hún sé þar sem hún er í dag: „Ég
þarf yfirleitt ekki langan tíma til að taka ákvarðanir.
Ég læt bara vaða því reynslan hefur kennt mér að ef
ég segi já við spennandi tækifærum opnast yfirleitt
dyr að fleiri tækifærum í kjölfarið.“
Fékk sjokk eftir fyrsta daginn
Helga Margrét segist aðspurð ekki hafa átt sér þann
draum að læra hjúkrun: „Ég endaði eiginlega óvart
í hjúkrun. Þegar ég var 18 ára var mér boðið starf
á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri. Ég gerði mér
engan veginn grein fyrir því í hverju starfið fólst, hélt
að eingöngu fagmenntað fólk sinnti umönnun og ég
væri ég komin á Hlíð til að spila og spjalla við gamla
fólkið,“ segir hún og brosir. „Annað kom á daginn,
ég fékk algjört sjokk eftir fyrstu vaktina, hringdi í
mömmu og sagðist ætla að hætta. Hún ráðlagði mér
að gefa þessu tvær vikur og sem betur fer hlustaði
ég á hana því ég var ekki lengi að finna að þetta
væri starfsvettvangur sem hentaði mér. Starfið á
hjúkrunarheimilinu varð til þess að ég skráði mig í
sjúkraliðanám og útskrifaðist vorið 2014 af tveimur
brautum; náttúrufræðibraut og sjúkraliðabraut. Ég
hóf svo nám í hjúkrunarfræði strax um haustið sama
ár. Háskólaárin voru ákveðin tímamót í mínu lífi. Ég
fylltist einhverjum ofurmetnaði á þessum tíma, ég
lagði hart að mér og tók að mér mörg verkefni. Með
hverju verkefninu buðust sífellt fleiri tækifæri og ég
Flutti á Blönduós
og stökk beint út
í djúpu laugina
Helga Margrét, yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
á HSN á Blönduósi
Viðtal: Sigríður Elín Ásmundsdóttir | Myndir: Úr einkasafni
Landsbyggðin
Helga Margrét fyrir utan HSN
á Blönduósi.