Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Page 58
Ég á morgunvakt á Hólmsheiði, dagurinn hefst á
góðum kaffibolla og síðan hefst baráttan við að vekja
unglingana og koma þeim í skólann, það getur aldeilis
tekið á taugarnar en hefst alltaf að lokum. Ég hlusta á
Heimsgluggann með Boga Ágústssyni í bílnum á leiðinni
í vinnuna. Í fangelsinu á Hólmsheiði bíða mín ótalmörg
og fjölbreytt verkefni. Vaktin byrjar á innliti á varðstofu,
þar er staðan tekin, fengið smá rapport frá varðstjóra
og farið yfir lista yfir þá sem eru í húsi og þá sem hafa
pantað viðtal við lækni eða hjúkrunarfræðing. Því næst
eru lyf fanga sem eru geymd inn á varðstofu milli vakta
sótt þar sem fangaverðir gefa lyfin og farið með þau inn á
móttökuherbergi sem kallað er læknaherbergi.
Morgunmóttakan er undirbúin áður en læknir sem er á
vakt mætir í hús, lyf eru tekin til fyrir 42 fanga í lyfjabox.
Þegar læknirinn mætir upp úr kl. 9 fær hann rapport um
þau erindi sem hafa borist í vaktsíma hjúkrunarfræðings.
Vaktsíminn er í raun sá sími sem varðstjóri og fangaverðir
geta hringt í með ýmis erindi sem ekki geta beðið
þar til læknir eða hjúkrunarfræðingur kemur í hús.
Til að mynda kom nýr skjólstæðingur daginn áður
sem þurfti á fráhvarfslyfjameðferð að halda og gátu
fangaverðir hafið hana með mínu leyfi þar sem við
höfum alltaf tilbúin lyfjabox með fráhvarfslyfjum.
Móttakan hefst um klukkan níu, oftar en ekki skiptum
við hjúkrunarfræðingarnir með okkur verkum þar sem
önnur okkar fer í móttöku með lækni á meðan hin
heldur áfram lyfjatiltekt sem oft og tíðum getur verið
ansi umfangsmikil. Þennan daginn fer ég í móttökuna
með lækninum. Við byrjum á gæsluvarðhaldföngunum
og þessu er best lýst sem nokkurs konar stofugangi.
Heilsufarsviðtal er tekið við skjólstæðinga, skoðun
og lífsmarkamælingar fara fram og þeir upplýsa um
almenna heilsu, sjúkdóma og venjur, ásamt lyfjasögu.
Gæsluvarðhaldið er þungt í dag, þar eru fimm
einstaklingar, þar af eru fjórir erlendir. Einn af erlendu
gæsluvarðhaldsföngunum er hælisleitandi sem er í
hungurverkfalli. Hungurverkfall fanga er það sem við
sjáum í sívaxandi mæli en engin gæðaskjöl eru til fyrir
heilbrigðisstarfsfólk hér á Íslandi til að fara eftir ef
skjólstæðingar okkar eru í hungurverkfalli. Eftirlit með
slíkum föngum þarf að vera daglegt en vegna takmarkaðs
fjármagns hefur ekki verið unnt að auka stöðugildi
hjúkrunarfræðinga eða lækna við fangelsið. Mikill tími
fer í túlkun við erlenda fanga, oftast notum við túlkaapp,
þar sem ekki er hlaupið að því að fá túlk í fangelsið. Það
gengur oftast vel að nota appið en það tekur töluvert
lengri tíma að sinna erlendum föngum sem einungis tala
sitt móðurmál.
Va
kt
in
m
ín
Mikilvægt að mæta
skjólstæðingum af
virðingu
Hulda hefur í áratug starfað sem hjúkrunarfræðingur í fangelsi, hún byrjaði í afleysingum í
fangelsinu á Skólavörðustíg og kvennafangelsinu sumarið 2013 á meðan hún var enn í námi.
Hulda fékk fasta stöðu við fangelsið á Hólmsheiði árið 2017 og er núna í 50% starfi þar og
50% starfi á sjúkrahúsinu Vogi. Samhliða tekur hún líka vaktir bráðamóttökunni í Fossvogi.
Hulda Birgisdóttir
hjúkrunarfræðingur hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
– starfsstöð, fangelsið Hólmsheiði
Þegar stofugangi er lokið fáum við inn á stofu til okkar
nýja fanga sem ekki sæta gæsluvarðhaldseinangrun.
Farið er yfir sömu upplýsingar og hjá skjólstæðingum í
gæsluvarðhaldi. Fangar sem hafa hitt okkur áður stendur
til boða að setja sig á viðtalslista og þar eru ýmis erindi
sem koma upp og þarf að leysa og ráðleggja með. Í dag
þurfum við að senda einn fanga í myndrannsókn, þá þarf
að útbúa flutningsbeiðni fyrir viðkomandi og afhenda
varðstjóra svo hann geti pantað tíma og undirbúið
flutning í rannsóknina í fylgd fangavarða. Undirbúa
þarf einnig flutning fanga milli fangelsa og þennan
daginn er fyrirhugað að flytja þrjá fanga á Litla-Hraun.
Lyf og lyfjafyrirmæli þurfa að fylgja þeim. Ég tek eftir
Umsjón og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
„Að sía burtu alla fordóma
og mæta skjólstæðingum af
fullkomnu fordómaleysi.“