Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Qupperneq 59
1. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 59
,,Hungurverkfall fanga er það sem við sjáum
í sívaxandi mæli en engin gæðaskjöl eru
til fyrir heilbrigðisstarfsfólk hér á Íslandi til
að fara eftir ef skjólstæðingar okkar eru í
hungurverkfalli.“
Vaktin mín
því að lyfjablað eins fangans er óskýrt og geri því nýtt
og læt fylgja með fráhvarfsskema þar sem viðkomandi
er á fráhvarfsmeðferð. Mitt starf felst að miklu leyti í
því að hafa yfirumsjón með allri starfsemi sem snýr að
heilbrigðisþjónustu þannig að allt gangi sem best fyrir
okkar skjólstæðinga.
Að lokinni móttöku með lækni hefst hjúkrunarmóttaka
þar sem m.a. forðalyf eru gefin og önnur erindi leyst sem
ekki þurfa aðkomu læknis. Einn fangi þarf forðalyf í dag
sem gefið er við geðklofa. Tveir aðrir fangar eru kallaðir
inn í blóðþrýstingseftirlit og svo eru nokkrir á lista fyrir
blóðprufur. Ég upplifi sjaldan að ég sé í hættu þegar ég
er að sinna föngum eða að þeir sé eitthvað hættulegri en
annað fólk. Engu að síður finnst mér mikilvægt að tveir
heilbrigðisstarfsmenn séu saman í hjúkrunarmóttöku og
svo eru fangaverðirnir aldrei langt undan.
Hjúkrunarfræðingarnir í fangelsinu sjá um lyfjapantanir
frá apóteki og að panta önnur aðföng sem á þarf að halda
til að reka litla heilsugæslu eins og þessa á Hólmsheiði.
Eftir hjúkrunarvaktina þarf að hafa samband við aðra
Fangelsið á Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og
móttökufangelsi og þar er einnig starfrækt eina
kvennafangelsið á landinu. Á Hólmsheiði er
aðstaða fyrir afplánun, styttri fangelsisrefsingar
og vararefsingar. Alls eru 56 fangapláss á
átta deildum sem skiptast í almennar deildir,
gæsluvarðhaldsdeildir og kvennadeildir.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur síðan í
mars 2019 sinnt heilbrigðisþjónustu fyrir fanga
á Hólmsheiði. Tveir hjúkrunarfræðingar og tveir
læknar sinna þjónustunni og eru vitjanir tvo daga
í viku en þess á milli sinna hjúkrunarfræðingar
bakvaktarsíma og útköllum. Öllum föngum
stendur til boða að þiggja heilbrigðisþjónustu
og æskilegast er að nýir fangar hitti lækni
eða hjúkrunarfræðing innan 24 klukkustunda
frá komu í fangelsið. Föngum, sem eru í
einangrunargæsluvarðhaldi, stendur til boða að
hitta lækni og/eða hjúkrunarfræðing tvisvar í viku
en allir fangar hafa rétt á að afþakka þjónustu
heilbrigðisstarfsfólks.
fagaðila sem tengjast okkar vinnu í fangelsinu, til að
mynda hjúkrunarfræðinga á Litla-Hrauni, göngudeild
smitsjúkdóma, Vog, geðheilsuteymi fanga og ýmis
önnur teymi. Oftast er það í höndum hjúkrunarfræðinga
á vakt og eins að hafa umsjón með rannsóknum sem
framkvæmdar eru í samráði við lækni og fylgja þeim eftir.
Því miður er veruleikinn sá að meirihluti fanga á við
vímuefnavanda að stríða. Hluti af starfinu er þar af
leiðandi að gera áætlanir um fráhvarfsmeðferðir og
tengja þá sem þurfa á viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn
að halda, við geðheilsuteymi fanga. Það var stofnað árið
2020 og að mínu mati var mikil þörf á því teymi þar
sem margir af okkar skjólstæðingum eiga við fíkni- og/
eða geðsjúkdóma að stríða. Mér finnst mjög mikilvægt
í þessu starfi og alveg sama hvar maður starfar innan
heilbrigðiskerfisins að mæta öllum skjólstæðingum
af virðingu á þeim stað sem þeir eru. Að sía burtu
alla fordóma og mæta skjólstæðingum af fullkomnu
fordómaleysi.
Nú styttist í að vaktinni minni ljúki. Ég klára síðustu
verkin áður en ég keyri heim og legg mig því ég er að
fara á næturvakt á Vogi. Vakt í fangelsinu lýkur þó í raun
aldrei alveg því vaktsíminn er ekki langt undan og það
eru ófá símtölin sem berast í hann frá fangelsinu. Oft eru
það mál sem liggja þungt á mér þar til næsta móttaka fer
fram. Því fylgir mikil ábyrgð og skynsemi að bera á sér
vaktsíma. Oft leiða þessi símtöl útköll af sér því sum mál
geta einfaldlega ekki beðið til næsta móttökudags. Þá er
mikilvægt að hugsa í lausnum og vera útsjónarsöm til að
allt gangi sem best upp.