Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 74

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 74
74 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1 . tbl. 99. árg. 2023 Það hefur því verið mikið gæfuspor að slíkar mælingar hafa tíðkast til lengri tíma á Landspítala. Í þessari grein er rýnt í gögn frá 15 legudeildum sem notað hafa Rafaela- hjúkrunarþyngdarflokkunarkerfið en áframhaldandi inn- leiðing er í gangi m.a. á gjörgæsludeildum, fleiri legudeildum og dagdeild, og mögulegt er að nota kerfið einnig á göngu- deildum. Eins hefur flokkunarkerfið verið innleitt á öðrum sjúkrastofnunum á landinu sem gefur möguleika á að skoða enn frekar hjúkrunarþyngd og hjúkrunarálag þvert á þjónustustig og veitendur. Mikilvægt er að hafa í huga að mælingar Rafaela-kerfisins ná eingöngu til þeirra þátta er varða beina hjúkrun og því verður að taka aðra þætti með í reikninginn þegar dregin er upp heildarmynd af vinnuálagi og mönnun til annarra viðfangsefna. Þetta á t.d. við um verkefni sem tengjast leiðbeiningu nemenda, gæða- og umbótastarfi og flóknara starfsumhverfi. Eins og fram kemur í greininni hefur þróun varðandi samsetningu mannafla ekki verið í þá átt sem markmið voru um, en engar deildir ná því markmiði að hlutfall hjúkrunarfræðinga af heildarmannafla í hjúkrun nái 60% árið 2021. Í ljósi þess hversu margar rannsóknir styðja mikilvægi þess að mönnun hjúkrunarfræðinga sé fullnægjandi til að tryggja öryggi sjúklinga er nauðsynlegt að vinna markvisst að því að ná þessu markmiði. Hér er stuttlega komið inn á þá þróun sem á sér stað í tilfærslu verkefna á milli þjónustustiga og áhrif þess á hjúkrun. Fyrirséð er að áfram verður vöxtur í dag- og göngudeildarþjónustu og mikil sóknarfæri eru enn í fjarheilbrigðisþjónustu. Slíkar breytingar hafa ekki aðeins áhrif á sjúklinga og aðstandendur þeirra sem þurfa að axla síaukna ábyrgð á eigin meðferð heldur hefur þessi þróun mikil áhrif á starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. Fyrir það fyrsta krefst þessi aukna áhersla á ábyrgð og þátttöku sjúklinga það í för með sér að heilbrigðisstarfsfólk tryggi að skjólstæðingar þeirra séu upplýstir notendur. Eitt af lykilhlutverkum hjúkrunarfræðinga er einmitt fræðsla og stuðningur til sjúklinga og aðstandenda. Því má ætla að slík verkefni krefjist sífellt meira vinnuframlags. Varðandi starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga þá hefur þessi tilfærsla á dag- og göngudeildum og fjarheilbrigðisþjónstu það í för með sér að æ stærri hluti hjúkrunarfræðinga sinnir störfum sínum á dagvinnutíma. Slík störf krefjast oft mikils sjálfstæðis og oft og tíðum sérfræðiþekkingar. Margir hafa velt því fyrir sér hvort tækniframfarir og nýjungar muni ekki að einhverju leyti koma í stað hjúkrunarfræðinga og draga úr þörf fyrir þá. Afar mikilvægt er að þróa lausnir til að auðvelda störf hjúkrunarfræðinga og einfalda en ekkert bendir til þess að þær muni koma í stað hjúkrunarfræðinga í framtíðinni (Peptio og Rozzano, 2019). Hins vegar er ljóst að störfin munu breytast og nýta sér í síauknum mæli tækninýjungar. Í þessu samhengi mætti nefna fjarheilbrigðis- þjónustu sem mun sannarlega vera mikilvæg til að mæta þörf fyrir heilbrigðisþjónustu. Það er þó fjarri því að hægt sé að gera ráð fyrir því að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk veiti slíka þjónustu til viðbótar við það sem það gerir nú þegar. Eðlilegra væri að gera ráð fyrir henni sem nýju þjónustustigi sem þurfi að manna sérstaklega. Þetta þýðir þó ekki að ekkert hagræði hljótist af slíkum nýjungum en þær munu þó fyrst og fremst skila sér í bættri þjónustu við sjúklinga og síðast en ekki síst því að hægt verði að veita stækkandi hópi neytenda þá þjónustu sem þeir hafa þörf fyrir. Af framansögðu er því hægt að draga þá ályktun að áfram muni þörf fyrir vel menntaða og þjálfaða hjúkrunarfræðinga vera mikil og eigi aðeins eftir að aukast. Mikilvægt er að tryggja nægt framboð af hæfum hjúkrunarfræðingum og eins og fram kemur í fyrri greininni í þessum greinaflokki stendur nýliðun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga ekki undir endurnýjun og fyrirsjáanlegri aukningu á þjónustuþörf. Því þarf að leita allra leiða til að fjölga þeim sem ljúka námi í hjúkrunarfræði. Eins þarf að tryggja nægjanleg tækifæri til sérhæfingar, menntun og þjálfunar til sérfræðingsréttinda í hjúkrun. Samhliða þessu er einnig mikilvægt að stuðla að festu í starfi með því að styrkja starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga, stjórnun, sjálfræði og þátttöku í ákvarðanatöku. Vísbendingar eru um að tengsl séu á milli vaxandi fjölda aldraðra, fordæmalausra breytinga á samfélagsgerð vegna mikillar fjölgunar erlendra ríkisborgara og ferðamanna hér á landi og eftirspurnar eftir starfskröftum hjúkrunarfræðinga á Landspítala. Mikilvægt er að bæði stjórnvöld og veitendur heilbrigðisþjónustu viðurkenni þetta og bregðist við. Einnig er mikilvægt að skoða nánar en svigrúm gafst til í þessari grein, þróun stöðugilda í hjúkrun á Landspítala eftir styttingu vinnuviku. Eins þarf að greina enn betur þau verkefni sem hjúkrunarfræðingar þurfa að inna af hendi umfram beina hjúkrun sjúklinga. Síðast en ekki síst þarf að rannsaka hvaða áhrif starfsumhverfi við hjúkrun sjúklinga s.s. mönnun og þjónustuform hefur á sjúklinga og aðstandendur þeirra. Hjúkrun – grunnstoð heilbrigðiskerfisins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.