Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Side 78

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Side 78
78 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1 . tbl. 99. árg. 2023 Um 98% hjúkrunarfræðinga hér á landi eru konur (Guðbjörg Pálsdóttir o.fl., 2017) og í kynjuðu samfélagi virðast konur bera hitann og þungann af ólaunuðum störfum, sérstaklega gagnvart börnum og heimili (Robertson o.fl., 2019). Konur hafa því fleiri skyldum að gegna umfram launað starf og eru líklegri til að endurskipuleggja þætti í lífi sínu til að láta barnauppeldi og heimilishald ganga upp. Er þessi forgangsröðun á kostnað annarra þátta svo sem vinnu, félagslegs samneytis og áhugamála (Andrea Hjálmsdóttir og Marta Einarsdóttir, 2019). Konur hérlendis í stjórnunarstöðum upplifa óskýrari mörk og meiri árekstra á milli vinnu og einkalífs en karlkyns stjórnendur (Rafnsdóttir og Júlíusdóttir, 2018) og einn af þeim þáttum sem letur hjúkrunarfræðinga til að taka að sér stjórnunarstöður er álag og óstöðugleiki milli vinnu og einkalífs (Sabei o.fl., 2019; Steege o.fl., 2017). Yngri hjúkrunarfræðingar eru líklegri en eldri til að hafa áhuga á að taka að sér stjórnunarstöðu (Haaland o.fl., 2019; Sabei o.fl., 2019) en streita er jafnframt algengari meðal yngri hjúkrunarfræðinga (Berglind Harpa Svavarsdóttir og Elísabet Hjörleifsdóttir, 2020). Vísbendingar eru um að ungir aðstoðardeildarstjórar finni oft fyrir einkennum kvíða, of háum blóðþrýstingi og kulnun (Sandra Sif Gunnarsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2020). Hérlendis eru kvenkyns stjórnendur, umfram þá sem eru karlkyns, líklegri til að finna fyrir heilsufarsvanda svo sem vöðvabólgu og svefntruflunum (Jonsdottir o.fl., 2020). Reynsla kvenna af endurkomu í vinnu eftir fæðingarorlof er ólík eftir löndum hvað varðar réttindi, velferðarkerfi og ríkjandi viðhorf gagnvart vinnandi mæðrum (Collins, 2021). Reynsla mæðra hér á landi af endurkomu í vinnu eftir fæðingarorlof hefur lítið verið rannsökuð. Ber þó að nefna nýlega meistararannsókn á tengslum kvenna í fæðingarorlofi við vinnustað sem sýnir að konurnar í rannsókninni drógu úr starfshlutfalli eftir fæðingarorlof á grundvelli breytts fjölskyldumynsturs (Sigrún Edda Kristjánsdóttir, 2019). Þeir þættir sem vega þyngst við ákvarðanatöku frumbyrja um að hætta eða halda áfram á sama vinnustað eftir fæðingarorlof eru stuðningur sem konan upplifir frá yfirmanni og starfshlutfall á fyrstu mánuðum eftir endurkomu (Ladge o.fl., 2018). Rannsóknir sýna að þegar konur fá að stýra endurkomu sinni með lækkuðu starfshlutfalli og sveigjanlegum vinnutíma getur það dregið úr togstreitu milli vinnu og fjölskyldulífs. Stuðningur yfirmanns í orði og á borði skiptir máli sem og hvatning frá yfirmanni um að hafa endurkomuna á forsendum kvennanna og án þrýstings (Hideg o.fl., 2018; Sigrún Edda Kristjánsdóttir, 2019). Vinnuveitendur geta einnig sýnt stuðning með því að koma því skýrt á framfæri við starfsmenn að meðganga, fæðingarorlof og foreldrahlutverk muni ekki hafa áhrif á verðmæti eða starfstækifæri vinnandi mæðra (Ladge o.fl., 2018). Vinnuveitendum ber að gera ráðstafanir til að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur og ábyrgð gagnvart fjölskyldu, óháð kyni, til dæmis með sveigjanleika á vinnutíma, til að auðvelda endurkomu til starfa eftir fæðingarorlof (Þingskjal nr.150/2020). AÐFERÐ Reynsla hjúkrunarstjórnenda af endurkomu í vinnu eftir fæðingarorlof Til að svara rannsóknarspurningunni var notað eigindlegt afturskyggnt rannsóknarsnið með aðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði, sem er talin henta vel til að dýpka skilning á mannlegum þáttum og hafa þann eiginleika að geta leitt til úrbóta í þjónustu svo sem heilbrigðisþjónustu (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Rannsóknarferlið byggir á samvinnu sem miðar að því að vera eins fullviss og mögulegt er um að niðurstöður endurspegli reynslu viðmælenda. Ferlinu svipar til flæðandi hrings þar sem farið er fram og til baka í ákveðnu flæði. Hringferillinn byggir á sex vitrænum meginþáttum: Að vera kyrr; að koma auga á; að velja; að túlka; að raða saman og að sannreyna (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Hringferlið er skilgreint frekar í framsetningu á 12 þrepum sem á að vera leiðarljós rannsakanda út rannsóknina (Tafla 1). Þátttakendur Við val á þátttakendum var notað tilgangsúrtak og sam- kvæmt Vancouver-skólanum valdir einstaklingar til að taka þátt í rannsókninni sem búa yfir persónulegri reynslu af fyrirbærinu sem átti að rannsaka (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Í september 2021 var auglýsing birt á samfélagsmiðlum hjúkrunarfræðinga. Skilyrði fyrir þátttöku var að vera íslensku- mælandi kvenkyns hjúkrunarfræðingur sem fór í fæðingarorlof á árunum 2018–2021 og var í stöðu hjúkrunarstjóra, deildar- stjóra eða aðstoðardeildarstjóra á þeim tíma og hafði verið að minnsta kosti tvo mánuði í starfi eftir endurkomu í vinnu. Ekki var sett sem skilyrði að hafa snúið til baka í sömu stöðu. Þátttakendur höfðu samband við rannsakanda í gegnum netfang sem gefið var upp í auglýsingu. Allar fengu sent kynningarbréf fyrir fyrsta viðtal, þar sem fyrirkomulagi og tilgangi rannsóknarinnar var lýst. Alls buðu 10 stjórnendur fram þátttöku sína og allar féllu undir inntökuskilyrði. Ekki þótti ástæða til að leita að fleiri viðmælendum þar sem mettun var náð eftir viðtöl við þá 10 stjórnendur sem buðu sig fram. Þátttakendur voru allar í sambúð, á aldrinum 31–49 ára (meðalaldur 35,7 ár), og áttu 1–4 börn. Starfsaldur þeirra var á bilinu 6–21ár og meðalstarfsaldur sem hjúkrunarfræðingur var 9,6 ár. Fæðingarorlofslengd þeirra var á bilinu 9–18 mánuðir og meðallengd þess var 12 mánuðir. Gagnasöfnun og gagnagreining Gagnasöfnun og gagnagreining fór fram samhliða í rannsóknarferlinu. Viðtölin voru tekin á vinnustað viðmælanda eða í gegnum fjarfundarbúnað. Viðtölin voru á bilinu 35–65 mínútur að lengd, meðallengd var 52 mínútur. Notaður var hálfstaðlaður viðtalsrammi. Viðtölin voru tekin upp og síðan rituð upp orðrétt, eftir það var upptökum eytt. Persónugreinanlegum upplýsingum, svo sem nöfnum og staðháttum, var breytt. Leitast var eftir að skilja í þaula innihald þess sem fram kom í samræðum og það í kjölfarið greint í yfir- og undirþemu. Annað viðtal var tekið við hvern viðmælanda, um 10–45 mín. að lengd, þar sem skoðað var nánar hvort sameiginlegur skilningur um reynsluna væri á milli rannsakanda og þátttakenda. Viðbótarupplýsingum var bætt við greiningarlíkanið í kjölfarið. Rannsóknin byggir því á 20 viðtölum samtals. Öll greiningarlíkön voru borin saman og heildarmynd reynslunnar sett upp í heildargreiningarlíkan. Í kjölfarið voru gögn aftur lesin yfir og borin saman við

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.