Heilbrigt líf - 01.12.1949, Page 96
lingnum er leitt fyrir sjónir ástand hans, eins og það er
í drykkjuskapnum. Löngun hans til bata er vakin og vilji
hans styrktur, eftir því sem verða má. Hann er hvattur
til að leita góðs félagsskapar og temja sér hollar venjur.
Með endurteknum fortölum af þessu tagi tekst stundum
að hjálpa drykkjumanni, og alltaf munu þær eiga einhvern
þátt í lækningunni.
DÁLEIÐSLA.
f öllum fortölum er fólginn meiri eða minni sefjunar-
máttur. Með sefjun (suggestion) er manninum blásin í
brjóst trú á einhverja hugmynd, trú, sem hugurinn drekk-
ur í sig, án þess að vinna úr henni með vitsmununum. Dag-
lega verðum við öll óafvitandi fyrir sefjandi áhrifum. Við
tökum við hugmyndum annarra eftir leiðum tilfinninganna,
hrífumst af þeim og tileinkum okkur þær. Sjúklingar eru
venjulega næmir fyrir sefjun, og máttur hennar til lækn-
inga er mikill, sé vel á haldið. Hæsta stig sefjunar næst
í dáleiðslu. í því svefnkennda ástandi er hugurinn ómót-
tækilegur fyrir öllu öðru en sefjandi áhrifum dávaldsins.
Það er því ekki nema eðlilegt, að dáleiðslan hafi verið
notuð í drykkjumanna lækningum. Með henni má inn-
ræta sjúklingnum andúð á áfengi og neyzlu þess og blása
honum í sefa löngun til hollari lífshátta. Hefur dáleiðslan
oft reynzt nýt meðferð í höndum þjálfaðra dávalda.
HÆLISVIST.
Þegar fortölur eða önnur sálræn lækning leiðir ekki til
neins verulegs árangurs, er gripið til hælisvistar. Til þess að
verja sjúklinginn áfengisfreistingum, á meðan endurupp-
eldi hans fer fram, er honum komið fyrir á heilsuhæli, þar
sem hann nær ekki til áfengis. Þar er svo reynt að byggja
94
Heilbrigt líf