Heilbrigt líf - 01.12.1949, Side 145
Eins og alltaf er venja, voru börnin öll skoðuð af læknum, áður
en þau fóru í sveitina. Þá höfðu þeir læknarnir Kristbjörn Trygg-va-
son og Sigurður Samúelsson stöðugt eftirlit með börnunum á Sil-
ungapolli og Kolviðarhóli.
Um heilsufar á dvaiarheimilunum er annars þetta helzt:
A Löngumýri varð lítilsháttar vart hettusóttar, sem þó var mjög
væg, enda veiktust aðeins örfá börn. Náðu þau fljótt heilsu aftur
og voru löngu albata, er þau fóru heim.
A Kolviðarhóli kom upp skarlatssótt á öndverðu starfstímabil-
inu. Tóku alls níu börn veikina. Þau tvö, er fyrst lögðust, voru
flutt í Farsóttahúsið í Keykjavík og fóru síðan heim, er þau höfðu
fengið bata. Hin voru einangruð á heimilinu. Veikin var mjög væg
og öll börnin voru fleyg og fær um það bil, er þau fóru heim, og
raunar löngu fyrr.
Svo sem kunnugt er, gekk barnaveiki í Reykjavík í fyrrasumar,
og höfðu allmörg þeirra barna, er á heimilin fóru, verið bólusett gegn
veikinni að nokkru eða öilu leyti, áður en þau fóru að heiman. Hin
voru svo bólusett á dvalarheimilunum, og annaðist það viðkomandi
iæknir á flestum, en Guðrún Bjarnadóttir hjúkrunarkona á öðrum.
Meðan skarlatssóttin gekk á Kolviðarhóli, kom hjúkrunarkonan
þangað daglega, og raunar stundum tvisvar á dag, og sprautaði
börnin gegn veikinni. Hún ferðaðist einnig- milli allra hinna heimil-
anna, einu sinni á starfstímabilinu, til þess að hafa eftirlit með
hreinlæti og heilsufari. Loks fóru þeir, formaður RKI, Scheving
Thorsteinsson og Gunnar Andrew skrifstofustióri, í eftirlitsferð til
allra heimilanna.
3. Sjúkraskýliö í Sandgeröi.
Það var eins og alltaf áður opið yfir vetrarvertíðina, eða frá 19.
jan. til 21. maí.
Forstöðukona var að þessu sinni frk. Guðrún Bjarnadóttir,
hjúkrunarkona, en hin fasta hjúkrunarkona RKÍ dvaldist árlangt
erlendis við heilsuverndarnám í Arósum. Auk forstöðukonu var
ein starfsstúlka í skýlinu. Þar voru gerðar 1332 aðgerðir og farnar
249 sjúkravitjanir um þorpið og' nágrennið og í verbúðirnar. Af-
greidd voru 1276 steypuböð og 18 gufuböð, og nutu þeirra alls 77
manns. Níu sjúklingar lágu í skýlinu í samtals 75 daga. Umsjón
með sjúkraskýlinu að öðru leyti hafði Karl Magnússon, héraðs-
læknir í Keflavík. Einn dag í viku höfðu þeir Keflavíkurlæknar
afnot af aðgerðastofu skýlisins og tóku þar á móti sjúklingum úr
þorpinu og nágrenni.
Starfsemin naut sömu vinsælda og áður og fékk enn sem fyrr
alldrjúgan fjárhagslegan stuðning, bæði frá útgerðarmönnum og
sjómönnum í Sandgerði, þrátt fyrir rýra vertíð. Gjafahæsti báturinn
Heilbrigt líf
143