Úrval - 01.06.1943, Side 64
62
ÚRVAL
Röntgenmyndir af lungunum
eru ólíkar í þessum tveim sjúk-
dómum. Engin mikil farsótt
hefir enn brotizt út af vírus-
lungnabólgu, en influenzan 1918
breiddist um heim allan.
Hvers vegna kemur þessi, að
því er virðist, áður óþekkta
veiki upp nú?
Ef til vill er það skyndileg
uppvakning gamallar plágu.
Útbreiddar farsóttir, svo sem
svarti dauði og inflúenza hafa
herjað um tíma, en síðan dáið
út. Orsökin til slíkra breytinga
í gangi farsótta er jafnvægis-
breyting í baráttunni milli
manna og baktería. Þegar ný
pest kemur upp eða gömúl pest
magnast á ný, getur mótstaða
sjúklinganna verið lítil eða
engin. Smám saman minkar
sýkingarmáttur bakteríunnar
eða náttúrleg mótstaða manna.
eykst, eða hvort tveggja, svo að
jafnvægisbreyting verður og
farsóttin gengur hjá.
Þar eð sulfa-lyfin eru gagns-
laus til lækninga á vírus-lungna-
bólgu, verður að finna nýjar
lækningaaðferðir. Með þekktum
lyf jum má lina verstu óþægindi
sjúklinganna, svo sem hósta,
beinverki og hita, en á þessu
stigi málsins er fullkomin lækn-
ing eingöngu komin undir mætti
líkamans að ráða niðurlögum
veikinnar.
pjNGUR LIÐSFORINGI í her Bandaríkjanna, sem dvelst utan
heimalandsins, er heldur latur að skrifa heim og hefir því
fundið upp handhæga og fljótvirka aðferð í því efni. Hann
skrifar hin almennu upphafsorð bréfsins, klippir svo stórt, fer-
hymt gat á örkina og fyrir neðan eyðuna skrifar hann: ,,Þinn
einlægur. Bill.“ Þið getið imyndað ykkur eftirvæntingarfulla
aðdáun móttakandans, þegar hann sýnir kunningjum sinum
bréfið og segir: „Ekki hefir þetta passað í kramið hjá rit-
skoðuninni, maður!"
August J. Wiesner, jr. i „Readers Digest".