Úrval - 01.12.1950, Blaðsíða 27
HVAÐ ÉG ER, OG HVAÐ ÉG HUGSA
23
það var eins og reka nagla gegn
um pappírsarkir.
Þér spyrjiö mig hvenœr ég
hafi fengiö áhuga á stjórnmál-
um og á hvern hátt pau hafi
haft áhrif á verk mín.
Þér vitið, að um 1880 heyrði
ég Henry George flytja ræðu,
það var hann, sem opnaði augu
mín fyrir mikilvægi efnahags-
málanna. Ég las verk Marx.
Töframátur Marx var raunveru-
lega fólginn í skírskotun hans
til ónefndrar ástríðu, sem ekki
var viðurkennd: haturs góðvilj-
aðra manna í hópi velmetinna
menntamanna til þeirra mið-
stéttarstofnana, sem höfðu
kyrkt, afvegaleitt og spillt and-
legum þroska þeirra allt frá fæð-
ingu. Das Kapital eftir Marx er
ekki ritgerð um sósíalisma: hún
er reiðilestur yfir borgarastétt-
inni, studdur fjölda sannana
og borinn upp af hinni miskunn-
arlausu, gyðinglegu snilligáfu
á sviði gagnrýni og ákæru. Hún
er stíluð til verkalýðsstéttarinn-
ar, en verkamaðurinn ber virð-
ingu fyrir borgarastéttinni og
þráir að verða borgari. Það voru
hinir uppreisnargjörnu synir
borgarastéttarinnar sjálfrar:
Lassalle, Marx, Liebknecht,
Morris, Hyndman, (og Lenin,
Trotsky og Stalin) : allir af
borgarastéttinni eins og ég, sem
máluðu fánann rauðan. Bakun-
in og Kropotkin, sem voru af
herforingja- og aðalsstétt, voru
stjórnleysingjar, sem stóðu
lengst til vinstri í hópi okkar.
Ungir og eignalausir mennta-
menn eru hinn byltingarsinnaði
hluti þjóðfélagsins: öreigarnir
eru hinn íhaldssami hluti þess,
eins og Disraeli, hinn íhaldssami
lýðræðissinni, gerði sér ljóst.
Marx gerði mig að sósíalista og
bjargaði mér frá því að verða
bókmenntalegur fagurkeri.
Hver er skilgreining yðar á
kímni?
Allt sem vekur hlátur. En
sönnust er sú kímni, sem jafn-
framt hlátrinum kallar fram tár.
Hvert er, í hreinskilni sagt,
álit yðar á G.B.S.?
Hann er einhver bezti skáld-
skapur minn, en farinn að ger-
ast dálítið þreytandi, að ég hygg.
Mér leiðist G.B.S., nema þegar
hann er að segja eitthvað sem
þarf að segja og bezt verður
sagt á G.B.S. máta. G.B.S. er
loddari.
Mig langar að heyra í fáum
orðum álit yðar á því hver sé
tilgangur hinnar miklu kómediu
tilverunnar.