Úrval - 01.12.1950, Qupperneq 79

Úrval - 01.12.1950, Qupperneq 79
STROKUMAÐUR EÐA STRlÐSHETJA? 75 ákvað ég að láta sem farangur minn hefði týnzt í Manila og reyna að fá flugfar þangað til að sækja hann. Ég vissi, að ef ég kæmist til Manila, mundi ég komast aftur um borð í skipið mitt. Þegar flugvélin lenti á Hob- son flugvellinum, komu þrír flugliðsforingjar um borð, Bak- er majór, yfirforingi vallarins, Royal höfuðsmaður og Girak liðsforingi, hann var einskonar allra gagn á vellinum. Girak faðmaði mig og sagði: „Mikið er gott að þú skulir vera kom- inn; ég hef ekki gert annað en naga neglurnar síðan þú fórst frá Bandaríkjunum.“ Baker majór sagði: „Kanntu að vél- rita? Aðalstarf þitt verður að :skrifa dagbók vallarins." Ég játti því. Aðalstarf mitt hafði einmitt verið að skrifa dagbók skipsins. Svo minntist ég á far- angurinn minn, sagði að hann hefði einhvernveginn misfarist á leiðinni til Manila, og að ég vildi helzt komast strax til Manila aftur til að hafa upp á honum. „Hvaða vitleysa!“ sagði Gir- ak. „Hann kemur eftir nokkra daga. Og þó svo verði ekki, þá vill svo vel til, að ég losna úr herþjónustu eftir nokkra daga, og þar sem við erum svipaðir vexti, geturðu hæglega notað mína einkennisbúninga.“ ,,Auðvitað,“ sagði majórinn, „það er ástæðulaust að þevtast aftur til Manila.“ Ég reyndi að fá þá til að lofa mér að fara, en það tókst ekki. Svo virtist sem dagbókarfærsl- an væri eitthvað í ólagi (það var skortur á vélriturum á vellin- um), og majórinn vildi að ég byrjaði strax. Girak fór eftir tvo daga og ég tók opinberlega við stöðu hans. Ég vissi, að ég var í slæmri klípu, en mér fannst eins gott að halda leiknum áfram úr því að hann var byrjaður. Ég hélt mér út af fyr- ir mig, talaði við fáa og skrifaði skýrslur. Majórinn var ánægður og hældi mér á hvert reipi. Ég furðaði mig mest hvað orðið hefði af hinum raunverulega Wobbly liðsforingja, en átti von á að hann kæmi á hverri stundu. (Hér þykir rétt að skjóta inn í hvað varð af Wobbly liðsforingja, sem Sommers hafði skilið eftir berstríp- aðan i baðherbergi liðsforingjaklúbbs- ins í Manila. John Charles Wobbly hafði fengið fyrirskipun um að fara frá San Francisco til Hobson flug- vallarins á Norður-Luzon. Þegar hann kom til Manila, fór hann rakleitt í liðsforingjaklúbbinn til að hressa upp á sig og fá sér bað. Þegar hann kom úr baðinu, fann hann hvergi fötin sín. Hann setti sig samstundis í samband við herlögregluforingja staðarins og' tilkynnti stuldinn. TÞegar herlögreglu- foringinn heyrði nafn hans, kvaðst hann hafa leitað hans lengi, því að skipun hefði komið um að hann breytti áætlun og færi til Ástralíu í stað Hobsonflugvallarins. Wobbly bar sig aumlega yfir missi allra skil- ríkja sinna, en lögregluforinginn kvaðst skyldi bæta úr því, en hann yrði að fljúga áfram til Astralíu strax næsta morgun.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.