Úrval - 01.08.1955, Blaðsíða 2
Hófsemi.
Kvöld eitt fyrir nokkrum vik-
um var meira en helmingur allra
sjónvarpstækja í Bandaríkjunum
stilltur á dagskrá þar sem mið-
aldra húsmóðir frá Pennsylvaníu
var látin svara spurningum úr
biblíunni. Þessi húsmóðir, sem
heitir frú Kreitzer og er kona
trésmiðs í Mechanicsburg, var
orðin þjóðhetja. Hún hafði í
þrjár undanfarnar vikur komið
fram í nýjum getraunaþætti, sem
kallaður er „64.000 dollara spurn-
ingin“. Sá sem spurður er, velur
sér efni það, sem spurningarnar
eru teknar út, og svari hann
fyrstu spurningunni rétt, fær harm
64 dollara, svari hann þeirri næstu
rétt, fær hann 128 dollara, o.s.frv.
•— en sá böggull fylgir skamm-
rifi, að allur vinningurinn er í
veði við hverja spurningu, með
' einu röngu svari er öllu glatað.
Frú Kreitzer hafði kosið sér
biblíuna sem viðfangsefni og hafði
svarað rétt öllum spurningum allt
upp í 8000 dollara spuringuna,
þegar hún var spurð hvað fing-
urinn hefði skráð á vegginn í
veizlu Belsazars. Hún svaraði því
rétt og næstu viku kom hún til
að reyna við 16.000 dollara spurn-
inguna. Hún var beðin að nefna
sex af bræðrum Jósefs, þeirra á
meðal þann yngsta. Hún byrjaði
á Benjamín og Rúben, síðan
nefndi hún aðra tvo og endaði
á Sebúlon. 1 næstu viku var hún
spurð, hvort hún vildi halda þess-
um 32.000 dollurum eða hætta
þeim fyrir 64.000 dollara spurn-
ingu. Húsmóðirin hugsaði sig um
andartak, svo svaraði hún: „Ég
var ósmeyk að svara 4000 dollara
spurningunni, og 8000 og 16000
og 32000 dollara spurningun-
um,“ Hún dró andann djúpt og
milljónir áheyrenda héldu niðri
í sér andanum. „Og ég er ósmeyk
að svara 64000 dollara spurning-
unni.“ Áhorfendur i útvarpssai __
lustu upp fagnaðarópi. „En,“ bætti
hún við, „ég baðst fyrir og ég
fékk svar við bæn minni. Ég
minntist orða Páls postula í Ef-
esusbréfinu: „Gerið hófsemi yðar
kunna öilum mönnum." Ég ætla
að gera ölium mönnum kunna
hófsemi mína.“
Hún tók við 32.000 dollara ávís-
uninni, þakkaði fyrir sig og
kvaddi. En í dyrunum staðnæmd-
ist hún. „Æ, hvað sagði ég,“ mælti
hún og skellti á lærið. „Það \ar .
ekki í Efesusbréfinu, heldur í
Filippíbréfinu.“
— Alistair Cooke í ,,The Listener".
Þýöendur (auk ritstjórans): Björn Fratizson (B. FJ, Ölafur Sveinsson
(Ó. SvJ, Erlingur Halldórsson (E. H.) og Úskar Bergsson (Ö.BJ.
tíRVAL — tímarit. — Kemur út 8 sinnum á ári.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16, Reykjavík. Sxmi 4954.
Afgreiðsla Tjarnargötu 4. Sími 1174. Áskriftarverð 85 krónur.
TJtgefandi: Steindórsprent h.f.