Úrval - 01.08.1955, Blaðsíða 31
AUSTURRÍKI BNDURHEIMTIR SJÁLPSTÆÐI SITT
29
það hvers eðlis hlutleysi Aust-
urríkis verður í framtíðinni.
Eitt er víst: Austurríki mun
vinna að því að fá upptöku í
Sameinuðu þjóðirnar — að því
leyti verður hlutleysi þess frá-
brugðið hlutleysi Sviss. Vissu-
lega eru þegar uppi óttaslegn-
ar raddir, sem vara við þeim
erfiðleikum, er muni mæta okk-
ur þegar við verðum að taka
afstöðu til deilumála innan Sam-
einuðu þjóðanna. Því skal ekki
neitað, að margir erfiðleikar
munu verða á vegi hlutlauss
Austurríkis á mörkum austurs
og vesturs. En hlutleysi er
ekki sama og aðgerðarleysi,
og þeir erfiðleikar, sem fylgja
kunna aðild að S. þ. munu
ekki vega jafnþungt á metunum
og það öryggi, sem því fylgir að
vera aðili að þessum stærstu og
víðtækustu samtökum þjóða
heimsins.
Við höfum lært af biturri
reynslu undanfarinn áratug, við
vitum hve haldlitlir alþjóða-
samningar geta verið, og við
horfum fram á við með ærlega
fenginni efagirni. En við höf-
um nægilega mikla trú á innra
mætti þjóðarinnar til þess að við
látum ekki þá ofboðslegu skelf-
ingu ná tökum á okkur, sem
stundum knýr menn „til sjálfs-
morðs af ótta við dauðann.“
Auglýsing.
Brezki fjármálamaðurinn Sir James Henderson segir frá þvi,
að hann hafi keypt eina flösku af whisky í New York. Áfast-
ur við flöskuna var miði sem á stóð letrað:
Ur þvi að þér getið ekki neitað yður um að drekka, hví
þá ekki að opna vínstofu á heimili yðar? Þér verðið eini við-
skiptavinurinn og þurfið því ekki að kaupa vínsöluleyfi. Látið
konuna yðar fá 55 dollara til að kaupa einn kassa af whisky.
1 einum kassa eru 240 sjússar.
Kaupiö svo allt vín, sem þér drekkið, af konunni yðar fyrir
60 cent sjússinn, og eftir tólf daga, þegar kassinn er búinn,
hefur konan yðar í höndum 89 dollara til að leggja í banka og
55 dollara fyrir nýjurn whiskykassa til að halda verzlunni
gangandi.
Ef þér lifið í tíu ár og haldið áfram að kaupa allt sem þér
drekkið af konunni yðar og dettið síðan dauður niður, mun
ekkjan yðar eiga 27.085,47 dollara i banka ■— sem nægir til
að koma yður sómasamlega í gröfina, ala upp börnin ykkar,
standa straum af vöxtum og afborgunum af húsinu, giftast
reglumanni og gleyma því að hún hafi nokkurn tima þekkt yður.
— Daily Telegraph.