Úrval - 01.08.1955, Blaðsíða 77

Úrval - 01.08.1955, Blaðsíða 77
BRÉF HINNA DAUÐADÆMDTJ 75 ,,Kæra, ástfólgna . . . skrif- ar Svetlogup móður sinni og fer að gráta. „Fyrirgefðu mér, fyrirgefðu, að ég skuli valda þér öllu þessu angri. Hvort sem ég er nú afvegaleiddur eða ekki — ég gat ekki annað. Aðeins eitt bið ég þig um: Fyrirgefðu! . . . Syrgðu mig ekki. Svolítið fyrr, svolítið síðar, skiptir það nokkru máli ? Eg óttast ekki og iðrast ekki þess, sem ég hef gert. Ég gat ekki annað. Fyrir- gefðu mér bara. Og reiðstu ekki neinum, hvorki þeim, sem ég vann með, né þeirn, sem lífláta mig . . . Fyrirgefðu þeim, því að þeir vita ekki, hvað þeir gera. Um sjálfan mig voga ég ekki að endurtaka þessi orð, en þau búa í hjarta mínu, hressa mig og róa. Fyrirgefðu! Ég kyssi kæru, gömlu, hrukkóttu hend- urnar þínar! . . . Ég græt,“ bætir hann við, þegar tvö tár hafa dottið niður á pappírinn og runnið út, ,,ég græt ekki af trega eða angist, heldur af hrifningu frammi fyrir hátíðleg- asta augnabliki lífs míns, og af því ég elska þig . . . dauðann óttast ég ekki. Því ef satt skal segja: ég skil hann ekki og trúi ekki á hann . . . “ „Fyrirgefðu, kæra móðir,“ skrifar austurríska frelsishetj- an Mittendorfer, í nóvember 1942, fáum stundum fyrir af- tökuna, „að ég verð því miður að baka þér þennan sársauka. Ég hef margsinnis hugleitt það, hvort þetta var nauðsynlegt, hvort ég hefði ekki átt að gera eitthvað annað, en ég komst aðeins að þessari einu niður- stöðu: ég gat ekki annað . . . Ég iðrast þess ekki, líf mitt hef- ur ætíð verið heiðarlegt og hnar- reist, og þannig dey ég líka. Kæra móðir, ég veit, hve þú tekur dauða minn nærri þér, mig grunar, hve erfitt það hlýt- ur að vera fyrir móður að verða að grafa barnið sitt, því sem var veitt svo mikil ást, svo mikl- ar sorgir, fórnað svo mörgum tímum, dögum og nóttum . . . Jæja, það er nú einu sinni svona, börn valda foreldrunum harmi, í æsku litlum harmi, og því stærri sem þau verða, því meiri verður harmurinn . . . Ég fæ ekki framar að sjá þig, kæra móðir, en samt sé ég andlit þitt og finn þig alveg í nám- unda. Með hugann hjá þér mun ég kveðja heiminn. Þakka þér ennþá einu sinni fyrir alla góð- vildina og kærleikann, aðeins eina bón á ég eftir: haltu áfram að vera hugprúð og sterk mín vegna . . .“ Maður dáist að skáldskapn- um, því að hann kann að tala alveg eins og lífið. Maður er tvöfalt gagntekinn af lífinu, því að það talar, án þess að vita það, alveg eins og skáldskapurinn. Þetta hljómar ekki öðruvísi á frönsku. Fernande Volral frá Charleroi skrifar: „Ég bið ykk- ur öll fyrirgefningar á sársauk- anum, sem ég hef valdið ykk- ur, en ég veit, að þið munuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.