Úrval - 01.08.1955, Page 21
lím talnakeríið.
Ástæða er til í sambandi við hin-
ar háu tölur í greininni hér á undan,
að leiðrétta rugling, sem stundum
kemur fyrir hér á landi, einkum á
síðustu árum, í meðferð hátalnanna
biljón, triljón o. s. frv. Orð þessi
eru fyrst upprunnin í Frakklandi
á 16. öld og voru þá látin tákna
vaxandi veldi af miljón, en síðan
var sú undarlega breyting gerð á
merkingu þeirra þar i landi, að þau
voru látin tákna miljón sinnum
vaxandi veldi af þúsund, og þessi
afbakaða merking komst svo í tízku
í Bandaríkjunum og Rússlandi.
Upprunalega merkingin hefur hins
vegar alla tíð verið i gildi annars
staðar á meginlandi Evrópu, í Bret-
landseyjum, í Skandínaviu og á Is-
landi, og samkvæmt henni er kerfið
að réttu lagi þannig:
miljón
biljón = miljón X-
miljón
triljón = miljón X-
miljón X miljón
kvadriljón
kvintiljón
sextiljón
septiljón
oktiljón
nóniljón
desiljón
= miljón1 = 108
= miljón2 = 1012
= miljón3 = 1018
= miljón1 = 102‘
= miljón3 = 10”
= miljón” = 10”
= miljón7 = 10,|!
= miljón8 = 10‘8
= miljón9 = 10”
= miljón10 = 10“°
Milli miljónar og biljónar er svo
skotið töluorðinu miljarður, sem
táknar þúsund miljónir og oft er
nytsamlegt, einkum tii að tákna
mjög stórar fjárhæðir, en hærri
töluorða er mjög sjaldan þörf nema
í stjömufræði og öðrum eðlisvísind-
um.
Afbakaða kerfið, sem notað er í
Frakklandi, Bandaríkjunum og Ráð-
stjórnarríkjunum, er hins vegar
þannig:
miljón = 10“
biljón = miljón X þúsund = 10’
triljón = miljón X þúsund X-
þúsund = 10I!
kvadriljón = 1015
kvintiljón = 1015
sextiljcn = 1021
septiljón = 1024
oktiljón = 1021
nóniljcn = 10”
desiljón = 10”
Enginn efi er á því, að uppruna-
lega kerfið, sem flestar Evrópuþjóð-
ir nota, er bæði fallegra og rökrétt-
ara, eins og sést ef raðir veldisvísanna
í þessum tveim kerfum eru bornir
saman. Af því leiðir, að uppruna-
lega kerfið er miklu auðveldara í
meðförum, svo að síður er hæ'tta á
ritvillum eða reikningsvillum í sam-
bandi við það. Mest mun þó vera
um það vert að flestra dómi, að upp-
runalega kerfið svarar tilgangi sín-
um miklu betur, með því að það nær
alla leið upp í 10“, þar sem hitt nær
ekki nema upp í 10”, sem er nær
helmingi lægri veldistegund, en sá
munur veldistegundar felur í sér
svimandi mismun talnagildis, þegar
svona hátt er komið í talnaröðina.
Sú villa, sem algengust er í þessu
efni hér á landi, er nú í því fólgin, að
orðið biljón sé notað i hinni afbökuðu
merkingu, ef þýtt er úr bandarískum
blöðum eða bókum. Þess vegna
skyldu menn athuga, að þar sem orð-
ið biljón kemur fyrir í frönskum,
bandarískum eða rússneskum ritum,
ber að þýða það á íslenzku með orð-
inu miljarður eða þá þúsund milj-
ónir, því að okkar biljón er í rauninni
þúsund sinnum stærri tala. Þar sem
triljón stendur i bandarískum ritum,
ber að þýða það með orðinu biljón,
þeirra kvadriljón er þúsund biljónir
í okkar kerfi, þeirra kvintiljón er
okkar triljón o. s. frv. Aftur ber
að nota þessi töiuorð óbreitt, eins og
þau standa í annarra þjóða ritum,
skadínavískum, brezkum, þýzkum o.
s. frv.
Björn Franzson,
3*