Úrval - 01.08.1955, Page 57

Úrval - 01.08.1955, Page 57
MERKILEGAR ELLITILRAUNIR 55 raunum sínum í tímaritinu „Scientific American.“ Hann notaði glerplötu með litlum, kringlóttum hvilftum eða skál- um í. I skálarnar setti hann æti, mest þörunga, og í hverja skál eitt hjóldýrsegg, ■ öll af sama erfðastofni, og klakti þeim þannig út við sömu skilyrði. Síðan flokkaði hann afkvæmi þessara dýra eftir ýmsum regl- um og fylgdist með þeim kyn- slóð fram af kynslóð. Með því að taka alltaf, kynslóð fram af kynslóð, fyrstu eggin sem dýrin verpa eftir að þau komast á tímgunaraldur, fékk hann ætt- legg með einstaklingum, sem aðeins voru afkvæmi ungra mæðra. Á samsvarandi hátt fékk hann ættleg með dýrum, sem aðeins voru afkvæmi gam- alla mœðra, og þannig gat hann fengið afkvæmi mæðra af ýmsum aldursflokkum. Með því að öll þessi hjóldýr höfðu sömu erfðaeiginleika og voru alin upp við sömu skilyrði var tæpast við því að búast, að óreyndu, að nokkur verulegur munur yrði á ævilengd dýr- anna í hinum ýmsu flokkum. Það kom þó í ljós, að ævi- lengd afkvæma gamalla mæðra styttist með hverri kynslóð, unz ættleggurinn að lokum dó út. Væru t. d. tekin egg frá 17 daga gömlum hjóldýrum, sem sjálf náðu 24 daga aldri, lifðu afkvæmin í fyrstu kynslóð aðeins 18 ‘daga að meðaltali, í annarri kynslóð 14 daga og þriðja kynslóðin átti yfirleitt engin egg. I ættlegg lítið eitt yngri mæðra styttist æviskeið- ið hægar; væru tekin egg frá 11 daga gömlum mæðrum, urðu kynslóðirnar fjórar; hjá 8 daga gömlum mæðrum urðu kynslóð- irnar 8 áður en þær urðu ófrjó- ar. Þegar um afkvæmi nýþrosk- aðra — 6 daga — gamalla mæðra var að ræða, styttist aldurinn að vísu jafnt og þétt, en mjög hægt: 17. kynslóð varð ófrjó. Þessar niðurstöður benda til, að öll fullvaxin hjóldýr arfleiði afkvæmin sín að einhverju, sem veldur því, að ellin kemur fyrr til sögunnar hjá þeim en móðurinni, og að þessi eiginleiki erfist í stöðugt vaxandi mæli. Maður gæti þá hugsað sér, að afkvæmi, sem stöðugt væru tekin frá mæðr- um, sem ekki væru fullþroska, hefðu ekki í sér þennan erfða- faktor, og mætti þannig rækta þau endalaust. Þetta hefur raun- verulega fengizt staðfest með tilraunum: fylgzt var með af- kvæmum 5 daga gamalla hjól- dýra í 54 kynslóðir. Lífdögum dýranna hafði þá — gagnstætt því sem verið hafði um afkvæmi fullorðinna og gamalla mæðra -— fjölgað jafnt og þétt upp í 104 daga, þegar tilraununum var hætt. Niðurstaðan af þessum til- raunum varð þannig sú sama og hjá Sonneborn: tilraunir beggja leiddu í ljós, að afkvæmi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.