Úrval - 01.10.1955, Qupperneq 2

Úrval - 01.10.1955, Qupperneq 2
Lífið — hið mikla œvintýri. Fyrir nokkru voru fluttir sam- talsþættir í franska útvarpið um lífið í ljósi vísindanna. Þeir sem ræddu þetta yfirgripsmikla efni, voru líffræðingurinn og rithöf- undurinn Jean Rostand og blaða- maðurinn Paul Bodin. Rostand er einn af kunnustu líffræðingum Frakklands, fædd- ur árið 1894. En auk vísindarann- sókna hefur hann fengizt mikið við ritstörf, ekki aðeins um líf- fræði, heldur einnig um heimspeki, félagsmál o. fl. Með sltrifum sín- um hefur Rostand meira en nokk- ur annar vakið áhuga fransks al- mennings á erfðafræði og líffræði og gildi þessara vísindagreina fyr- ir velferð mannsins, hamingju -hans og framtíð. Paul Bodin er vinsæll og þekkt- ur blaðamaður, fjölfróður og fjöl- hæfur. Hann hóf ritferil sinn með því að gefa út ljóðabók, síðan komu út eftir hann fjórar skáld- sögur. Árið 1944 gerðist hann fréttaritari eins stærsta blaðs Par- ísar og ferðaðist á næstu árum víða um heim. Vísindi hafa þó alla tið verið honum mikið áhugamál og skrif hans um þau efni hafa aflað honum mikilla vinsælda, einkum viðtöl, sem hann hefur átt við ýmsa þekktustu vísindamenn heimsins. Það stóðu því öll efni til þess að samtalsþættir þeirra Rostands og Bodins yrðu vinsælt útvarps- efni, enda varð reyndin sú, að meira var hlustað á þá en flesta ef ekki alla aðra dagskrárliði franska útvarpsins. Þættirnir urðu alls tólf og gefa heiti þeirra nokkra hugmynd um hve víða þeir félagar komu við í samtölum sín- um: 1) Sköpunar-,,undrið,“ 2) Ævintýrið um apafóstrið, 3) Börn 20. aldarinnar eru 200.000 ára gömul, 4) Afburðamenn fara for- görðum, 5) Karlmenn eru hið veika kyn, konur hið sterka, 6) Geta vísindin skapað nýjan mann?, 7) Drengur eða stúlka? Meyjarfæðing?, 9) Sigrazt mun verða á öllum sjúkdómum, 10) Mannsaldurinn gæti orðið 120 ár, 11) Örlög jarðarinnar og okkar sjálfra, 12) Lög og siðgæði i Ijósi líffræðinnar. Vegna hinna einstæðu vinsælda, sem þessir samtalsþættir nutu, voru þeir á eftir gefnir út í bókar- formi. Þessi bók er nýkomin út i enskri þýðingu og nefnist Life, the Great Adventure. Úrval hefur náð í þessa bók og birtir hér á eftir fyrsta kaflann úr henni. Fleiri kaflar munu koma í næstu heftum. tírval telur mikinn feng í að geta birt þessa bókarkafla. Efnið sem um er fjallað, er flest- um mönnum hugtækt og fram- setning þess er einkar Ijós og skemmtileg. Jafnframt þvi sem þeir félagar miðla lesendum mikl- um fróðleik, kveða þeir niður margskonar villukenningar og hindurvitni, sem enn dafna vel, þrátt fyrir öll vísindi. Þýðendur (auk ritstjórans): Ólafur Sveinsson (Ö. Sv.), Óskar Bergs- son (Ö. B.) og Geir Kristjánsson (G. K.). tJRVAli — tímarit. — Kemur út 8 sinnum á ári. Ritstjóri: Gisli Ólafsson, Leifsgötu 16, Reykjavik. Sími 4954. Afgreiðsla Tjarnargötu 4. Sími 1174. Áskriftarverð 85 krónur. TJtgefandi: Steindórsprent h.f. I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.