Úrval - 01.10.1955, Síða 64

Úrval - 01.10.1955, Síða 64
62 ÚRVAL andi, næstum fávitalegur bónda- durgur. Skömmu eftir að fimmburarn- ir urðu sjö ára, þurfti Dafoe læknir að ganga undir krabba- meinsuppskurð. Þegar hann kom aftur til að vitja fimmbur- anna, eftir tveggja mánaða sjúkrahúsvist, tóku þær honum fálega. Foreldrarnir höfðu not- að burtuveru hans til að sann- færa börnin um, að Dafoe lækn- ir ætti alla sök á þeim deilum, sem staðið hefðu um þær. Eftir þetta urðu vitjanir Dafoes æ strjálari og 14. febrúar 1942 lagði hann niður starf sitt sem læknir þeirra. Ári seinna dó hann úr lungnabólgu, brotinn maður og saddur lífdaga. Eftir að Dafoe læknir hætti afskiptum af fimmburunum, hertu foreldrarnir á kröfu sinni um að fá þá heim, og í byrjun ársins 1942 fengu þau aftur um- ráðarétt yfir þeim. Fjölskyldan flutti þá öll á barnaheimilið meðan verið var að reisa nýtt hús fyrir fé, sem Oliva hafði aflað með því að selja minja- gripi og eiginhandaráritanir. Árið 1944 flutti fjölskyldan í nýja húsið, og samtímis var Dionne-lögunum breytt þannig, að Oliva fékk umráðarétt yfir fjármunum fimmburanna, en var þó skyldaður til að gera barnaverndarnefnd ríkisins grein fyrir ráðsmennsku sinni. Eftir að fimmburarnir voru fluttir heim til foreldra sinna, varð smátt og smátt hljóðara um þá og fólk hætti að koma til að skoða þá. Stöku sinnum mátti að vísu lesa um það í blöð- um hvað þeim liði og hvernig líf þeirra væri, en það var ekki fyrr en í ágúst í fyrra, að at- hygli heimsins drógst aftur að þeim. Það var þegar Emilie dó. Systurnar voru orðnar nítján ára þegar þær skildu í fyrsta skipti. Það var þegar Marie, sem frá fæðingu hafði verið pastursminnst og feimnust, á- kvað að gerast nunna og gekk í klaustur Systra hins heilaga sakramentis, en það er ein strangasta klausturregla ka- þólsku kirkjunnar. Um sama leyti fóru systur hennar tvær og tvær í sinn hvorn klaustur- skóla. Vorið 1954 hittust systurnar fjórar aftur á heimili sínu, þá tvítugar. Allar söknuðu þær sárt Marie. Með skömmu milli- bili gerðist svo þrennt, sem vakti athygli almennings á fimmburunum. Fyrst spurðist það, að Marie mundi yfirgefa klausturlífið af heilsufarsástæðum. Hinn 16. júlí barst út sú undarlega frétt, að Emilie hafði fundizt á götu í Montreal, hjálparvana og ráð- villt og hefði lögreglan tekið hana í sína vörzlu. Hún hafði verið utan við sig og ekki get- að gert grein fyrir erindi sínu í borginni. Hún var flutt til Waterloo í Quebechéraði, þar sem ein eldri systir hennar var gift. Þrem vikum síðar barst
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.