Úrval - 01.10.1955, Page 71

Úrval - 01.10.1955, Page 71
ÞEGAR KRANSÆÐ 1 HJARTA STÍFLAST 69 en hann reif sig jafnharðan upp aftur. Enginn kom. New York lögreglan sendi símskeyti til lögreglunnar í Con- necticut og bað að ættingjum hans yrði gert viðvart. Skeytið hafði tafist og komið var langt fram yfir miðnætti þegar lög- reglubíll staðnæmdist fyrir framan heimili hans. Konan hans hafði farið snemma að hátta, í þeirri trú að hann hefði tafizt á skrifstofunni. Lögreglu- þjónninn gat ekki sagt henni annað en það sem stóð í skeyt- inu — að hann væri „veikur og lægi í Fordhamsjúkrahús- inu“. Þau voru nýflutt í þetta hverfi og hún þekkti engan í nágrenninu sem hún gat leitað til um þetta leyti nætur og beð- ið að gæta drengjanna. Kominn var miður morgun þegar hún kom á spítalann. Hann sá hana koma inn um dyrnar og fylltist þakklæti yfir því að hann skyldi hafa fengið að lifa nógu lengi til að sjá hana aftur. Brátt kom heimilislækn- irinn og hjartarit var tekið. Á því mundi sjást hve víðtæk skemmdin var. Mannshjartað innir af hendi geysilegt starf. Á hverjum degi dælir það yfir 10000 lítrum af blóði gegnum þúsundir mílna af æðum í líkamanum. Til þess að næra vöðvavefi sjálfs sín þarf það mikið blóð, sem rennur gegnum tvær kransæðar og greinar þeirra. I heilbrigðum manni er innra borð kransæð- anna hreint og slétt. En í þeim, sem eiga á hættu að fá krans- æðastíflu, hefur safnast þykk- ildi innan á æðaveggina, er það fitukennt efni sem nefnist kóle- steról. Mikið af því er í sumum tegundum matvæla, svo sem eggjum og fitu, og auk þess framleiðir líkaminn það sjálfur. Einhvers staðar í kransæðum sögumanns okkar hafði kóle- steról valdið stíflu. Um langt skeið, ef til vill árum saman, hafði það aðeins lítillega hindr- að eðlilegt blóðrennsli. En ný- lega hafði blóð tekið að safn- ast fyrir að baki þessarar hindr- unar í hringiðu, og þegar hann gekk inn á brautarpallinn hafði hringiðan stækkað. Það blóð sem ekki komst áfram hafði þá tekið að síast í gegnum æð- arvegginn. Til að stöðva lekann hafði slagæðin dregist saman eins og í krampa og við það stöðvaðist allt rennsli um hana. Þar með var nokkur hluti hjart. ans sviftur næringu sinni og olli það kvölunum. Hjartað fékk enn næringu gegnum aðrar greinar kransæðanna, og þess- vegna var mestur hluti þess óskemmdur, en sá hlutinn, sem sviftur var næringu, dó raun- verulega. Þetta hjartatilfelli hans var ekki á neinn hátt óvenjulegt. 1 Bandaríkjunum einum saman fá hundruð þúsunda manna svip- uð tilfelli á hverju ári. Þau stafa öll af því að hindrun hef- ur orðið á blóðrennsli um krans-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.