Úrval - 01.10.1955, Side 78
76
ÚRVAL
rán hófust víðsvegar um borg-
ina. Menn sem sátu f astir í rúst-
unum voru neyddir til að segja
hvar í rústunum fjármunir
þeirra væru, og voru síðan
skotnir eða reknir í gegn. Fang-
arnir, sem sluppu lifandi úr
borgarfangelsinu, voru eins og
villidýr; þeir nauðguðu særðum
eða deyjandi konum, skáru fing.
ur eða eyru af særðu fólki og
limlestu eða myrtu fólk, sem
varð á vegi þeirra. Af því að
fæstir borgarbúar lögðu fé sitt
í banka, var mikið af fé í heima-
húsum. Kirkjur og klaustur
voru rænd og þar voru ekki
aðeins atvinnuþjófar að verki.
Er leið á daginn komu sikileysk-
ir bændur ofan úr sveit með
asna sína og körfur og rændu
skartgripaverzlanir, veitinga-
staði og íbúðarhús.
Þeir, sem bezt gengu fram í
björgunarstarfinu, voru sjóliðar
á rússneska herskipinu „Ami-
ral Makárov", sem lá í höfn
nærri Messína jarðskjálfta-
morguninn. Þegar skipherrann
fékk tilkynningu um ástandið í
Messína létti hann þegar akk-
erum og kom þangað um há-
degi 28. desember. Hófu Rússar
þegar björgunarstarfið, en
ítölsk herskip sem voru á þess-
um slóðum fóru sér að engu
óðslega og biðu eftir skipunum
frá Róm.
Björgunarstarfið var raunar
á margan hátt hneykslanlegt.
Svo var til dæmis um björgun
fjársjóðs dómkirkjunnar, sem
var 26 milljónir líra. Dómkirkj-
an var í rústum, en þar sem
altarið hafði staðið unnu sex
menn baki brotnu við að ryðja
burt grjóti og timburbraki til
þess að bjarga f jársjóðnum, sem
geymdur var undir gólffjölun-
um. Sem laun fyrir erfiðið var
þeim heitið eiginhandar bless-
un hins heilaga föður, páfans.
En meðan þessir sex menn grófu
af ákefð eftir hinum mikla fjár-
sjóði lágu særðir menn og deyj-
andi hjálparvana í rústunum í
kringum kirkjuna. Það varð um-
fram allt að bjarga fjármunum
kirkjunnar — „til heiðurs guðs-
móður og öllum heilögum“.
Konungur og drottning
brugðu skjótt við og komu á
slysstaðinn og það var Eman-
uel konungi mikið að þakka, að
skipulögð hjálparstarfsemi var
fljótlega hafin. Borgarstjóri
Messína, d’Arrigo, hafði flúið
borgina, en kom aftur til að
taka á móti konungshjónunum.
Hann fékk heldur kaldar kveðj-
ur hjá konungi, sem lét tilkynna
honum að hann væri settur af
og annar skipaður í stað hans.
Að frumkvæði konungs var
hraðað sendingu hermanna til
að annast hjálparstarfsemi, og
skipulagi var komið á aðflutn-
inga matvæla, lyf ja og bygging-
arefnis. Mazza hershöfðingi var
skipaður yfirmaður hersins á
jarðskjálftasvæðinu og strax á
eftir var lýst yfir umsátursá-
standi í Messína — til að binda
enda á rán, ofbeldisverk og