Úrval - 01.10.1955, Síða 81

Úrval - 01.10.1955, Síða 81
TRÚ OG SKYNSEMI 79 verið mjög á dagskrá síðan frú Margaret Knight flutti útvarps- erindi sín um siðgæði án trú- ar, og sú mótmælaalda, sem ummæli hennar vöktu, er glöggt dæmi um það, hve mjög sið- gæðishegðun er reist á trúar- skoðunum, þrátt fyrir lélega kirkjusókn. Við sendum börnin í sunnudagaskóla, þar sem þeim er kennt, að þau eigi að gera það sem rétt er, af því að það er vilji guðs. Vera kann, að fáir fullorðnir breyti í þeirri trú, að breytni þeirra hljóti umbun eða refsingu guðs almáttugs, en ef einhver lætur í ljós það álit, að trúaruppeldi sé ónauðsyn- legt, er svarið tíðum það að án trúar væri enginn mælikvarði á velsæmi og heiðarleik og eng- in ástæða til að halda fast við þær dyggðir. Sum trúarbrögð nota trúna meira sem mælisnúru fyrir sið- gæði en önnur, og hin ýmsu trú- arbrögð nota mismunandi að- ferðir til að tengja saman kenni- setningar og siðgæði. Kristin trú notar sennilega mest trúna á hið yfirskilvitlega til að stjórna með hegðun áhanganda sinna. Alger andstæða að þessu leyti er sú trú, sem kennda er við Kínverjann Konfutse; hún ér tæpast meira en reglur um göfugmannlega hegðun. Fróð- legt er að veita því athygli, að ,,vísindalegum Marxisma" svip- ar til trúarskoðana í notkun sinni á því sem telst sönn lýsing á því sem stundum er kallað hinn „endanlegi veruleiki" í þeim tilgangi að knýja menn til að hlíta sérstökum hegðunar- reglum. ,,Villa“ (hvort heldur er ,,vinstri“ eða „hægri villa“) á máli Marxista er sambærilegt við ,,synd“ á máli kristinnar trúar, þó að viðlögin séu all- miklu sársaukafyllri. Annað hlutverk trúarinnar er að hjálpa einstaklingnum til að laga sig eftir aðstæðum lífsins, styrkja mótstöðuafl hans gegn áföllum í lífinu. Er hann ein- mana? Guði er annt um hann, þótt allir aðrir láti sér á sama standa um hann. Er hann ístöðulaus ? Guð mun styrkja, hann. Er hann sorgmæddur? „Sælir eru syrgjendur, því að beir munu huggaðir verða.“ Er hann sjúkur? Sjúkdómurinn er- prófsteinn á trú hans. Finnst. honum lífið tilgangslaust ? Trú- in gefur lífinu tilgang. Á því er enginn vafi, að trú- in veitir mörgum mönnum styrk og gefur lífi þeirra tilgang á þennan hátt. og þetta hlutverk trúarinnar er sennilega áhrifa- mest í þeim skilningi, að meiri líkur eru til að maður haldi trú sinni, ef meginhlutverk hennar er að vera hjálp í nauðum, held- ur en ef það er annaðhvort að ráða siðgæði hans eða skýra fyrir honum fyrirbæri lífsins. Eins er það svo, að því ver sem maðurinn er búinn undir að mæta vandamálum lífs síns, þvi meiri líkur eru til að hann að- hyllist trú. Þannig er auðveld-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.