Úrval - 01.04.1956, Blaðsíða 60

Úrval - 01.04.1956, Blaðsíða 60
58 ÚRVAL „Takmörkun fæðinga“ hjá eyðimerkurplöntum. Allt frá dögum Darwins hef- ur „baráttan fyrir tilverunni“ verið talin sú meginregia, sem stjórnar vexti og viðgangi teg- undanna, og sú eina náttúrlega. Aftur á móti er annar hemill á ,,þéttbýli“, sem nefnist tak- mörkun fæðinga, mjög umdeild regla, sem kunnugt er, þegar um mannfólkið er að ræða, því að margir telja slíkt „á móti náttúrunni“ og þá um leið „á móti guðs vilja“. Harðar deilur era enn uppi um þetta meðal -presta og félagsfræðinga, eink- um í kaþólskum löndum. Svo virðist nú sem jafnólíklegir menn og grasafræðingar geti lagt orð í belg í þessu máli. Þeir hafa sem sé uppgötvað, að plönt- ur, sem búa við erfið lífsskilyrði nota í baráttu sinni fyrir tilver- unni „þaulhugsaðar“ aðferðir til takmörkunar á fæðingum. Þessi uppgötvun er árangur margra ára rannsókna, sem grasafræðideild Tæknistofnunar Kaliforníu hefur haft með hönd- um á þurrasta eyðimerkursvæði Kaliforníu, í Dauðadalnum svo- nefnda. I Dauðadalnum er úr- koman aðeins 33 mm á ári að meðaltali. Stundum geta liðið mörg ár án þess að dropi komi úr lofti. Eigi að síður vaxa jurt- ir í hinum þurra eyðimerkur- sandi. Þó að mest af gróðrinum visni og deyi þegar ekkert rign- ir árum saman, tóra nógu margar plöntur til þess að sand- urinn geti á skömmum tíma orðið þakinn gróðri ef ærleg skúr kemur úr lofti. Ein þessara harðgerðu jurta er mesquiterunninn með safa- miklum grænum blöðum. Hann þarf talsvert mikið vatn. Fyrir þeim þörfum sínum hefur hann séð með því að teygja rætur sínar alla leið niður í grunnvatn jarðar. En til þess þurfa þær að vera allt að 30 metra langar. Mesquiterunninn er eina plant- an í heiminum, sem frá lítilli spíru getur sent rætur 10—30 metra niður í jörðina áður en blöð og stönglar ná að þroskast nokkuð að ráði; hvaðan plant- an fær vaxtarorku og næringu til þess er enn hulin gáta. Kreósótrunninn hefur næst- um jafnviðamikið rótarkerfi, en ræturnar eru ekki eins djúp- sæknar, greinast meira út til hliðanna. Kreósótrunnarnir standa með svo jöfnu millibili, að engu er líkara en garðyrkju- maður hafi sett þá niður. Ástæð- an til þess er sú, að ræturnar gefa frá sér einskonar eitur, sem varnar því, að aðrir kreó- sótrunnar geti fest rætur nálægt þeim. Því meiri sem úrkoman er, því rneir skolast burt af þessu eitri, og þá ná ungir kreó- sótrunnar að festa rætur þeim mun þéttar. Er hér vissulega um óskeikula aðferð að ræða til að hafa hemil á þéttleik gróðursins í samræmi við lífs- skilyrðin á hverjum tíma. Aðrar plöntur takmarka fæð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.