Úrval - 01.04.1956, Blaðsíða 79
DREPSÓTT VESTURLANDA
77
ekki verið sannað, að neitt það
efni sé í sígarettureyk, sem geti
valdið krabbameini. Báðar þess-
ar mótbárur hafa nú verið
hraktar. Ameríska krabba-
meinsfélagið hefur frá því árið
1951 haft eftirlit með um 200
þús. manna., fylgst með reyk-
ingavenjum þeirra og rannsak-
að dánarorsakir þeirra. Á Bret-
landi hefur á fjórða ár farið
fram athugun á reykingavenj-
um og dánarorsökum lækna þar
í landi.
Báðar þessar athuganir hafa
leitt til sömu niðurstöðu og
hinar fyrri rannsóknir. í öðru
lagi hefur leitin að hinu
krabbameinsvaldandi efni í síga.
rettum gengið að óskum. Benz-
pyrene, þekkt krabbameinsvald-
andi efni, hefur verið einangrað
úr sígarettureyk, og tekizt hef-
ur að framkalla húðkrabba á
músum með sterkum sígarettu-
reyk.
Enda þótt sígarettureykingar
séu án efa aðalorsök hins ört
vaxandi lungnakrabba, getur
sjúkdómurinn líka stafað af
öðrum orsökum. Við höfum
sannanir fyrir því, að ákveðin
iðnaðarstörf, svo sem vinna við
geislavirk efni, nikkelhúðun og
ef til vill gasframleiðsla, hafa
aukna hættu í för með sér. Því
hefir einnig verið veitt eftirtekt,
að hlutfallslega deyja helmingi
fleiri úr lungnakrabba í stærri
borgum en sveitum. Um eitt
skeið héldu menn að þetta staf-
aði af því að borgarbúar reykja
meira en sveitamenn, en nýleg-
ar athuganir benda til þess, að
meiri krabbameinshætta sé
yfirleitt í borgum, bæði fyrir þá
sem reykja og hina, sem ekki
reykja. Menn hafa lengi vitað, að
benzpyrene er í venjulegu sóti
og að hægt er að einangra það
úr reykjarmistri borganna. Það
er því sennilegt að þetta efni sé
orsökin í báðum tilfellum. Einn-
ig hefur verið athugað hvort
reykur frá dieselvélum og notk-
un kveikjara í stað eldspýtna
gætu valdið krabbameini, en
niðurstaðan varð neikvæð.
Það er enginn vafi, að aðal-
hættan stafar frá sígarettunni.
Áhætta þeirra, sem eru miklir
pípu- og vindlareykingamenn, er
er að vísu talsvert meiri en
hinna, sem ekki reykja, en hins-
vegar miklu minni en þeirra,
sem reykja sama tóbaksmagn
í sígarettum. Þetta kann að
stafa af því, að þeir soga
síður reykinn niður í lungun.
En nýlega hefur komið í
Ijós við athugun, að sígarettu-
reykingamenn, sem ekki soga
reykinn niður í lungu, eða telja
sig ekki gera það, fá engu síður
lungnakrabba en hinir, sem hafa
þennan sið. ,,Öryggi“ vindilsins
og pípunnar stafar sennilega af
þvi, að tóbakið í þeim brennur
við allmiklu lægra hitastig. Það
hefur sannast, að meira benz-
pyrene myndast í tóbaki við hátt
hitastig, svo sem þegar síga-
retta brennur.
Engin getur enn birt nákvæm-