Úrval - 01.04.1956, Side 70

Úrval - 01.04.1956, Side 70
68 tjHVAI. inn til sögunnar, kom til upp- þota, Luddítarnir í Englandi, sem svo voru nefndir eftir for- ingja sínum, Nad Ludd, réðust á vefstólana með bareflum og brutu þá. Sama kom fyrir í Þýzkalandi nokkrum árum síð- ar, þegar línvefgvar í Eulenge- birge brutu vefstóla. Atburður þessi var uppistaðan í hinu víð- kunna leikriti Gerhardts Haupt- manns, ,,Vefararnir“. Þannig fylgdu iðnbyltingunni voldug félagsleg umbrot. Hún skók aldagamla þjóðfélagsbygg- ingu að grunni, leysti hana í sundur eins og ætisýra, unz í þeirri upplausn kristölluðust þau nýju félagsform, sem vér búum við í dag. Slík bylting gat ekki orðið án þess miklu væri fórnað og margt færi for- görðum. Vér höfum þegar verið áhorf- endur að einum helzta áfanga þessarar þróunar: tilkomu færi- bandsins í framleiðslunni. Það kom til sögunnar milli heims- styrjaldanna og gerbreyttri allri iðnframleiðslu. Þá birtist fyrir alvöru það Janushöfuð sem sér- hver bylting ber: annarsvegar kom í kjölfar hinnar nýju iðn- tækni sú ægilegasta fjárhags- kreppa, sem gengið hafði yfir heiminn og mesta atvinnuleysi sem þekkzt hafði; hinsvegar hafði hún í för með sér þá stór- kostlegu framleiðsluaukningu, sem vér erum nú fyrst að byrja að njóta ávaxtanna af. Og ekki höfum vér fyrr lært að gera þessa iðntækni oss und- irgefna, en blikur nýrra stór- breytinga rísa við sjóndeildar- hringinn í mynd hinnar sjálf- virku verksmiðju. I eðli sínu er hin sjálfvirka verksmiðja eðlilegt framhald af færibandatækninni. Því að færi- bandatæknin hafði deilt iðn- framleiðslunni í ótal smáhluta, þannig að hver einstakur verka- maður við færibandið þurfti ekki að leysa af hendi nema fáein vélræn handtök, sem hann endurtók í sífellu. Starfið var þannig svift allri sál, öllu inni- haldi, en með nákvæmri sam- stillingu allra þessara sálarlausu athafna tókst að margfalda framleiðsluna. Starf mannsins, sem hingað til hafði að verulegu leyti miðað að því að ljúka verki til fulls, var nú, við tilkomu færibands- ins, leyst upp í fáein vélræn handtök, sem ekki stóðu í neinu greinanlegu sambandi við heild- arverkið. Verkamaðurinn var ekki lengur í neinum tengslum við hlutinn, sem framleiddur var, enda var hann tilorðinn og teiknaður á tæknisviði, sem var hærra en svo, að verkamaður- inn sæi þangað. Á sama hátt og fyrri heims- styrjöldin fæddi af sér færi- bandið, hófst tímabil hinnar sjálfvirku vélar með seinni heimsstyrjöldinni. Þá fyrst lýk- ur iðnbyltingunni í raun og veru, því að það bindur enda á það vansæmandi ásta.nd milli-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.