Bókasafnið - 01.01.2002, Side 12

Bókasafnið - 01.01.2002, Side 12
Skipan nefndar og tillögur hennar Á málþinginu var samþykkt áskorun til stjórnvalda um að skipa nefnd er kæmi með tillögu um með hvaða hætti yrði hægt að tryggja íslendingum aðgang að gagnasöfnum gegnum Internet. Stjórnvöld brugð- ust vel við og árið 1998 skipaði menntamálaráðherra í nefndina. í henni voru eftirtaldir aðilar: Formaður var Sólveig Þorsteinsdóttir yfirbókasafnsfræðingur, tilnefnd af Ríkisspítölunum, en aðrir í nefndinni voru Jón Þór Þórhallsson framkvæmdastjóri, tilnefndur af Rannsóknarráði íslands, Andrea Jóhannsdóttir for- stöðumaður, tilnefnd af Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni og Sigrún Magnúsdóttir yfirbóka- vörður, tilnefnd af Félagi bókavarða í rannsóknar- bókasöfnum.7 Nefndin skilaði tillögum sínum árið 1999 í skýrsl- unni Um aðgang bókasafna, stofnana og einstaklinga að erlendum og innlendum gagnasöfnum. Þar var gerð úttekt á stöðunni hérlendis og einnig raktar þær væntingar sem bókasafnsfólk hafði um framtíðarþróun í mála- flokknum. Jafnframt var þróuninni í nágrannalöndun- um lýst. Nefndin lagði til að skipuð yrði verkefnisstjórn og framkvæmdaaðili til þess að sjá um samningagerð við framleiðendur og seljendur rafrænna gagnasafna og að aðgengi að þeim yrði komið á í áföngum. Lagt var til að ríkið legði fram fjármagn til fyrsta áfanga en bókasöfnin greiddu síðari áfangana að mestu leyti.8 Britannica Online - Tímamótasamningur Hinn 20. apríl 1999 samdi menntamálaráðuneytið við Encyclopcedia Britannica International Ltd. um aðgang allra íslendinga að alfræðisafni á Internetinu og var það í fyrsta sinn að samið var um aðgang heillar þjóðar að þessu gagnasafni. í upphafi árs 2000 tók svo til starfa á vegum menntamálaráðuneytisins Verkefnisstjórn um aðgang að gagnasöfnum, eins og nefndin um aðgang að gagnasöfnum hafði lagt til í skýrslu sinni árið 1999. í verkefnisstjórninni eru Haukur Ingibergsson, formað- ur, tilnefndur af menntamálaráðuneyti, Eydís Arn- viðardóttir, tilnefnd af Rannsóknarráði íslands, Gísli Sverrir Árnason, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sólveig Þorsteinsdóttir, tilnefnd af Bóka- varðafélagi íslands (nú Upplýsingu, félagi bókasafns- og upplýsingafræða), og Þorsteinn Hallgrímsson, til- nefndur af Landsbókasafni íslands - Háskólabóka- safni.9 Segja má að verkefnisstjórnin hafi samningana um Britannicu að leiðarljósi þegar hún hefur samið um landsaðgang að þeim rafrænu gagnasöfnum og tíma- ritum sem nú eru landsmönnum aðgengileg. Slíkir samningar eru einfaldir í framkvæmd og afar mikils virði fyrir fjarnema og aðra sem búa fjarri stærstu bókasöfnum landsins. Þeir eru hins vegar nýlunda í heimi rafrænna gagnasafna þar sem venjan er að samið sé við nokkra háskóla eða stofnanir saman. Samningar sem skipta sköpum fyrir háskólamenntun Verkefnisstjórnin gekk frá samningum við Bell & Howell hinn 11. október 2000. Með þeim samningum opnaðist íslendingum aðgengi að ProQuest 5000, öfl- ugum gagnasöfnum og tímaritum, einkum á sviði tækni, tölvufræða, viðskipta, heilbrigðismála og mennta- og menningarmála.10 Hinn 5. janúar 2001 var samið við Institute for Scientific Information (ISI) um aðgang íslendinga að gagnasafinu Web o/ Science - WoS11. Má segja að þeir samningar hafi opnað íslenskum vísindamönnum dyrnar að heimsvísindunum, a.m.k. þeim vísinda- mönnum sem ekki höfðu til þess tíma haft aðgang að sérhæfðum gagnasöfnum á fagsviði sínu. WoS er afar öflugt gagnasafn á sviði vísinda. í því er hægt að finna útdrætti greina úr virtustu vísinda- tímaritunum á nær öllum fagsviðum. Við WoS eru tengd ritin Journal Citation Reports12 sem eru notuð til þess að leggja mat á störf vísindamanna um allan heim. Matið felst í því að skoða í hvaða tímaritum (sem WoS spannar) þeir hafa birt rannsóknarniður- stöður sínar, hversu margir hafa vitnað í greinar þeirra og einnig hversu öflug tímaritin sem þær birt- ast í eru með tilliti til fjölda tilvitnana í þau. Vorið og sumarið 2001 var gengið frá samningum um aðgengi íslendinga að 3100 rafrænum tímaritum frá helstu útgefendum vísindatímarita í heiminum, Academic Press, Blackwell Publishers, Blackwell Science, Elsevier Science, Karger, Kluwer Academic Publishers, Munksgaard og Springer Verlag. Þessir samningar eru líklega, ásamt samningunum við ISI, einna mikilvægastir íslensku vísindasamfélagi af þeim samningum sem gerðir hafa verið. Aðstaða nemenda í námi til meistara- eða doktorsprófs við íslenska háskóla gjörbreyttist til batnaðar. Raunar má taka svo djúpt í árinni að segja að aðgangur að WoS og rafrænu vísindatímaritunum frá framantöldum útgefendum sé ein af forsendum framhaldsnáms við íslenska háskóla. í september 2001 var opnuð bein tenging milli WoS og rafrænu tímaritanna. Tengingin auðveldar fólki enn frekar að ná í allan texta þeirra greina sem það hefur áhuga á að lesa þar sem það þarf ekki annað en að smella á reitinn Vieu; Full Text sem auð- kennir greinar úr rafrænu tímaritunum sem samið hefur verið um landsaðgang að. Grasrótin og framtíðin íslensk bókasöfn hafa að langmestu leyti staðið undir kostnaði við áðurnefnda samninga og hefur það verið nokkuð stór biti fyrir sum þeirra að kyngja og sumum hefur einnig fundist skiptingin óréttlát. En þetta flokkast vonandi undir byrjunarörðugleika og starfs- menn safnanna hafa lagt sig fram um að útvega fjár- 10 BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.