Bókasafnið - 01.01.2002, Blaðsíða 32
Ólöf Benediktsdóttir
Faggáttir - efnisaðgangur
að stafrænum heimildum
Inýlegri tímaritsgrein „The future researcher and
the future library: from the Viewpoint of an
independent user“, nefnir hinn þekkti breski
bókavörður Maurice B. Line fjórar hindranir í vegi
fræðimanns sem leitar efnis á Internetinu. í fyrsta
lagi er efnið of mikið að magni, í öðru lagi er erfitt að
meta gæði þess, í þriðja lagi þegar loks hefur fundist
gagnlegt vefsetur er engin vissa fyrir að það sé enn á
sínum stað þegar næst skal leitað og í fjórða lagi er oft
krafist greiðslu, sem getur stundum verið erfitt í
framkvæmd.
Talið er að aðgangur að gæðaefni á netinu verði æ
mikilvægari, sérstaklega fyrir fræðimenn og náms-
fólk og aðra sem þurfa á sérhæfðum upplýsingum að
halda. Þetta fólk hefur yfirleitt ekki tíma til að standa
í umfangsmiklum og oft árangurslitlum leitum þar
sem alls konar lélegt efni er meginhluti þess sem
kemur í leitirnar, heldur vill geta gengið að faglega
unnum efnisaðgangi á sínu fræðasviði, sem það
getur treyst.
Efnið er ýmist að finna í tímaritum, gagnagrunn-
um, á heimasíðum fræðastofnana á ýmsum tungu-
málum og í ýmsum löndum og getur stundum reynst
erfitt að nálgast það. Þar sem viðurkenndar stofnanir
eins og háskólar eða bókasöfn hafa byggt upp sér-
hæfðar efnisgáttir, oftast án ágóðasjónarmiða, geta
fræðimenn og aðrir nálgast faglegan og ódýran að-
gang að því efni sem þeir þurfa á að halda. Aðgangur
að heimildum hjá hinum stóru útgáfufyrirtækjum
eða tímaritabönkum nýtist oft ekki sem skyldi, vegna
þess hve efnið er yfirgripsmikið og flókið að leita þar.
Fræðimenn og rannsóknarstofnanir vilja jafnframt
geta skipst á upplýsingum án þess að þær þurfi að
fara í gegnum heildsala sem líta oft fremur á þær sem
söluvöru en þekkingu til að nýta við rannsóknir og
fræði.
Ef litið er á þær leiðir sem við höfum við efnisleit
að stafrænum heimildum á netinu er um nokkra
möguleika að ræða:
Stórar erlendar leitarvélar og síður eins og t.d.
leit.is. Þær eru mikið notaðar og aðgengilegar hveij-
um sem er en þar er ekki um neitt gæðamat á efninu
að ræða. Svörun er yfirleitt góð en langan tíma getur
tekið að vinsa úr það sem að gagni getur komið við
sérhæfða efnisleit. Leitarvélarnar eru margar góðar
til síns brúks t.d. Google www.google.com og manns-
höndin getur aldrei komist með tærnar þar sem þær
hafa hælana hvað varðar leitarhraða og svörun. Þær
eru líka nauðsynlegar til að skanna efnissviðið og
fylgjast með nýju efni. En vegna þess að þær vinna
eingöngu vélrænt geta þær þó aldrei komið í stað
mannsheilans við flokkun efnis.
Heimasíður hinna ýmsu bókasafna hérlendis og
erlendis, sem bjóða upp á tengingar eftir efni í staf-
ræn tímarit og gagnasöfn og fleira sem að gagni getur
komið. Fólk í efnisleit þarf að rata inn á síður þeirra
safna þar sem líklegast er að finna það sem leitað er.
Yfirleitt er um gæðaefni að ræða.
Vefur Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns
www.bok.hi.is kemst að mínu áliti næst því hér á
landi að vera allsherjar bókasafnsvefur sem vísar á
stafrænt efni af mörgu tagi í ýmsum greinum. Hann
er eins og eðlilegt er miðaður við þarfir sérstaks há-
skólasamfélags og er byggður upp eins og flestir
bókasafnsvefir, þ.e. að fýrst er vísað í tegundir efnis
t.d. tímarit eða gagnasöfn en undir því eru tenglar í
efni og fræðigreinar. Heimasíðurnar þjóna yfirleitt vel
notendum viðkomandi bókasafna að þessu leyti en
eru þó mjög misjafnar og tryggja ekki endilega fagleg-
an efnisaðgang.
í mörgum löndum hefur verið komið upp rafræn-
um bókasöfnum á landsvísu sem þjóna öllum not-
endum og bókasöfnum jafnt og veita faglegan efnis-
aðgang á ýmsum sviðum.
Tenglasíður eins og Vefbókasafnið, www. vefboka
safn.is, sem vísar í ákveðnar íslenskar og erlendar
heimasíður og er byggt á efnisorðakerfi. Þar hefur
farið fram nokkurt mat á efninu og stutt greinargerð
um það fylgir. Hér er um fremur almenna efnisleit að
ræða og ekki farið íýtarlega í hvert fag eða efni.
Tenglasíður sem þessi eru ágæt lausn við efnisorða-
leit á víðu sviði.
Vefir kaupenda og seljenda stafræns efnis eins og
t.d. vefur verkefnisstjórnar um stafrænt efni, www.
30
BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002