Bókasafnið - 01.01.2002, Page 38
Niðurstöður
Gagnasöfn: Um helmingur þátttakenda nefndi að þeir
hefðu notað gagnasöfn og einkenndust svörin eðli-
lega af starfsvettvangi fólks. Pannig svöruðu flestir
þátttakendur frá Veðurstofu íslands að þeir hefðu
notað MGA (Meteorological & Geoastrophysical
Abstracts - helsta gagnasafnið á sviði veðurfræði), og
sérfræðingar við Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri nefndu aðallega CABI (Commonwealth Agricul-
tural Bureau International - eitt virtasta gagnasafnið
í landbúnaðarfræðum). Sérfræðingar á Náttúrufræði-
stofnun nefndu hins vegar Zoological Record og
einnig Current Contents. Aðeins einn sérfræðing-
anna 11 á Landmælingum íslands nefndi að hann
hefði notað gagnasafn og aðeins einn þátttakenda
nefndi SCI (Science Citation Index).
Efni á neti: í 2. töflu má sjá samandregnar niðurstöður
frá stofnununum fjórum um hvers konar efni sér-
fræðingarnir vildu helst hafa aðgang að á Interneti.
Eins og sjá má í 2. töflu vildu flestir hafa netað-
gang að erlendum fagtímaritum, 25 settu þau í fyrsta
sæti og 46 í efstu þrjú sætin. Flestir svöruðu þessum
lið eða 54 alls.
Næstflestir settu erlend útdráttarrit í fyrsta sæti,
16 manns, og 33 settu þau í 1.-3. sæti. 47 manns settu
tölu í þennan lið.
Alfræðirit lentu í þriðja sæti ef tekin eru þrjú efstu
sætin. Fimm settu þau í 1. sæti en 25 í 1.-3. sæti. í
fjórða sæti settu flestir innlend gagnasöfn (lög, reglu-
gerðir o.fl.), 24 settu þau í 1.-3. sæti af þeim 47 sem
settu númer við þennan lið. í fimmta sæti komu
orðabækur með 21 atkvæði í 1.-3. sæti. Erlend tilvitn-
anarit settu sex manns í 1. sæti og 17 manns í 1.-3.
sæti, en 33 merktu við þennan lið. Rétt að geta þess
að líklega hafa einhverjir ekki áttað sig á þeim mun
sem er á útdráttarriti og tilvitnanariti. Sumir gerðu
það þó greinilega, t.d. settu fjórir sérfræðingar á Nátt-
úrufræðistofnun erlend útdráttarrit í 1. sæti og þeir
hinir sömu settu erlend tilvitnanarit í 2. sæti.
Fræðilegar útgáfur frá innlendum stofnunum
settu 11 manns í 1.-3. sæti og lestina rak innlent eldra
efni (t.d. dagblöð, tímarit, kort). Aðeins einn setti það
í 1. sæti (og tók fram að það væru kort sem hann vildi
fá) en sjö manns settu það í 1.-3. sæti af þeim 38 sem
gáfu þessum lið númer.
Niðurstöðurnar voru mismunandi eftir stofnun-
um og skáru LMÍ sig nokkuð frá hinum stofnununum
þremur. Sérfræðingar LMÍ settu flestir innlend gagna-
söfn og orðabækur í fyrsta sæti. Skýringuna á mis-
muninum má að öllum líkindum rekja til þess að
hlutverk LMÍ er nokkurs annars eðlis en hinna stofn-
ananna. Það er fyrst og fremst að tryggja að ávallt séu
til staðar landfræðileg gögn um ísland og vera stjórn-
völdum til ráðuneytis í þeim málum. Það er því eðli-
legt að sérfræðingar LMÍ hafi áhuga á innlendum
gagnasöfnum og erlend fagtímarit og gagnasöfn komi
aftar í forgangsröðinni.
Um helmingur þátttakenda frá VÍ setti erlend fag-
tímarit í 1. sæti en aðeins fjórðungur (7 manns) setti
útdráttar- eða tilvitnanarit efst á listann. Er þetta
nokkuð önnur áhersla en á NÍ og LBH þar sem fleiri
settu erlend útdráttarrit eða tilvitnanarit í fyrsta sæti
heldur en tímarit. Skýringuna má ef til vill rekja til
þess að ekkert gagnasafn hefur verið keypt á VÍ mörg
undanfarin ár, hvorki í prentuðu né tölvutæku formi,
þannig að menn hafa vanist því að leita nýrra heim-
ilda í tímaritum.
Aldur þátttakenda skýrði ekki val þeirra.
Umræða
Niðurstöðum rannsóknarinnar svipar mjög til niður-
staðna þeirra rannsókna sem getið er hér að framan.
Erlendu fagtímaritin eru mikilvægasta safnefnið og
það efni sem sérfræðingar vilja helst hafa aðgang að.
2. tafla. Það efni sem þátttakendur vildu helst hafa rafrænan aðgang að.
Sæti
rit Alfræði- tímarit Erl. fag- útdrrit Erl. anarit Erl. tilvitn- innl. efni Fræðil. söfn Innl.gagna- eldra efni Innl. bækur Orða- svör Samtals
1. sæti 5 25 16 6 1 8 1 4 66
2. sæti 9 9 11 6 5 7 2 12 61
3. sæti 11 12 6 5 5 9 4 5 57
4. sæti 1 5 5 3 8 10 9 4 45
5. sæti 7 0 2 3 10 1 6 8 37
6. sæti 2 2 3 1 3 8 2 5 26
7. sæti 1 1 3 2 2 3 8 2 22
8. sæti 3 0 1* 7 1 1* 5 + 1* 3 22
Alls 39 54 47 33 35 47 38 43
(* Ekki númerað heldur sett X við valkost.)
36
BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002