Bókasafnið - 01.01.2002, Side 50
Áhugasamir nemendur á bókasafni Menntaskólans við Sund.
Stuðst var við sambærilegar kannanir sem fram-
kvæmdar höfðu verið í bókasöfnum framhaldsskóla,
meðal annars: Notkun og uiðhorf til bókasafns MS sem
lögð var fyrir alla bekki skólans 6. mars 19872, Við-
horfskönnun á bókasafni FB3, sem gerð var meðal gesta
safnsins tiltekinn dag á vorönn 1998 og Könnun á þjón-
ustu bókasafns FÁ\ sem lögð var fyrir alla nemendur
skólans í þriðju kennslustund á miðvikudegi í mars
1999 sem og kennara skólans.
Spurningalistar þessara kannana voru skoðaðir og
með hliðsjón af þeim saminn einn spurningalisti sem
nota skyldi í öllum skólunum.
Ákveðið var að könnunin yrði gagnvirk og lögð
fyrir í tölvutæku formi en við það áttu að fást niður-
stöður úr henni strax og tók Björgvin Sigurðsson,
tölvukennari 1 MS, að sér að setja spurningalistann í
tölvutækt form og vinna úr honum.
Spumingalistanum var skipt í tvo hluta, A og B. í A-
hlutanum var beðið um upplýsingar um þátttakendur í
þremur spumingum. B-hlutinn, 22 spumingar, var
könnun á notkun, þjónustu og aðstöðu bókasafns- og
upplýsingamiðstöðvar hvers skóla fyrir sig. Síðasta
spumingin var opin og gaf nemendum kost á að koma á
framfæri hugmyndum og hugleiðingum sínum um betri
bókasafns- og upplýsingamiðstöð í skólanum. í spum-
ingalistanum vom því alls 25 spumingar. Allar spurning-
amar vom fjölvalsspumingar nema sú síðasta.
Ætlunin var að hafa svipað úrtak að stærð og sam-
setningu í öllum skólunum eða um 200 nemendur.
Snúið reyndist að finna úrtak þar sem allir nemendur
voru á sama aldri og komnir jafnlangt í námi.
Kvennaskólinn og MS eru bekkjarskólar en FÁ er
áfangaskóli þannig að fólk er þar á mismunandi aldri
og komið mislangt í námi í hverjum námshóp.
í FÁ var könnunin lögð fyrir nemendur í ÍSL 202,212,
292 og 303. Alls vom 285 nemendur í þessum áföngum.
Á vori hveiju fer fram í Kvenna-
skólanum könnun á viðhorfi til kennslu
sem allir nemendur skólans taka þátt í.
Bókasafnskönnunin var lögð fýrir um
leið og sú könnun en aðeins fyrir 2. og 4.
bekk en í þeim bekkjum vom alls 270
nemendur. í MS var könnunin lögð fýrir
2. bekk en í árganginum var alls 201
nemandi. Þar stóð einnig til að leggja
könnunina fyrir 4. bekk en þar sem langt
var liðið á önnina þegar könnunin var
gerð reyndist ekki hægt að koma því við.
Könnunin var síðan lögð fýrir áðumefnt
úrtak nemenda í öllum skólunum sam-
tímis vikuna 3 - 7. apríl 2000.
Þá má geta þess að samstarfið fór
fram á 12 vinnufundum sem haldnir
vom til skiptis í skólunum og skiptust
samstarfsaðilar á um fundarstjórn og
fundarritun. Þess á milli unnu þeir,
ásamt venjubundnum störfum sínum, að tilteknum
verkefnum vegna undirbúnings og framkvæmdar
könnunarinnar.
Niðurstöður könnunarinnar
Eins og áður hefur komið fram var könnunin lögð
fyrir í apríl árið 2000. Aðstæður í hverjum skóla voru
mismunandi við framkvæmd hennar en ákveðið var
að úrtak hvers skóla yrði sambærilegt hvað stærð og
samsetningu varðaði.
Nokkrir ófyrirséðir vankantar komu fram við
framkvæmd og úrvinnslu könnunarinnar sem skýrast
af reynsluleysi við að framkvæma gagnvirka könnun.
Svo sem áður segir samanstóð viðhorfskönnunin
af 25 spurningum og voru sumar þeirra í mörgum
liðum. Hér verður sagt frá helstu niðurstöðum.
Úrtak könnunarinnar var, eins og áður hefur
komið fram, 285 nemendur úr FÁ, 270 úr Kvenna-
skólanum og 201 úr MS. Þessar tölur sýna hve margir
nemendur voru skráðir í viðkomandi námshópa og
bekki í upphafi annar en ávallt er eitthvað um brott-
fall að ræða þegar líða tekur á önnina. Tölurnar sýna
hins vegar ekki hve margir mættu í kennslustund
þegar könnunin var gerð en alltaf er um einhverjar
fjarvistir nemenda að ræða, allt að 20% að meðaltali.
Af heildarúrtakinu bárust 499 svör, sem skiptast
þannig: FÁ 99, Kvennaskólinn 154 og MS 160. 86 svör-
uðu ekki til um skóla.
Við úrvinnslu gagna kom þannig í ljós að um 17,2 %
af þeim sem svar gáfu svöruðu ekki í hvaða skóla þeir
voru sem er það hátt hlutfall að það gæti skekkt sam-
anburð milli skóla og er samanburður einstakra skóla
við heildarniðurstöður því ekki reikningslega réttur.
Þrátt fyrir ofangreinda annmarka telja höfundar
greinarinnar niðurstöður könnunarinnar marktækar og
endurspegla afstöðu nemenda til bókasafna skólanna.
48
BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002