Gátt


Gátt - 2004, Síða 8

Gátt - 2004, Síða 8
8 - gert samstarfssamning við Mími-símenntun ehf., fræðsluaðila í eigu ASÍ. Samningur við símenntunar- miðstöðvar innan KVASIS er á lokastigi og undirritun fer væntanlega fram í nóvember. Fleiri samningar við fræðsluaðila eru í undirbúningi. Samningarnir kveða m.a. á um að Fræðslumiðstöðin vinni að námsskrám og mati á námstilboðum samstarfsaðila sinna en þeir uppfylli kröfur FA um gæði í starfi. - haldið kynningar- og samráðsfundi með fræðslusjóðum, fræðslumiðstöðvum, símenntunarmiðstöðvum innan KVASIS og fleiri aðilum. Markhópur Meginmarkmiðið samkvæmt þjónustusamningi við menntamálaráðuneytið er að veita fólki á vinnumarkaði með litla grunnmenntun, fólki sem horfið hefur frá námi án þess að ljúka prófi frá framhaldsskóla, innflytjendum og öðrum sambærilegum hópum tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. (Úr þjónustusamningi) Nauðsynlegt er að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafi góðar vísbendingar um stærð markhópsins, dreifingu hans um landið, dreifingu hans á starfsgreinar, atvinnu- leysi, hlutfall nýbúa og hvaðan þeir koma, stöðu mark- hópsins út frá námslegum forsendum og/eða stöðu í grunngreinum. Einnig er mikilvægt að þekkja vel þarfir markhópsins, hversu mikill áhugi er fyrir námi og hvort hægt sé að auka þennan áhuga með hvatningu og stuðningi. Vantar upplýsingar um möguleika til náms? Það er ljóst að ýmsar hindranir geta verið í veginum fyrir fullorðið fólk að hefja nám að nýju, einkum fyrir þá sem hafa skemmsta skólagöngu. Náms- og starfsráðgjöf er mikilvægur þáttur í að afla þessara upplýsinga en einnig til að styðja og hvetja einstaklinga til náms. - FA hefur leitað eftir upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Í grein Ásmundar Hilmarssonar, sérfræðings hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, koma þessar upplýs- ingar fram. - Leitað hefur verið til Eflingar stéttarfélags sem er eitt stærsta stéttarfélag verkafólks á Íslandi. Þar hafa verið unnar upplýsingar upp úr félagaskrá. Garðar Vilhjálmsson, fræðslustjóri Eflingar stéttarfélags, gerir grein fyrir þessum upplýsingum í grein sinni. - FA tók þátt í lestrarrannsókn með Elísabetu Arnardóttur og Guðmundi Kristmundssyni ásamt fleiri aðilum. Niðurstöður eru ekki tilbúnar en í ársritinu birtist grein með upplýsingum um rannsóknina, markmið hennar og niðurstöður úr könnun á lestrarvenjum sem lögð var fyrir samhliða. - FA hefur tekið þátt í „Námsráðgjöf á vinnustað“, verk- efni Mímis-símenntunar sem er styrkt af starfsmennta- ráði félagsmálaráðuneytisins í samstarfi við Starfsafl, Eflingu-stéttarfélag og nokkur fyrirtæki og stofnanir. Fjóla María Lárusdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, lýsir verkefninu í grein sinni. - Í undirbúningi er verkefni sem varðar menntun fræðslu- fulltrúa á vinnustöðum. Um er að ræða erlent sam- starfsverkefni, sem Efling stéttarfélag tekur þátt í. Hlutverk FA er að þjálfa starfsmenn fyrirtækja til að vera fræðslufulltrúar og tengiliðir við verkafólk á vinnu- stöðunum. Niðurstöður úr verkefninu munu liggja fyrir á næsta ári. Námsleiðir fyr i r fólk á vinnu- markaði Hlutverk Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins er að stuðla að aukinni og bættri fræðslu fyrir fólk á vinnumarkaði með litla formlega grunnmenntun, óháð búsetu á land- inu. Jafnframt ber Fræðslumiðstöð atvinnulífsins að styðja fræðsluaðila við að skilgreina menntunarþarfir markhópa og byggja upp framboð á lengra og styttra námi til að mæta þeim þörfum. (Úr þjónustusamningi) Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur gert samstarfs- samning við Mími-símenntun. Samningar við F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.