Gátt


Gátt - 2004, Side 11

Gátt - 2004, Side 11
- Þarfagreining framkvæmd af Bjarna Júlíussyni hjá Framnesi í samstarfi við Mennt og menntamála- ráðuneytið. - Forgreining á upplýsingakerfi vegna utanumhalds á nemum og námi, einnig framkvæmd af Bjarna Júlíussyni hjá Framnesi. Upplýsingasöfnun og miðlun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins skal annast almenna upplýsingagjöf um fræðslumál og söfnun og miðlun upplýsinga fyrir markhópana. Með tímanum og auknum árangri í starfsemi FA er nauð- synlegt að hefja kynningarstarf á starfsemi Fræðslumið- stöðvarinnar. Auk uppsetningar og viðhalds á heimasíðu, ýmissa kynningarfunda og viðtala í dagblöðum og félags- blöðum eru helstu bautarsteinar í kynningarmálum þessir: - Útgáfa á þeim námsskrám sem hafa verið metnar til eininga á framhaldsskólastigi. Þetta eru námstilboð Mímis-símenntunar, Grunnmenntaskólinn, Landnema- skólinn, Jarðlagnatækni, MFA-skólinn og „Aftur í nám“. Þessar námsskrár eru einnig á vef Fræðslumiðstöðvar- innar, www. fraedslumidstod.is - Ársrit Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, GÁTT, er liður í kynningu á málefnum þeim sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur verið falið að vinna að. - Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem haldinn verður í nóvember. - Samantekt á tölfræði hvers árs í greinargerð til menntamálaráðuneytisins. Eins og sjá má af ofangreindu hefur ýmislegt verið gert hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins á þessu eina ári sem liðið er frá formlegri opnun. Þó erum við sannarlega enn á byrjunarreitnum og því mikið verk að vinna. Þar ber hæst málefni sem varða mat á raunfærni. Þess vegna hefur sá málaflokkur fengið mikið vægi í þessu fyrsta ársriti FA. Einnig verður mikilvægt að þróa náms- og starfsráðgjöf fyrir markhóp FA en slík ráðgjöf hefur að mestu leyti verið bundin við hið formlega skólakerfi hér á landi líkt og víðar. Loks þarf að huga sérstaklega að þörfum þeirra sem hafa átt við námsörðugleika að etja, s.s. lestrarerfiðleika, svo og að málefnum erlendra starfs- manna sem skortir grunnfærni í tungumálinu og kunnáttu á íslenskt samfélag. Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Kristín Njálsdóttir hjá Landsmennt undirrita samning um húsnæðissamstarf . 11 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.