Gátt


Gátt - 2004, Síða 20

Gátt - 2004, Síða 20
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S 20 Merk ing ýmissa hugtaka á sv ið i ful lorðinsfræðslu Á undanförnum áratugum hafa víða um heim verið að þróast hugmyndir um úrræði og leiðir í símenntun og full- orðinsfræðslu. Eins og í allri annarri þróun fylgir því ný og breytt hugtakanotkun. Þeir sem fjalla um símenntunarmál vita að það er talsvert á reiki hvernig hugtökin eru notuð bæði hér á landi og erlendis. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gegnir því veigamikla hlutverki að vera vettvangur samstarfs um fullorðins- og starfsmenntun á vegum stofnaðila miðstöðvarinnar, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Þeir sem þar starfa finna þörf fyrir að hugtök, sem notuð eru í umræðu um fræðslumál fullorðinna, séu skýrt skilgreind. Því kom upp sú hugmynd að hafa fastan þátt í ársritinu þar sem fjallað væri um algengustu hugtökin með það að markmiði að kveikja umræður og komast að samkomulagi um heppilega og samræmda notkun þeirra á íslensku. Hjá Evrópusambandinu hefur Cedefop, miðstöð ESB um þróun starfsmenntunar í Evrópu, unnið að hugtaka- skilgreiningum. Nýtt orðasafn á ýmsum tungumálum yfir helstu hugtök og heiti, sem notuð eru í starfsfræðslu- umræðu, er nýkomið út (Tissot, 2001). Þar sem vettvangur Fræðslumiðstöðvarinnar er einnig fyrst og fremst á sviði starfsfræðslu í atvinnulífinu var við hæfi að hafa orðasafn Cedefop sem viðmið í þessari fyrstu umfjöllun en einnig hafa nokkrir innlendir sérfræðingar um fullorðinsfræðslu velt vöngum á sérstökum umræðuvef á netinu og víðar. Þýðingar úr orðasafni Cedefop og samantekt á net- umræðunum birtast hér á eftir. Við byrjum á örfáum algengum hugtökum. Öll þessi hugtök eiga það sammerkt að þau varpa ljósi á almennt skipulag og aðferðir við nám og menntun. Þessari hug- takaumfjöllun í ársritinu þarf síðan að fylgja eftir. Það hyggjumst við gera með því að fá áhugasama til að tjá sig um það sem hér kemur fram um skilgreiningar og merkingu hugtakanna og setja saman vinnuhóp sem vinnur úr því fyrir næsta ársrit. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessari umræðu hafi samband við Fræðslu- miðstöð atvinnulífsins: sigrun@fraedslumidstod.is H V A Ð Á T T U V I Ð ? Dæmi um skilgreiningar sem fram komu á umræðuvefnum - Vissulega virðist mér almenna notkun hugtaksins fullorðinsfræðsla vera frekar þröng. Sjaldan er talað um að fólk um þrítugt í framhaldsnámi í háskóla sé í fullorðinsfræðslu. Stundum verður maður jafnvel var við að hugtakið sé skilið fyrst og fremst út frá því að fullorðinsfræðsla sé fyrir þá sem vanti eitthvað upp á í menntun sinni. Öldungadeild væri gott dæmi um slíkt þar sem fólk, sem ekki kláraði framhaldsskóla, „fær nýtt tækifæri“ til að bæta sér upp það sem það missti af. En orðið sem slíkt ber ekkert slíkt í sér, saman- burður við nágrannamálin kallar líka á að orðið sé notað sem hlutlaust yfirhugtak: sbr. Adult Education, Erwachsenenbildung. - Ég hvet til þess að við venjum okkur á það að nota orðið fullorðinsfræðsla sem almennt yfir- hugtak og látum aðrar „neikvæðar“ skírskotanir lönd og leið... Orðasafn Cedefop (íslensk þýðing FA) - Fræðsla fyrir fullorðna, frekar ætluð í almennum tilgangi en sem starfsmenntun. Ath.: Fullorðinsfræðsla og endurmenntun/starfs- menntun eru nátengd hugtök án þess að vera sömu merkingar. Fullorðinsfræðsla er oftast notað: - þegar boðið er upp á almenna fræðslu fyrir full- orðna um efni sem telst áhugavert (s.s. open universities) - þegar boðið er upp á viðbótarnám í grunnfærni sem einstaklingar hafa ekki náð tökum á í skólagöngu sinni (s.s. lestur og reikningur) - þegar gera á fólki kleift að a) ná sér í ýmsa hæfni sem það hefur einhverra hluta vegna ekki náð í fyrri skólagöngu eða b) til að öðlast, bæta eða endurnýja færni og/eða hæfni á ákveðnum sviðum: það telst vera endurmenntun/starfs- menntun (continuing vocational education and training) Hugtök á íslensku, ensku og norsku Fullorðinsfræðsla e: Adult education n: Voksnes læring
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.