Gátt


Gátt - 2004, Page 32

Gátt - 2004, Page 32
32 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S miklu fleira fólks en þeirra sem stefna á nám í formlega skólakerfinu. Í þessu skyni hefur Fræðslumiðstöðin haft um það forystu að senda inn forumsókn til Leonardo- menntaáætlunar Evrópusambandsins í samstarfi við nokkra aðila á sama sviði í Evrópu. Fengist fjármögnun í slíkt verkefni myndi það flýta mjög fyrir þróun þessara mála hérlendis. Til lengri tíma litið skiptir einnig máli að meta færni fengna með öðrum hætti, s.s. í félagsstarfi, tómstundum eða með annarri lífsreynslu. Loks væri æski- legt að gefa einstaklingum með mikla færni en skamma skólagöngu að baki möguleika á háskólanámi á grund- velli mats á raunfærni. Hugsanlega að loknu sérstöku undirbúningsnámi. Við þróun kerfis þarf að hafa þá grundvallarreglu til viðmiðunar að viðurkenning á færni sé að eigin ósk ein- staklings og gerð honum til framdráttar. Kerfið þarf að vera auðvelt í notkun, gagnsætt og í samræmi við þau kerfi sem eru í mótun í Evrópu. Í sameiginlegum evrópskum viðmiðunarreglum um mat á óformlegu námi og annarri reynslu er lögð mikil áhersla á rétt einstaklingsins til eignarhalds á eigin raunfærnimati, trúnaðar og möguleika til áfrýjunar á matinu. Traust milli aðila og trúnaður eru nauðsynlegar forsendur til að hægt sé að koma á raunfærnimati. Einstaklingar verða að geta tekið upplýstar ákvarðanir sem byggjast á vel skilgreind- um stöðlum, skýrum upplýsingum um matið og ályktunum, sem af því verða dregnar, skýrum upplýsingum um tilgang matsins og hvernig niðurstöður verða notaðar, skýrum og aðgengilegum upplýsingum um skilmála fyrir mati, t.d. tíma og kostnað ásamt ráðgjöf sem veitt er í matsferlinu (European Commission, 2004). Óhlutdrægni er lykilorð varðandi raunfærnimat og tengist hlutverkum og ábyrgð mats- manna í ferlinu. Mikilvægt er að forðast blöndun hlutverka þar sem það mun hafa neikvæð áhrif á trúnað og traust á niðurstöðum raunfærnimatsins (European Commission, 2004).Ljóst er að mikið starf er fram undan áður en matskerfi á landsvísu verður til á Íslandi en öll sú vinna, sem unnin hefur verið á evrópska vísu, mun geta flýtt mjög fyrir þróuninni. Við getum nýtt okkur sameiginlegu evrópsku viðmiðunarreglurnar frá upphafi svo og reynslu nágranna okkar á Norðurlöndunum og víðar þegar við setjum raunfærnimat í íslenskan farveg til hagsbóta fyrir einstaklingana, atvinnulífið og samfélagið í heild. Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvædastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Heimildir Andersson, P., Sjösten, N. og Ahn S. (2003). Att värdera kunskap, erfarenhet och kompetens, Perspektiv på validering. Kalmar: Myndigheten för skolutveckling, ESNAL, Virtual academy (2000). Validation within Adult Education in Sweden, Norway and Finland. Sótt 2. nóvember 2004 af: http://www.esnal.net/ European Commission, Brussels (2004). Common European Principles for Validation of Non-formal and Informal Learning, Final draft proposal. Sótt 20. september 2004 af: http://www.eaea.org/news.php?k=3224&aid=3224 Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (2003). Þjónustusamningur menntamála- ráðuneytisins við ASÍ og SA. Sótt 20. september af: http://www.fraedslumidstod.is/default.asp?Id=521 Hagfræðistofnun Háskóla Íslands (2003) Menntareikningar, (Skýrsla nr. C03:07). Reykjavík: Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Menntamálaráðuneytið (2003). Kaupmannahafnaryfirlýsingin. Sótt 20. september 2004 af: http://www3.menntamalaraduneyti.is/malaflokkar/ Menntun/starfsmenntun/nr/1170 OECD (2003). Beyond Rehtoric: Adult Learning Policies and Practices. Paris: OECD Olsen, K. og Rasmussen, L. R.(2004). Realkompetence – og de ufaglærtes kompetenceudvikling. Mastersritgerð í fullorðinsfræðslu: Roskilde Universitetscenter. Rannsóknarþjónusta Háskólans (1996). Þörf atvinnulífs fyrir þekkingu. Reykjavík: Starfsmenntafélagið. Samtök iðnaðarins (2004). Þörf iðnaðar fyrir menntun. IMG Gallup. Sótt 20. september 2004 af: http://www.si.is/media/pdf/Gallup-konnun.pdf Sveinung, S. (2004). Læring i et spændingsfelt – mellem uddannelse og arbejde. Í P. Bottrup og C. H. Jörgensen (Ritstj.) Realkompetence i norsk industri – en ny bro mellem arbejdsliv og uddannelse? Roskilde: Universitetsforlag og höfundar. TemaNord (2003). Validering af realkompetanse, (504), Kaupmannahöfn: Nordisk Ministerråd. VOX. (e.d.). Hva er realkompetanse? Definisjon. Sótt 20. september 2004 af: http://www.vox.no/index.asp?startID=&topExpand=1000089&last- menuitem=1000365&subExpand=&strUrl=//applications/System/pub- lish/view/showobject.asp?infoobjectid=1002713

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.