Gátt


Gátt - 2004, Side 39

Gátt - 2004, Side 39
39 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S þekking þeirra falli ekki úr gildi. Reynsla okkar er sú að það er hægt að meta með góðum árangri í síðasta hluta kynningardagskrár fyrir nýaðflutta innflytjendur. Aftur á móti hefur sumum þátttakendum reynst erfitt að notfæra sér viðbótar kennslu eftir matið. Með því að lengja kennslutímabilið fyrir þá þátttakendur um það bil 2-3 vikur og bjóða þeim sænskukennslu samhliða starfsnáminu hefur þeim tekist að ljúka náminu með fullnægjandi árangri. Hugmyndir um framtíðina Það mat, sem fram hefur farið til þessa, hefur að mestum hluta verið mat með tilliti til þekkingarkrafna við menntun. Vegna þess að það er starfsfærni, sem á að lýsa, er áríð- andi að beina þróunarvinnunni þannig að það verði hægt. Eigi raunfærnimat að vera árangursríkt þurfa forsendur þess að vera ljósar. Eru það einungis fjárhagsleg sjónar- mið eins og stytting á námi, lægri bætur o.s.frv.? Er matið gert til þess að auka sjálfsálit einstaklingsins, reyna að ná fram meiri jöfnuði, reyna að ná fram breytingum á samfélaginu? Mat á starfsfærni fer í dag oftast fram með skilyrðum kerfisins, þ.e.a.s. með tilliti til námskeiðslýsingar eða skilyrða sem hafa verið ákveðin af starfgreinunum. Þetta krefst þekkingarstigs sem ekki allir hafa. Matið verður þar af leiðandi ekki aðgengilegt stórum hópi fólks sem hefur þörf fyrir að lýsa færni sinni. Þar sem ekki alltaf er hægt að bera þá þekkingu og reynslu sem maður hefur tileinkað sér við vissar starfsaðstæður saman við námskeiðslýsingar eða skilyrði þá sýnist ljóst að einnig þarf að þróa aðferðir sem hæfa betur forsendum þessara einstaklinga. Í þeirri þróunarvinnu, sem fram fer í Raunfærni- miðstöðinni í Málmey, finnst okkur áríðandi að mat fari fram við raunverulegar eða raunhæfar aðstæður. Það er trú okkar að matið eigi að hefja við kringumstæður sem eru kunnuglegar þeim sem meta á, t.d. á vinnustað þar sem viðkomandi einstaklingurinn vinnur, í stað þess að hefjast handa með því að kynna námskeiðslýsingar framhaldsskólanna. Við erum meðvituð um að þetta gerir miklar kröfur til atvinnulífsins en erum samt vongóð og bjartsýn á að bæði í einkageiranum sem og innan opin- berra stofnana náist skilningur á gildi þess og kostum að fólk hafi raunverulega möguleika til þess að sýna fram á færni sína. Ronny Nilsson og Ingela Bergman, verkefnastjórar við Raunfærnimatsmiðstöðina í Málmey. Þýðing, Sigrún Kristín Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. S K R Á N I N G O G M A T Á R A U N F Æ R N I Í N O R E G I Skráning og mat á raunfærni hefur verið á dagskrá á ýmsum sviðum þjóðfélagsins um árabil. Í Noregi fékk vinnan við það sérstakt vægi með (Realkompetanse- prosjektet) Raunfærnimatsverkefninu og þeim lagasetn- ingum sem fylgdu í kjölfar þess. Raunfærnimats- verkefnið (1999-2002) var sett af stað með það að mark- miði að koma á sameiginlegu kerfi við skráningu á raun- færni. Vox, miðstöð símenntunar atvinnulífsins, var falið að fylgja verkefninu eftir. Bæði vinnan við verkefnið og eftirfylgnin hefur farið fram í nánu samstarfi við aðila atvinnulífsins, menntakerfið, fræðsluaðila og einkaskóla.

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.