Gátt


Gátt - 2004, Side 42

Gátt - 2004, Side 42
þannig að það gagnist bæði fyrirtækinu og starfsfólkinu sem best. Með skráningu á færni starfsfólks getur fyrirtækið: - sett réttan mann á réttan stað - aðlagað og aukið afkastagetu þjálfunar í fyrirtækinu - sannað heildarfærni fyrirtækisins fyrir samstarfs- aðilum - auðveldað eftirfylgni við áform um heildstætt atvinnu- umhverfi með því að þekkja bakgrunn og möguleika hvers einstaklings - átt sinn þátt í að færniþróun verði eðlilegur hluti af starfsemi fyrirtækisins, liður í að skapa gott vinnu- umhverfi. Gildi fyr i r samfélagið Samansöfnuð og viðurkennd raunfærni er birting hins raunverulega þekkingarstigs samfélagsins. Þekking á raunfærni borgaranna getur verið mikilvægt tæki í skipu- lagningu samfélagsins. Sveitarfélögin í Noregi eru svæðisbundnir framkvæmda- aðilar og eiga að gegna mikilvægu hlutverki við að koma á sambúð menntakerfisins og atvinnulífsins. Efling raun- færni er ein áhrifamesta aðferðin við byggðaþróun og í því samhengi er mikilvægt að öðlast yfirsýn yfir raunfærni í sveitarfélaginu. Við erum einnig háð samkeppnisfæru atvinnulífi ef sam- félagið á að virka. Fyrirkomulag raunfærnimatsins mun auka meðvitund í fyrirtækjum um mannauð og auðvelda vinnu við símennt- unaráætlanir. Noregur er hluti af Evrópu nútímans þar sem gerðar eru strangar kröfur um grunnfærni meðborgaranna. Fyrir samfélagið í heild er gagnlegt að gera fólk meðvitaðra um alla færni þannig að hlutverk einstaklingsins í heildinni verði skýrara. Aukin meðvitund um færni og óskir um að efla hana mun eiga sinn þátt í að hækka menntunarstig samfélagsins í heild. Markmið um hreyfanleika vinnuafls innan Evrópu mun nást á auðveldari hátt ef í löndunum eru góð, aðgengileg og viðurkennd kerfi og aðferðir til þess að lýsa raunfærni borgaranna. Markhópur verkefnis ins Markhópurinn er fullorðnir sem óska eftir að fá raunfærni sína viðurkennda og metna með tilliti til menntakerfisins, atvinnulífsins og skipulagsheildar. Margir flóttamenn og nýbúar hafa starfsreynslu að heiman sem þeir geta ekki staðfest með gögnum eða gögnin eru þannig að þeir fá aðeins láglaunastörf á norska vinnu- markaðnum. Þetta hefur skapað þörf fyrir skráningu og mat á raunfærni frá ókunnugum samfélögum og mennta- kerfum. Þess konar viðurkenning getur fjölgað tæki- færum nýbúa á norska vinnumarkaðnum. Hver f jármagnar fyr irkomulagið? Fullorðnir, sem ekki hafa lokið framhaldsskóla og vilja fá raunfærni sína metna og vottaða samkvæmt námskrá, eiga rétt á að fá ráðgjöf, mat og vottun sér að kostnaðarlausu. Ef hinn fullorðni óskar eftir frekari menntun á sú menntun einnig að vera ókeypis og bygg- jast á metinni raunfærni. Sveitarfélögin fjármagna raun- færnimiðstöðvarnar, sem bjóða upp á ráðgjöf, mat og símenntun. Það er einnig verkefni sveitarfélaganna að tryggja gæði matsins. Fullorðnir sem hafa lokið framhaldsskóla en óska eftir að verða metnir í öðru sviði fá einnig tilboð um mat. Kostnaðurinn af því mati getur fallið á sveitarfélagið, vinnumiðlanir eða á einstaklinginn sjálfan. Fyrirtækin eru ábyrg fyrir kortlagningu og skráningu færni. Þróuð hafa verið verkfæri sem hægt er að nota við 42 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.