Gátt - 2004, Page 42
þannig að það gagnist bæði fyrirtækinu og starfsfólkinu
sem best.
Með skráningu á færni starfsfólks getur fyrirtækið:
- sett réttan mann á réttan stað
- aðlagað og aukið afkastagetu þjálfunar í fyrirtækinu
- sannað heildarfærni fyrirtækisins fyrir samstarfs-
aðilum
- auðveldað eftirfylgni við áform um heildstætt atvinnu-
umhverfi með því að þekkja bakgrunn og möguleika
hvers einstaklings
- átt sinn þátt í að færniþróun verði eðlilegur hluti af
starfsemi fyrirtækisins, liður í að skapa gott vinnu-
umhverfi.
Gildi fyr i r samfélagið
Samansöfnuð og viðurkennd raunfærni er birting hins
raunverulega þekkingarstigs samfélagsins. Þekking á
raunfærni borgaranna getur verið mikilvægt tæki í skipu-
lagningu samfélagsins.
Sveitarfélögin í Noregi eru svæðisbundnir framkvæmda-
aðilar og eiga að gegna mikilvægu hlutverki við að koma
á sambúð menntakerfisins og atvinnulífsins. Efling raun-
færni er ein áhrifamesta aðferðin við byggðaþróun og í
því samhengi er mikilvægt að öðlast yfirsýn yfir raunfærni
í sveitarfélaginu.
Við erum einnig háð samkeppnisfæru atvinnulífi ef sam-
félagið á að virka.
Fyrirkomulag raunfærnimatsins mun auka meðvitund í
fyrirtækjum um mannauð og auðvelda vinnu við símennt-
unaráætlanir.
Noregur er hluti af Evrópu nútímans þar sem gerðar eru
strangar kröfur um grunnfærni meðborgaranna. Fyrir
samfélagið í heild er gagnlegt að gera fólk meðvitaðra
um alla færni þannig að hlutverk einstaklingsins í heildinni
verði skýrara. Aukin meðvitund um færni og óskir um að
efla hana mun eiga sinn þátt í að hækka menntunarstig
samfélagsins í heild.
Markmið um hreyfanleika vinnuafls innan Evrópu mun
nást á auðveldari hátt ef í löndunum eru góð, aðgengileg
og viðurkennd kerfi og aðferðir til þess að lýsa raunfærni
borgaranna.
Markhópur verkefnis ins
Markhópurinn er fullorðnir sem óska eftir að fá raunfærni
sína viðurkennda og metna með tilliti til menntakerfisins,
atvinnulífsins og skipulagsheildar.
Margir flóttamenn og nýbúar hafa starfsreynslu að heiman
sem þeir geta ekki staðfest með gögnum eða gögnin eru
þannig að þeir fá aðeins láglaunastörf á norska vinnu-
markaðnum. Þetta hefur skapað þörf fyrir skráningu og
mat á raunfærni frá ókunnugum samfélögum og mennta-
kerfum. Þess konar viðurkenning getur fjölgað tæki-
færum nýbúa á norska vinnumarkaðnum.
Hver f jármagnar fyr irkomulagið?
Fullorðnir, sem ekki hafa lokið framhaldsskóla og vilja fá
raunfærni sína metna og vottaða samkvæmt námskrá,
eiga rétt á að fá ráðgjöf, mat og vottun sér að
kostnaðarlausu. Ef hinn fullorðni óskar eftir frekari
menntun á sú menntun einnig að vera ókeypis og bygg-
jast á metinni raunfærni. Sveitarfélögin fjármagna raun-
færnimiðstöðvarnar, sem bjóða upp á ráðgjöf, mat og
símenntun. Það er einnig verkefni sveitarfélaganna að
tryggja gæði matsins.
Fullorðnir sem hafa lokið framhaldsskóla en óska eftir að
verða metnir í öðru sviði fá einnig tilboð um mat.
Kostnaðurinn af því mati getur fallið á sveitarfélagið,
vinnumiðlanir eða á einstaklinginn sjálfan.
Fyrirtækin eru ábyrg fyrir kortlagningu og skráningu
færni. Þróuð hafa verið verkfæri sem hægt er að nota við
42
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S